07.02.1972
Efri deild: 43. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1318 í B-deild Alþingistíðinda. (983)
160. mál, lán til kaupa á skuttogurum
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj. 306 er frv. til l. um heimild fyrir ríkisstj. til að veita sjálfskuldarábyrgð á lánum fyrir kaupum á skuttogurum. Ástæðan til þess, að þetta frv. er flutt, er sú, að breytt er hér úr einfaldri ábyrgð, sem veilt var heimild fyrir á fjárlögum, í sjálfskuldarábyrgð, en það var ekki hægt að veita þessar ábyrgðir með þeim hætti, nema þessi lagabreyting yrði gerð.
Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta, en legg til, herra forseti, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn. að þessari umr. lokinni.