18.12.1972
Neðri deild: 27. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1361 í B-deild Alþingistíðinda. (1003)

133. mál, ráðstafanir vegna nýs gengis íslenskrar krónu

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Það hefur ekki farið á milli mála síðustu daga, að forustumenn stjórnarandstöðunnar í þessu landi hafa verið býsna órólegir. Það hefur varla verið um svo lítið atvik að ræða, sem gerzt hefur í þjóðfélaginu, að þeir hafi ekki þotið hér upp í ræðustól, svo að segja daglega, utan dagskrár, skjálfandi af spenningi yfir því, hvort ríkisstj. gæti nú ekki fallið á næstunni og þeirra tími færi að koma. Í sambandi við allan þennan mikla skjálfta hafa svo heyrzt frá þeim mjög furðuleg viðbrögð. Maður sér í blöðum þeirra með stærsta fyrirsagnaletri fyrirsagnir sem þessar: Allt í kaldakoli. Óðaverðbólga afleiðing stjórnarstefnunnar. Heimatilbúinn vandi. Kostnaðarverðbólga ríkisstj. að stöðva allt atvinnulif. Stefnulaus ríkisstj. — og annað eftir því. Er þetta rétt? Já, svona geta menn lagzt undir þennan áróður. Einn af þm. Sjálfstfl. gefur sig hér fúslega fram og segist hafa verið blekktur af þessu. (Gripið fram í: Trúir ráðh. þessu ekki?)

Nú er einmitt rétt að virða það fyrir sér, hvernig ástandið er í þjóðfélaginu, og gera tilraun til að koma þessum villuráfandi Sjálfstæðismönnum inn á rétta línu aftur. Að vísu segja þessir hv. þm. og foringjar stjórnarandstöðunnar alltaf í öðru orðinu: Hvað er verið að tala um minnkandi aflaleysi, það hefur ekkert minnkað aflinn? Hvað er verið að tala um lækkandi verð á framleiðsluvörunni, framleiðslan hefur hækkað í verði? Og þá á allt að vera gott og allt að kenna vonzku ríkisstj. En þessi framkoma er alveg furðuleg. Hvað gerðist t.d. hér í byrjun októbermánaðar, um það leyti sem ákveða þurfti nýtt fiskverð fyrir síðustu 3 mánuði ársins? Þá var þar nokkur vandi á höndum. Sjómenn og útgerðarmenn töldu sig þurfa að fá nokkru hærra fiskverð en áður hafði verið í gildi, m.a. vegna þess, að afli hefði minnkað hjá þeim og verið verðminni vegna samsetningarinnar. Og fiskvinnslumenn töldu, að þeir gætu ekki borgað hærra fiskverð, þar sem reksturinn hefði komið lakar út á árinu hjá þeim en ráð hefði verið fyrir gert. Þegar þetta gerðist, ruku þeir upp í stjórnarandstöðunni og sögðu auðvitað eins og fyrri daginn, að nú væri allt að kollsteypast. Alþbl. skýrði frá þessu dag eftir dag, og alltaf stækkaði letrið frá degi til dags, þangað til loksins kom stærsta letrið, og þá sögðu þeir: Frystihúsin stöðvast alveg örugglega. — Það varð vitanlega að reyna að hnykkja á eftir allt það, sem á undan var komið, með einhverju stóru. Vísir sagði: Það vantar 1000 millj. kr., til þess að hægt sé að halda útgerðinni áfram til áramóta, — 1000 millj. kr., og nú á að taka þessa upphæð úr verðjöfnunarsjóðnum, og þá verður hann uppétinn um næstu áramót. — Svo gekk þetta allt fyrir sig á venjulegan hátt. Þeir, sem höfðu með málið að gera, fiskkaupendur og fiskseljendur, og fiskseljendur, komu sér saman um n. manna til þess að skoða málið, og niðurstaða hennar varð sú, að til þess að bæta hag frystihúsanna, bátanna og sjómanna allverulega, þyrftu að koma til fjármunir, — ekki 1000 millj., eins og þessi blöð höfðu hrópað upp um, heldur 88 millj., til áramóta. Svona geta hróp og köll manna orðið alveg furðuleg, þegar þeir tapa sönsum. En þó að menn hafi verið í ríkisstj. í 12 eða jafnvel í 15 ár í einni lotu, eins og sumir, sem eiga hlut að máli, þá þurfa þeir ekki að koma fram með svona ósköpum, þó að þeir séu utan ríkisstjórnar 11/2 ár.

