05.04.1972
Neðri deild: 57. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1313 í B-deild Alþingistíðinda. (953)
162. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Frv. þetta er komið frá Ed., og hefur verið samþykkt þar óbreytt. Þær breytingar, sem gert er ráð fyrir í frv. frá gildandi lögum, eru um það að hækka nokkuð útflutningsgjald af sjávarafurðum, og er þar fyrst og fremst um að ræða hækkun á svonefndu magngjaldi, en sá háttur hefur verið á, að útflutningsgjaldið hefur verið reiknað sem sérstakt magngjald af vissum tegundum. Það má því segja, að nú, þegar verulegar verðhækkanir hafa orðið á útfluttum sjávarafurðum, hafi útflutningsgjaldið raunverulega lækkað á þessum vörutegundum, sem tekið er magngjald af, í samanburði við útflutningsgjaldið af ýmsum öðrum afurðum, þar sem gjaldið er miðað við hundraðshluta af verðmæti. Það hefur því þótt rétt að fallast á það að hækka magngjaldið þannig, að hlutfallið á milli hinna einstöku tegunda haldist þar nokkurn veginn hið sama og áður hafði verið, enda er um brýna þörf að ræða hjá Tryggingasjóði fiskiskipa, en það er ætlazt til þess, að allur tekjuaukinn, sem reiknað er með að geti orðið kringum 45 millj. kr., renni í Tryggingasjóð fiskiskipa, því að þann sjóð vantar raunverulega fjármagn til þess að hann geti staðið við allar skuldbindingar sínar, ef ekki verður um einhverjar verulegar breytingar á starfsreglum þess sjóðs að ræða. Það hefur farið fram athugun á starfsreglum sjóðsins og standa vonir til þess, að hægt verði að draga þar eitthvað úr útgjöldum hans, en eins og sakir standa er full þörf á þessum tekjuauka fyrir þennan sjóð.
Ég vil vænta þess, að sú n., sem fær málið til athugunar, geti afgreitt það tiltölulega fljótlega, af því að það er í rauninni orðið brýnt fyrir þá, sem hafa með innheimtu á þessum gjöldum að gera, að fá úr því skorið, hvort hér á að verða breyting á varðandi framleiðslu þessa árs. En það er gert ráð fyrir því í frv., að öll framleiðsla yfirstandandi árs falli undir þessa nýju gjaldtöku.
Herra forseti. Ég vil svo leyfa mér að leggja til, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. sjútvn. til fyrirgreiðslu.