06.03.1972
Efri deild: 50. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1270 í B-deild Alþingistíðinda. (832)

33. mál, Stýrimannaskólinn í Reykjavík

Jón Árnason:

Herra forseti. Ég tel, að sú brtt., sem hér er um að ræða og hér hefur verið rætt um, að tiltaka sérstaka staði, geti að vissu leyti átt rétt á sér, en þó vil ég segja það, að eins og er í lögum um menntaskóla t.d., þá gæti þetta komið að sama gagni og yrði nýtt á svipaðan hátt. Við höfum tekið eftir því, að það hefur í æ ríkari mæli færzt í aukana, að hinir ýmsu skólar, gagnfræðaskólar úti á landsbyggðinni, hafa fengið aðstöðu til þess að taka upp kennslu 1. stigs menntaskóla. Þetta er mjög vinsælt, og það er eðlilegt, vegna þess að þetta sparar fólki geysilega mikið, að geta haft nemendurna sem lengst heima hjá sér og sloppið við þann mikla kostnað, sem alltaf er því samfara að senda börn á fjarlæga staði til náms í skóla.

Sama máli má segja að gegni um Stýrimannaskólann. Það segir sig sjálft, að það væri mjög æskilegt, að hægt væri að koma á sem víðast í verstöðvunum úti á landi aðstöðu til kennslu námsefnis 1. bekkjar Stýrimannaskólans. Þetta á sér stað allvíða í sambandi við Vélstjóraskólann. Þessi námskeið hafa átt sér stað á undanförnum árum, og það er enginn vafi á því, að það hefur aukið mjög þátttökuna í námi í sambandi við vélstjóranámið, að þessi námskeið hafa verið úti á landsbyggðinni. Og sama máli mundi gegna varðandi 1. bekk Stýrimannaskólans.

Ef það verður niðurstaðan við afgreiðslu þessa máls í þessari hv. d., að aukið verði við þessum einstöku stöðum, sem um ræðir í 2. tölul. brtt. á þskj. 58, mun ég áskilja mér rétt til þess að flytja brtt. varðandi staði á Vesturlandi og kannske víðar á landinu við 3. umr. málsins.