En það er fyllilega þess vert í sambandi við þær umr., sem hér eiga sér nú stað, að reyna að gera sér grein fyrir því í nokkrum aðalatriðum, hvað hefur verið að gerast í íslenzkum efnahagsmálum að undanförnu og hver sá vandi í rauninni er, sem við stöndum nú frammi fyrir.

Því verður ekki neitað, að árið 1971, en á því ári miðju tók ríkisstj. við völdum, var afbragðs ár efnahagslega séð, og a.m.k. er verið að skýra frá því, hvað efnahagsmálin hafi komið hagstætt út fyrir þjóðarbúið á því ári, þá vilja þeir úr fyrrv. ríkisstj. skrifa það allt hjá sér, en alla annmarka, sem komu fram á því ári, og erfiðleika, þá vilja þeir skrifa hjá núv. ríkisstj. Á árinu 1971, fór það svo, að afli sjávarútvegsins dróst saman um 41/2%, þ.e. aflamagnið, en hins vegar var svo hagstæð verðlagsþróun erlendis, að meðalverðhækkun á útfluttum sjávarafurðum á því ári nam 25%. Árið var því einstaklega hagstætt fyrir okkur, jafnvel þó að aflinn færi nokkuð minnkandi. En á þessu ári gerðist ýmislegt, sem snertir verulega efnahagsmál þjóðarinnar.

Núv. ríkisstj. ákvað, skömmu eftir að hún kom til valda, eða í ágústmánuði 1971, að hækka fiskverð til sjómanna um 18–19%, Auðvitað er ekkert um það að villast, að þessi ráðstöfun hafði í för með sér, að það gekk betur að manna flotann en annars hefði verið, og ég hygg, að flestir verði í rauninni að viðurkenna, að þessi ráðstöfun hafi verið nauðsynleg. Maður sér að vísu nú í nál. frá fulltrúum sjálfstæðismanna í sambandi við afgreiðslu fjárl., að á þennan hátt hafi verið gengið á hagsmuni útgerðarinnar í landinu. Var þessi ráðstöfun þó gerð með þeim hætti, að það var ekki tekin ein kr. frá útgerðinni í sambandi við þann rekstrargrundvöll, sem henni hafði verið áætlaður á því ári. En það var rétt, þessi hækkun var ákveðin á kostnað sameiginlegs sjóðs, sem útgerðin í landinu sem heild stendur að. En þeir sjálfstæðismenn eru auðvitað að koma núna út úr skotum sínum og eru að byrja að játa það, að þeir hafi verið á móti þessari aðgerð, sem þarna átti sér stað. Þeir um það. Þeir skulu koma hér fram og játa það betur fyrir alþjóð, að þeir hafi verið á móti þessari fiskverðshækkun til sjómanna, sem þarna var ákveðin. Auðvitað veit ég mætavel, að það er hægt að segja, að ef þessi hækkun til sjómanna hefði ekki verið ákveðin, heldur hefði hún verið látin renna til útgerðarinnar, þá hefði útgerðin staðið eitthvað betur að vígi. Ekki neita ég því. En ég fullyrði það, að þessi hækkun var nauðsynleg.

Það er líka rétt, að núv. ríkisstj, ákvað, skömmu eftir að hún kom til valda, að flýta framkvæmd á almannatryggingal., sem fyrrv. ríkisstj. hafði staðið að því að setja, en ætlaði sér ekki að byrja á að framkvæma fyrr en eftir áramótin 1971–1972. Auðvitað kostaði þessi ráðstöfun fjármuni. En eru stjórnarandstæðingar, sjálfstæðismenn og Alþfl.- menn, á móti þessari ráðstöfun? Nú ættu þeir að svara því hreinlega. Eru þeir á móti því, að þetta var gert?

Það er líka rétt, að á árinu 1971 varð núv. ríkisstj. að borga ýmsar greiðslur, sem fyrrv. ríkisstj. hafði efnt til. Fyrrv. ríkisstj. var búin að gera samninga um launakjör opinberra starfsmanna með mjög stórfelldri launahækkun til þeirra. En hún hafði ekki séð fyrir því að leggja fé til hliðar til þess að greiða þessar launabætur. Það urðu aðrir að sjá um að greiða þennan reikning.

