17.11.1971
Neðri deild: 14. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í B-deild Alþingistíðinda. (98)

5. mál, áfengislög

Frsm. (Svava Jakobsdóttir):

Herra forseti. Allshn. þessarar hv. d. hefur haft til athugunar frv. það, sem hér er á dagskrá, um breyt. á áfengislögum, nr. 82 frá 1969. Frv. er stjfrv., og mælti hæstv. dómsmrh. fyrir því, er það var lagt fram. Breyt., sem frv. gerir ráð fyrir, snerta tvenn svið áfengislaganna, annars vegar innflutning á öli, hins vegar tengsl þeirra við menningarsjóð.

1. gr. þessa frv. gerir ráð fyrir því, að leyfður verði innflutningur á öli, sem eigi hefur inni að halda meira en 21/4% af vínanda að rúmmáli. Fram að þessu hefur innflutningur á öli verið óheimill með öllu, en heimildar til þessa innflutnings er leitað nú vegna samkomulags Íslands við Fríverzlunarsamtök Evrópu um innflutning á öli, gerðu úr malti, og skulu kvótar fyrir slíkum innflutningi settir í fyrsta lagi þann 1. jan. 1972. Verði frv. þetta að lögum, er því gert ráð fyrir gildistöku þeirra þann dag. 1. gr. þessa frv. felur því í sér samræmingu á ákvæðum í áfengislögum við fyrrnefnt samkomulag vegna EFTA-aðildar.

Breyt., sem 2. og 3. gr. þessa frv. gera ráð fyrir, eru gerðar til samræmis við breyt. á lögum um menningarsjóð og menntamálaráð, sem gildi tóku í fyrra, en þá voru felld niður ákvæði um tekjur menningarsjóðs af upptæku áfengi og áfengissektum. Var þá gert ráð fyrir, að fjár til menningarsjóðs yrði aflað með öðrum hætti. En um leið láðist að nema úr gildi samsvarandi ákvæði áfengislaga um þessar umræddu tekjur menningarsjóðs. Með þessu frv. er því lagt til, að þau ákvæði verði úr gildi felld.

Allshn. mælir með samþykkt þessa frv. Ég vil geta þess, að hv. 1. þm. Norðurl. e., Gísli Guðmundsson, var fjarstaddur afgreiðslu þessa máls vegna veikinda.