17.04.1972
Neðri deild: 62. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1291 í B-deild Alþingistíðinda. (897)
106. mál, verslunaratvinna
Frsm. minni hl. (Ellert B. Schram):
Herra forseti. Hæstv. viðskrh. finnst lítið til þessarar brtt. koma og skilur ekki tilgang hennar öðruvísi en þá til þess að tefja fyrir framgangi málsins. Ég á nú bágt með að skilja slíkan málflutning. Ég hafði haldið, að menn ættu hér að setja fram sínar skoðanir, og ef þeir hafa það álit, að það þurfi að breyta einhverju frv., þá að koma með brtt., og það hef ég gert núna. Fyrir mér vakir að sjálfsögðu ekki að vera að tefja fyrir einu eða neinu, heldur einfaldlega það, sem ég tel vera mitt hlutverk, að bæta svo um eins og mér sýnist bezt mega fara í hverju máli.
Ráðh. telur, að frv. geri ráð fyrir því, að viðkomandi ráðh. veiti undanþágur, þegar hann sjálfur metur svo, og þess vegna þurfi hann ekki að vera að búa til reglugerð, það sé „tautologia“, — eða mér skildist helzt svo á ráðh., að hann héldi, að það hefði takmarkaða þýðingu að setja reglugerð, sem ráðh. ætti að setja sjálfur, þegar hann mæti þessa hluti hvort sem er. En ég hefði einmitt haldið, að það kæmi ráðh. betur einmitt að hafa einhverja reglugerð, einhverja almenna reglugerð um þau lágmarksskilyrði, sem ég tel, að þurfi að vera fyrir hendi. Og mér sýnist ekki betur en við séum sammála. Ef skilningur hæstv. ráðh. er sá, að hér eigi eingöngu að veita undanþágur í minni háttar verzlunarrekstri, þá erum við sammála um það. En það er einmitt það, sem ég er að reyna að leggja áherzlu á, að setja þarf reglur um það, til þess að taka af allan vafa, því að minn skilningur á þessu frv. er sá, og ég held, að hann sé réttur, að frv. veiti viðkomandi ráðh. heimild til alveg fortakslausrar undanþágu, bæði í meiri háttar og minni háttar verzlunarrekstri. Það er ekkert, sem mælir því í gegn. Og enda þótt hæstv. núv. viðskrh. hafi þennan skilning, þá er þetta frv. og þessi lög ekki sniðin eingöngu fyrir hans ráðherratíð, og ég ætla a.m.k. að vona, að hann verði ekki ráðh. um aldur og ævi, þannig að það koma nýir menn í þessar stöður, taka við ráðherradómi, og það má vel vera, að þeir hafi annan skilning á þessu ákvæði heldur en einmitt núv. ráðh. og þeir skilji ákvæðið öðruvísi og skilji það einmitt á þann veg, sem ég skil það, að þeir hafi heimild til þess að veita undanþágur, hvort sem um er að ræða minni háttar eða meiri háttar verzlun.
Ég vil taka fram, svo að það fari ekki á milli mála, að ég er ekki á móti því í sjálfu sér, að veittar séu undanþágur. Ég hef skilning á því, að undir vissum kringumstæðum. eins og í þeim dæmum, sem hæstv. ráðh. nefnir, þá þurfi að veita undanþágur, en ég held, að það sé heppilegt fyrir alla aðila, ráðh. jafnt sem þá, sem sækja um undanþágurnar, og hvað þá þessa atvinnugrein í heild sinni, að það séu sett einhver lágmarksskilyrði, sem geri kröfu til þeirra, sem reka verzlun. Ég held, að fólki, sem hyggst ganga út í verzlunarrekstur, jafnvel þótt það sé minni háttar verzlunarrekstur, því sé ekkert gert of viðamikið, þótt það gangi undir einhver lágmarksskilyrði, eins og t.d. það að hafa lágmarksþekkingu á bókhaldi eða sækja eitthvert námskeið í verzlunarfræðum o.s.frv. Ég hefði haldið, að það væri þessu fólki jafnvel til góðs og það mundi tryggja betri verzlunarþjónustu. Við verðum varir við það í þessu landi, að allt of oft eru ýmsir að fást við t.d. verzlun, sem hafa ekki nægilega mikla þekkingu og ráðvendni til að bera, sem veldur því, að þessi fyrirtæki fara yfir um með hörmulegum afleiðingum fyrir ýmsa aðra, sem við þau skipta. Og það stafar, held ég, allt of oft af því, að þessir aðilar, sem eru ábyrgir fyrir fyrirtækjunum, hafa of takmarkaða þekkingu á verzlunarrekstri, ætla sér um of og skilja ekki lögmál þessara fræða. Þess vegna er ég sannfærður um, að það þarf að hlúa betur að þessari atvinnugrein verzluninni til góða og samfélaginu í heild til góða, og þó að þetta frv. skipti ekki sköpum og þessi brtt. mín skipti heldur ekki sköpum, þá er ég þeirrar skoðunar, að þetta frv. sé ekki spor í þá átt.