Þetta gerðist allt á árinu 1971. Og fyrrv. ríkisstj. hafði skilið þannig við málin, að hún hafði gert ráð fyrir því, að verðstöðvun yrði í gildi fram að 1. sept. á árinu 1971, en hún hafði auðvitað ekki skilið eftir neina sérstaka fjármuni til þess að standa undir framkvæmd verðstöðvunar, það sem eftir var af árinu. Og vitanlega, ef ekki átti að sleppa verðlagi þá lausu, þurfti fjármuni til þess að halda niðri verðlagi þann tíma, sem eftir var af árinu. En það er lítill vandi að koma á eftir og segja: Þarna hafið þið eytt í tryggingabætur, þarna hafið þið eytt í sjómennina, þarna hafið þið eytt í það að borga launin til opinberra starfsmanna, þarna hafið þið eytt í það að halda áfram verðstöðvun til áramóta. Auðvitað kostaði þetta allt einhverja fjármuni. En það gera auðvitað ekki aðrir en þeir, sem vilja lemja höfðinu við steininn, að neita því, að það hafi þurft að standa við þetta, sem þarna var gert.

En það eru fleiri þýðingarmiklir þættir, sem tilheyra árinu 1971, þessu góða ári. Á því ári, á árinu 1971, varð um mikinn viðskiptahalla að ræða við útlönd, upp á 400 millj. kr. Að vísu fór það nú svo, að gjaldeyrisstaða þjóðarinnar út á við batnaði eigi að síður um 1493 millj. kr. En um þetta leyti voru menn ekki að hamra á því í sífellu, að það væri gífurlegur viðskiptahalli við útlönd.

Á núverandi ári, 1972, er viðskiptahallinn við útlönd líka áætlaður mjög svipaður, í kringum 4.000 millj., og nú ætla menn alveg að rifna af vandlætingu yfir því, að það skuli vera svona mikill halli í viðskiptum þjóðarinnar við útlönd. En það er ekki verið að greina frá því, hvernig stendur á þessum viðskiptahalla bæði á árinu 1971 og á árinu 1972. Þessi viðskiptahalli varð einfaldlega vegna þess, að þjóðin var á þessum tíma að ráðast í ýmsar stórframkvæmdir, kaupa varanlegar eignir og flytja þær inn í landið, og meðan er verið að gera slíkt, verður viðskiptahalli. Á árinu 1971 voru t.d. keyptar flugvélar til landsins fyrir tæpar 2000 millj. kr. Þessar flugvélar eru taldar með í innflutningi til landsins og skekkja viðskiptastöðuna við útlönd um þessa upphæð. En hvaða maður ætlar að telja, að þjóðarbúskapurinn sé eitthvað verr á sig kominn, þegar við höfum keypt þessar flugvélar á einu ári og flutt þær til landsins og greitt þær að sjálfsögðu með erlendri lántöku. Eignin er öðrum megin og skuldin er hinum megin. Ef við hefðum ekki keypt flugvélarnar, hefði auðvitað viðskiptahallinn orðið 2000 millj. minni. Það er þetta, sem er að gerast á yfirstandandi ári. Við höfum tekið erlend lán, vegna þess að við erum að kaupa í stórum stíl skip og önnur varanleg verðmæti og ráðast hér í stórframkvæmdir, og meðan við stöndum í slíku, verður viðskiptahalli. Ég efast ekki um, að allir hv. alþm. gera sér grein fyrir því, að það er engin leið fyrir okkur Íslendinga að kaupa á einu eða tveimur árum skip fyrir 3–4 þús. millj. kr. og borga þau út í hönd af tekjum ársins. hað verður að taka erlent lán í sambandi við þessi kaup. En skipin, þegar þau koma, teljast með innflutningi og hækka okkar viðskiptahalla á viðkomandi ári. (Gripið fram í.) Ég er að reyna að útskýra hlut, sem virðist vera, að þurfi að lemja inn í hausinn á nokkrum sjálfstæðismönnum. Það er til afskaplega lítils að vera að sveifla um sig á þennan hátt og tala um það sem einhverja sérstaka erfiðleika í þjóðarbúskap okkar íslendinga, þó að það verði viðskiptahalli við útlönd. Vitanlega verður það að koma fram, af hvaða ástæðum hann stafar. (Gripið fram í: Þetta er aðeins lítill hluti af honum.) Er þetta aðeins lítill hluti af af honum? Þetta er allur viðskiptahallinn. (Gripið fram í: Allur?) Þessar 4000 millj. (Gripið fram í: Fer hann allur í flugvélar og skip?) Allur í flugvélar og skip, í varanlegar eignir, var ég að segja. Það eru til skýringar algerlega á honum og liggja fyrir. Ég ætla að biðja hv. þm., formann Sjálfstfl., að lesa sína biblíu, sem hann hefur fengið hér, betur, því að þetta er allt að finna í henni. Þetta kemur alveg skýrt fram í þeim nál., sem hér liggja fyrir. En þeim hefur sem sagt ekki þótt það punta upp á sinn málflutning að segja rétt frá í þessum efnum.

