02.02.1972
Efri deild: 42. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1296 í B-deild Alþingistíðinda. (905)
153. mál, umferðarlög
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Þau lög, sem hér er um að ræða, leiða hugann að ýmsu því, sem ábótavant má telja í umferðarmálum okkar. Þetta verða þó aðeins örfá atriði við þessa umr. um mjög afmarkað atriði, enda skortir mig nógan kunnugleika til þess að gera þessum málum verðug skil.
Ég skal ekki hætta mér út í það að dæma um réttmæti þessara laga hvað tryggingafélögin áhrærir, þó að ég dragi það stórlega í efa, að allur harmagrátur tryggingafélaganna um afkomu sína styðjist við nokkuð annað en hið sígilda orðtak, að sá er ekki búmaður, sem ekki kann að berja sér, a.m.k. er ekkert það í rekstri þeirra og umsvifum, sem bendir á það, að þar sé þröngt í búi. miklu fremur hið gagnstæða. En hitt vildi ég svo gjarnan leggja áherzlu á, að sú stefna er rétt, að þeir, sem slysum valda í umferðinni eða tjónum ýmiss konar, beri meiri ábyrgð á gerðum sínum en verið hefur og gjaldi þar í nokkru sektar sinnar, ef sönnuð reynist. Varðandi umferðarslysin og umferðartryggingarnar almennt, þá langar mig aðeins til þess að vekja hér athygli á einu atriði, sem ég held þó, að sé býsna veigamikið, ef grannt er skoðað, atriði, sem var reyndar mjög skýrt tekið fram af hæstv. dómsmrh. hér áðan. Hér á ég við ölvun við akstur, sem ég er hræddur um, að sé miklu oftar en menn grunar bein orsök að slysunum og oft einmitt þeim alvarlegustu, þeim, sem engin tryggingafélög fá bætt. Ásamt of hröðum akstri og til litsleysi í umferðinni er a.m.k. óhætt að segja, að ölvunin sé aðalslysavaldurinn og um leið sá ófyrirgefanlegasti, þar sem hvort tveggja hitt atriðið fléttast hér inn í oft og tíðum. Raunar er ástandið í okkar áfengismálum öllum svo alvarlegt, að varla er hægt að taka nokkurn þátt þar út úr, svo að ekki sé vikið meira og minna að málinu almennt. En það á hins vegar ekki við hér nú. En það er þó orðið svo, að ótrúlegustu menn eru hættir að brosa að okkur bindindismönnum, þegar við ræðum alvarlegar afleiðingar ofdrykkju áfengis hvarvetna í þjóðfélaginu.
Það er þó óvíða um hryggilegri afleiðingar af drykkjuskapnum að ræða en í umferðinni, þó að ég viti, að ýmislegt hefur verið gert af yfirvöldum til að tryggja það, að umferðarlögin væru ekki hrotin hvað þetta atriði snertir. En hér virðist því miður litið hrökkva til aðgæzla og eftirlit. Ég var í sumar staddur á fjölmennri danssamkomu. Utan dyra var mikill bifreiðafjöldi. Aðeins örlítill hluti leigubifreiðar. Inni á samkomunni var fátt manna ódrukkinna, mismunandi þó. Einkum sá ég sárafátt karlmanna, sem ekki voru meira eða minna undir áhrifum. En staðreyndin var þó sú, að allar bifreiðar hurfu frá húsinu, og vissi ég, að þar sat margur vafasamur ökumaður undir stýri. Þó vissi ég það einnig, að löggæzla hindraði ýmsa í því að aka bifreiðum sínum heim. Það furðulegasta var, að ódrukkið fólk settist hiklaust inn í bíl hjá ökumanni, sem vart stóð á fótunum og lögreglan varð að gera að farþega og fól stúlku einni, sem góðu heilli hafði ekki neytt víns, bíllyklana.
Þó að í litlu sé, þá er þetta einmitt dæmigert fyrir andvaraleysi okkar í þessum efnum, hve sofandi við erum oft og einatt gagnvart hættunni, eins og farþegarnir í bifreiðinni, sem ég var að segja frá. Þá vilja menn máske spyrja: Var ekki allt í lagi? Urðu nokkur slys eftir þessa samkomu? Það er rétt, að þarna varð víst, sem betur fór, ekkert alvarlegra óhapp en það, að ein bifreið ók út af. Farþegarnir sluppu með skrámur í það sinn, og bifreiðarstjórinn sjálfur stóð jafnréttur eftir, ég segi því miður, varðandi rétt sinn til að aka bifreið. En um það er ekki spurt, hve oft sleppur við að slys verði, heldur hitt, hve oft slysin verða, hve alvarleg þau eru og hver orsökin kann að vera.
Ég veit, að hæstv. dómsmrh. hefur fullan hug á því að taka þessi mál öll fastari tökum en verið hefur. En hér duga engin vettlingatök, þó að trú mín sé sú, að það þurfi heildarathugun á öllum okkar áfengismálum og markvissar, almennar aðgerðir í þeim, svo að hægt sé að grípa raunhæft og af hörku á þessum þætti, er umferðina varðar. Það er tvímælalaust rétt stefna að herða mjög öll viðurlög varðandi ölvun við akstur, og ökuleyfissviptingu á hiklaust að heita í ríkari mæli en nú er gert. Hitt er svo annað og erfiðara viðfangs, hvernig á að koma í veg fyrir tjón og slys af völdum ölvunar við akstur. Þó að einn sé sviptur ökuleyfi í dag, getur það ekki hindrað, að nýr ökufantur valdi slysi á morgun. Hér ber vitanlega allt að sama brunni. Ofneyzla áfengis almennt og almenningsálit, sem mælir flestu bót, sem af áfengi stafar, leggjast hér á eitt til að torvelda raunhæfar aðgerðir.
Ég er viss um, að það er óþarft að rifja hér upp nokkrar tölur eða staðreyndir í þessum efnum hér á Alþ. Til þess eru þær því miður of sorglega kunnar. En ég gat þó ekki stillt mig um það að víkja örfáum orðum að þessu tiltekna atriði, að ölvuninni sem slysavaldi, um leið og ég vona það og veit reyndar, að hér verður að unnið svo sem í mannlegu valdi stendur til að draga úr hryggilegum afleiðingum áfengisneyzlunnar í umferðinni, og reyndar einnig með þeirri ósk, að svo verði sömuleiðis gert á öðrum sviðum, þar sem áfengisbölið gripur inn í.