19.10.1971
Efri deild: 3. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1275 í B-deild Alþingistíðinda. (859)

4. mál, kaup á skuttogurum

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég vil strax taka það fram, að ég er efni þessa lagafrv. algerlega sammála. Hér er, eins og hæstv. ráðh. tók fram, um staðfestingu á brbl. að ræða, sem sett voru að tilhlutan fráfarandi ríkisstj., annars vegar til þess að Akureyringar, Útgerðarfélag Akureyringa, hefðu möguleika til þess að endurnýja togaraflota sinn, og hins vegar til þess að auðvelda Slippstöðinni á Akureyri og Útgerðarfélaginu að ná samningum sín á milli til þess að styðja að íslenzkum skipasmíðaiðnaði og því fyrirtæki sérstaklega á Akureyri. En ég kveð mér hljóðs einnig til þess að spyrja hæstv. ráðh. um það, hvort hann mundi ekki vera hliðhollur því að sú n., sem fær þetta mál til meðferðar, taki til athugunar, hvort ekki sé ástæða til þess að rýmka þessa heimild umfram það, sem gert er ráð fyrir í brbl. Mér er kunnugt um það, að tveir aðilar hér í Reykjavík, reyndir útgerðaraðilar, hafa hug á því að festa kaup á skuttogurum, ef sams konar stuðningur fæst af hálfu ríkisvaldsins og sveitarfélagsins eins og gert er ráð fyrir í þeim lögum, sem hér er um að ræða. Hér er um þá útgerðarmennina að ræða, Einar Sigurðsson og Ingvar Vilhjálmsson eða félög þeirra, sem ýmist með samvinnu sín á milli eða eitt sér hafa hug á að kaupa þrjá skuttogara, og eru fulltrúar af þeirra hálfu í Póllandi, að því er ég bezt veit, til að kanna þessa möguleika. Ég þykist vita, að hæstv. ráðh. viti um þessar fyrirætlanir þessara útgerðarmanna. Ég vil aðeins lýsa áhuga mínum á því, að fyrirætlanir þessar komist í framkvæmd, og þess vegna væri mikils vert, ef hæstv. ráðh. treysti sér til þess að gefa í skyn, hvort hann styddi þessar fyrirætlanir og að hv. þn. tæki til athugunar, hvort ekki væri ástæða til þess að rýmka enn frekar en brbl. gera ráð fyrir heimildir lagafrv. í þessu efni.