Við skulum svo líta aftur á þróunina í meginatriðum á árinu 1972, hvað þá hefur gerzt. Í árslok 1971 hafði verið hér í gildi verðstöðvun í 14 mánuði, eða frá 1. nóv. 1970, að fyrrv. ríkisstj. ákvað þá verðstöðvun. Núv. ríkisstj. framlengdi þessa verðstöðvun til ársloka 1971. Það vissu auðvitað allir, að það var alveg útílokað annað en að á svona löngum tíma hefði safnazt fyrir ýmislegt í verðlagsmálum landsins, þannig að það yrði að leyfa nokkrar verðhækkanir, og ekki síður þegar það lá einnig fyrir, að verðhækkanir erlendis höfðu orðið miklar sem höfðu auðvitað áhrif hér á landi seinni hluta árs 1971 og þó einkum á árinu 1972. En núv. ríkisstj. hefur staðið þannig að verðlagsmálum, að hún hefur ekki leyft nema lítið þeirra verðhækkana, sem farið hefur verið fram á, og væri líklega gleggsta dæmið að snúa sér til varaformanns Sjálfstfl., Geirs Hallgrímssonar fyrrv. borgarstjóra, og spyrja hann um það, hvað hann hafi fengið mikið af öllum þeim hækkunum, sem hann bað um að fá að framkvæma hér á alls konar þjónustu við almenning. Hann fékk ekki nema lítinn hluta af því samþykkt. En þeir sjálfstæðismenn í borgarstjórn Reykjavíkur hafa bara hert á sínum róðri og sent okkur ný bréf núna, og nú vilja þeir fá að hækka ýmis gjöld ennþá meira en í fyrra tilfellinu. Nú fara þeir t.d. fram á það að mega hækka strætisvagnagjöldin hér í Reykjavík um 44%. En þó að ríkisstj. hafi staðið þannig að framkvæmd verðlagsmála, að hún hafi hleypt eins litlu í gegn og tök hafa verið á, og staðið þannig að þeim, að meira að segja þeir, sem skrifa leiðara Morgunblaðsins, kvarta sáran undan því, að það skuli ekki hafa verið leyfðar ýmsar verðhækkanir til ýmiss konar fyrirtækja í landinu, þá fór það auðvitað svo, að ríkisstj. leyfði nokkrar verðhækkanir á fyrri hluta ársins 1972, eða fram á mitt ár, og það liggur alveg fyrir, hvað hér var sett mikið út í verðlagið. Framfærsluvísitalan á þessu tímabili, frá því að ríkisstj. tók við, hækkaði úr 155 stigum upp í 170 stig eða um 15 stig. Það jafngildir því, að framfærsluvísitalan hafi mælt hækkun upp á 9.7%. Síðan var aftur sett á verðstöðvun, og sú verðstöðvun er enn í gildi.

