07.02.1972
Efri deild: 43. fundur, 92. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (991)

160. mál, lán til kaupa á skuttogurum

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins leiðrétta ranglega eftir mér höfð ummæli um það, að ég hafi sagt hér eitthvað á þá leið, að Framkvæmdastofnunin hefði ekki með þetta mál að gera. Ég sagði hins vegar, að ákveðinn þátt þessa máls væri mjög eðlilegt, að hún hefði með að gera. Það væri beinlínis ætlað sem verkefni hennar samkv. lögum, en það væri það atriði málsins, sem að því snýr að útvega atvinnutæki til ýmissa byggðarlaga, sem ekki eru fullfær um að gera það sjálf. Hins vegar er mér ekki kunnugt um það ákvæði í lögum um Framkvæmdastofnun ríkisins, að það sé hún, sem eigi að veita innflutningsleyfi á skipum eða fjalla um sérstaka heimild til þess að ákveða erlenda lántöku eftir þar til settum reglum. Og það var aðeins það, sem ég sagði, að þegar ríkisstj. hefur gefið út ákveðin fyrirheit um fyrirgreiðslu og aðilar koma og uppfylla þau skilyrði og sækja um það að fá að flytja skip inn í landið samkv. settum reglum, þá er það vitanlega, eins og alltaf hefur verið, verkefni ákveðinna stjórnarvalda og engin breyting til á því. Hins vegar væri það auðvitað alveg nýtt í þessu máli, ef annaðhvort Framkvæmdastofnunin eða einhver annar aðili ætti nú að fara að segja til um það, hvort tilteknir aðilar í landinu, sem geta borgað út sín 15% af skipunum, megi kaupa skipin til landsins. Það væri alveg sérstakt atriði. Og það er aðeins það, sem ég hef sagt. Það atriði flokkast hér undir allt aðra aðila.

Ég hef sem sagt aldrei sagt neitt um það, að Framkvæmdastofnunin hafi lítið um þetta mál að fjalla eða ekkert með það að gera, eins og hér hefur verið sagt. En það er rétt, að þetta er mitt álit, að það að gefa aðilum heimild til þess að flytja skip inn í landið, sem geta borgað þau, það hefur hingað til heyrt undir tiltekin rn. og gerir það, og því hefur ekki verið breytt.