17.04.1972
Neðri deild: 62. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1289 í B-deild Alþingistíðinda. (896)
106. mál, verslunaratvinna
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Það hefur komið brtt. við þetta litla frv. á þskj. 510 frá hv. 9. landsk. þm., sem hér var að ljúka við að tala fyrir þeirri till. Hann leggur til, að bætt verði við aðalefnisgrein frv.: „enda sé fullnægt lágmarksskilyrðum, sem nánar skulu ákveðin með reglugerð“. Ég er mótfallinn þessari till. og tel, að hún hafi afskaplega lítið gildi, nema hún sé þá aðeins til þess, úr því sem komið er, að tefja það, að þetta litla mál fái hér eðlilega afgreiðslu. Það er helzt að heyra á hv. flm., að honum þyki kannske of mikið fyrir ráðh. að ákveða það í hverju tilviki, hvort rétt sé að veita þá undanþágu, sem hér er um að ræða, en hins vegar gerir hann ráð fyrir því, að þessi sami ráðh. gefi út reglugerð með þessum skilyrðum. Það virðist því vera ósköp auðvelt fyrir þann ráðh., sem ætlar sér að koma einhverju fram, að breyta reglugerð, en þá skuli þetta standa í reglugerð, sem hann setur, hvaða undanþágur hér eigi að vera. Þegar þannig er litið á málið, þá sjá menn, að hér er í rauninni ekki um neina eðlisbreytingu að ræða.
En það er rétt að átta sig á því, hvað hér er raunverulega um að ræða í sambandi við þessar undanþágur. Hér er aðeins um það að ræða, hvort það skuli standa tvímælalaust í lögunum, að ráðh. geti, þegar sérstaklega stendur á, veitt undanþágu í sambandi við verzlunarréttindi, sem sagt frá þeim meginákvæðum laganna, sem gera að skyldu tiltekna lágmarksmenntun. Þau atriði, sem hér geta yfirleitt komið til mála, eru þau, að í vissum tilvikum á þetta sér stað, einkum með iðnaðarmenn, og þess vegna helzt víða úti á landi í litlum plássum, og þá þykir eðlilegt, að þeir hafi leyfi til þess að hafa með höndum minni háttar verzlunarstarfsemi, sem fylgir raunverulega þeirra starfi. Ég skal nefna hér dæmi af þeim tegundum, sem fyrir hafa legið. Það er t.d. skósmiður, sem hefur jafnvel um árabil haft leyfi til þess að selja eitthvað af skóm, gúmmístígvél eða eitthvað þess háttar, og það þykir ekki beinlínis ástæða til þess, að neita þessum iðnaðarmanni um leyfi til að hafa með höndum þessa minni háttar verzlun eða setja það sem skilyrði, að hann eigi að hafa próf úr verzlunarskóla. Þetta á sér stað í mjög mörgum tilvikum með aðra iðnaðarmenn, sem selja eitthvað lítils háttar af varningi, sem tilheyrir raunverulega þeirra iðnaðarstarfl. Ég vil taka það alveg skýrt fram, að þann tíma, sem ég a.m.k. hef haft þetta á höndum, þá hefur mér ekki komið til hugar að veita undanþágu frá þessari aðalreglu, sem lög gera ráð fyrir, nema þegar um er að ræða minni háttar verzlunarstarfsemi t.d. af þessu tagi, sem ég hef lýst, og þegar full ástæða er til þess að leyfa manni með aðra eða minni menntun að hafa með höndum þannig hliðarverzlun eins og hér getur verið um að ræða. Ég held, að það geti verið mjög erfitt að tína upp í reglugerð þessi breytilegu atriði, sem hér getur verið um að ræða. Það hefur t.d. komið fyrir í minni tíð, að aðili, sem hefur úti á landi rekið lítið veitinga- og gistihús, hann vildi fá leyfi til að selja þar tiltekna hluti, en hann hafði ekki full réttindi til þess. Ekki samkv. ýtrustu ákvæðum þessara laga. Hér vakir því ekki fyrir þeim, sem standa að því af hálfu rn. að þetta frv. er flutt, að breyta í neinum grundvallaratriðum þeim meginreglum, sem eiga að gilda um veitingu verzlunarréttinda, heldur aðeins, að það liggi ótvírætt fyrir, að ráðh. geti, þegar sérstaklega stendur á, veitt leyfi til verzlunar, þar sem um er að ræða minni háttar verzlunarrekstur, t.d. af þessu tagi, sem ég hef lýst.
Á það er réttilega bent í grg. frv., að þegar sú löggjöf var sett, sem hér er verið að breyta, þá var sagt í grg. fyrir því frv., sem þar var flutt, að nefndin legði einmitt áherzlu á það, að það væri það æskilega, að einstaklingar og fyrirtæki hefðu sem frjálsasta möguleika og frjálsastar hendur til þess að stunda verzlunarrekstur í landinu. Það sýnist nú ekki nema full ástæða til þess að haga þessu svona. Ég get líka upplýst það, að svona undanþágur hafa verið veittar af ráðh. áður og þá talið, að það mætti lesa það út úr vissum ákvæðum laganna, enda hefur þetta verið framkvæmt um alllangan tíma, en ég er á þeirri skoðun, að rétt væri að hafa þetta alveg skýrt, að ráðh. hefði þá þennan möguleika í þess háttar tilfellum, sem hér er verið að ræða um. Ég legg því eindregið til, að frv. nái fram að ganga, eins og Ed. hefur samþ. það, og það fái hér afgreiðslu sem fyrst, og er af þessum ástæðum á móti því að fara að setja skilyrði um atriði eins og þessi með útgáfu reglugerðar.