Þegar menn hafa það svo í huga, hvað hefur verið að gerast í þessum málum hjá okkur og í öðrum löndum, þá liggur þetta fyrir, og ég bið hv. alþm. að taka vel eftir því: Á tímabilinu frá 1. nóv. 1970, þegar fyrrv. ríkisstj. setti sína verðstöðvun, og fram til 1. nóv. í ár, 1972, á tveggja ára tímabili, hefur farið út í verðlagið hér verðhækkun upp á 9.7%, á tveggja ára tímabili, (Gripið fram í.) Það skiptir svo sem ekki máli, á hvaða tíma það fer fram, en á tveggja ára tímabili er bað þetta, sem gerist. En þetta þýðir það, að að meðaltali á ári fer hér út í verðlagið 4.9% hækkun. En á sama tíma og þetta hefur gerzt liggur það fyrir, að verðlag í löndunum hér í kringum okkur hefur hækkað svo mikið af ráðstöfunum, sem við gátum ekki ráðið við, og það kemur fram í efnahagsskýrslu hagrannsóknadeildarinnar, að frá árinu 1971 til ársins 1972 hefur innflutningsverð á vörum til landsins hækkað um 9.25%. Erlent verð hefur hækkað að meðaltali um 9.25°/ á þessu tímabili, en við höfum sleppt út í verðlagið 9.7% á tveggja ára tímabili og það þó að fjöldamörg vandamál hafi verið skilin eftir frá fyrrv. ríkisstj. í verðlagsmálum. Ef við berum okkur svo einnig saman við verðlagsþróun hér í nálægum löndum, þá má t.d. geta þess, að á s.l. ári hækkaði verðvísitalan í Bretlandi um 11% og árið þar áður um 8.7%, og tilkynnt er, að hækkunin á þessu ári muni verða milli 10 og 11%.

Sannleikur málsins er sá, að ríkisstj. verður ekki dæmd fyrir það að hafa sett hér út í verðlagið meiri hækkanir en hafa átt sér stað í nálægum löndum á þeim tíma, sem hún hefur starfað. Það er miklu frekar hægt að ásaka ríkisstj. fyrir það, að hún hafi haldið svo stíft á verðlagsmálum, að það geti verið erfitt fyrir ýmsa aðila í landinu að framfylgja þeim reglum. Ég játa það miklu frekar. En allar fullyrðingar um það, að núv. ríkisstj. hafi staðið hér fyrir verðhækkunum, eru úr lausu lofti gripnar. Og ég vil biðja hv. þm. að kynna sér þau gögn, sem hér liggja fyrir um þessi mál, áður en þeir fara að endurtaka það, sem stjórnarandstaðan hefur haldið fram í þessum efnum.

Við þetta er svo einnig því að bæta, að auðvitað var það svo, að þegar kauphækkanir urðu jafnmiklar og raun hefur á orðið í samningum hinna almennu verkalýðsfélaga í des. 1971, þá var gefið mál, að slíkar launahækkanir hlytu að leiða til einhverra verðhækkana. Það var alveg útilokað að ætla að láta atvinnureksturinn eða framleiðsluna í landinu bera allan þennan aukna kostnað. Það varð að hleypa einhverju út. En ég held, að það sé enginn vafi á því, að sú stefna, sem ríkisstj. hefur haldið uppi í þessum efnum, hefur þýtt það, að hér hefur verið sleppt út í verðlagið minni hækkunum en bein efni stóðu til. Og ef maður ber þetta saman við það, sem gerðist á tímum viðreisnarstjórnarinnar, þá er þetta vitanlega gerólíkt, því að það liggur fyrir, að á tímabilinu frá 1. jan 1968 og fram að verðstöðvunartímanum hjá ríkisstj. 1. nóv. 1970, á nærri þriggja ára tímabili, hækkaði vísitalan hjá fyrrv. ríkisstj. að meðaltali um 18.6% á ári. Ef maður fer lengra aftur í tímann, ekki bara til 1. jan. 1968, þá verður hækkunin enn meiri, því að þeir felldu gengið líka 1967.

Nei, sá vandi, sem við var að glíma og við er að glíma á þessu ári, er ekki vegna þess, að núv. ríkisstj. hafi staðið fyrir því að hækka verðlagið innanlands meira en átt hefur sér stað í nálægum löndum. En hver er þá vandinn? Jú, vandinn kom alveg skýrt fram, þegar leið fram á árið 1972 eða fram undir haust. Þegar að því kom, að frystihúsaeigendur kvörtuðu undan sínum hag og bátaeigendur vildu fá hækkað fiskverð, þá settu þessir aðilar nefnd til að rannsaka það, hvað hefði gerzt á árinu, og þeir urðu sammála um nál., sem þeir skiluðu, og þeir sögðu: Kostnaður af vinnulaunum og öðrum tilkostnaði í rekstrinum er eins og reiknað hafði verið með, þegar fiskverð var ákveðið í ársbyrjun. En það er annað, sem hefur breytzt. Aflinn reyndist minni og aflasamsetningin var þannig, að hún var verðminni. Þetta var þeirra stóri vandi og þó ekki svo stór, að það þyrfti að líða yfir nokkurn mann eða að hann gæfi tilefni til þess að segja, að allt væri hér farið til fjandans.

Auðvitað má segja, að ef engin kauphækkun hefði orðið hjá verkafólki í des. 1971, þá hefði útgerðin staðið sig betur, auðvitað er það rétt. En gat nokkrum manni komið til hugar að standa þannig að málum að neita þeim kjarasamningum, sem voru gerðir í byrjun des. 1971? Við vitum öll, að þeir kjarasamningar voru gerðir í beinu framhaldi af þeim launasamningum, sem fyrrv. ríkisstj. hafði gert við opinbera starfsmenn og nú hefur verið upplýst, hér á Alþ., að hafi raunverulega þýtt um 45% almenna launahækkun hjá opinberum starfsmönnum. Það var algerlega vonlaust mál að standa þannig að kjarasamningunum í des. 1971, að þá yrði ekki um verulegar launabætur að ræða. Hefði ríkisstj. staðið þannig að málum, hefði hún aðeins fengið langt verkfall og mikla framleiðslustöðvun og mikið þjóðhagslegt tap. En það er alveg rétt, að þeir kjarasamningar leiddu auðvitað af sér miklar launahækkanir, og auðvitað hlaut það að verða svo, að það yrði meiri vandi á eftir að reyna að tryggja það, að þessi kaupmáttur launa fengi haldizt. Og þegar ríkisstj. mætti svo þeim vanda, að fiskaflinn reyndist minni en áætlanir höfðu verið gerðar um og einnig verðminni vegna samsetningar, þá vitanlega munaði strax talsvert verulega um það. Það var talið af þeim vísu mönnum, sem athuguðu þetta mál, að þessi minnkun afla og breyting á samsetningu næmi á ársgrundvelli í kringum 1000 millj. í útflutningsverðmætum, í gjaldeyri.

En þá er ég kominn að því að víkja nokkru nánar að því, hver sá vandi er í raun og veru, sem við er að fást í okkar efnahagslífi. Ég held samkv. því, sem ég hef sagt, að það sé engin leið að halda því fram, að núv. ríkisstj. hafi búið til þennan vanda, nema menn komi alveg hreint fram og segi, að þeir hafi verið á móti launahækkununum. Ég veit það, að sérstaklega ritstjórar Morgunbl. geta ekki legið á því, að þetta sé þeirra skoðun, að launahækkunin hafi verið allt of mikil. En það kemur hins vegar ekki eins vel fram hjá forustumönnum flokksins, sem tala hér á Alþ. Ég tók eftir því, að fyrir stuttu birtist í leiðara í Morgunblaðinu yfirlýsing eða grein á þessa lund, — þar segir m.a., með leyfi hæstv. forseta:

„Sá vandi, sem atvinnuvegirnir standa frammi fyrir í dag, stafar af því, að þeir hafa verið knúnir til að taka á sig aukin útgjöld, sem þeir ekki gátu með nokkru móti staðið undir. Frá 1. sept. 1971 til 1. júní 1972 hefur tímakaup í fiskvinnslu hækkað um 35.7%. Líklegt má telja, að á þessu ári hafi útgjöld atvinnuveganna vegna aukins vinnulaunakostnaðar og hækkandi rekstrarkostnaðar í kjölfar verðbólgunnar hækkað um nálægt 40%.“

Þessir piltar eru að koma út úr sínum holum. Þeir ætla að segja alveg hreint til. Sjálfstfl. á að segja alveg hreint til, að hann hafi verið á móti því að hækka laun vinnandi fólks í landinu, eins og gert var til samræmis við það, sem miklu betur launaðar stéttir höfðu áður fengið með samningum við fyrrv. ríkisstj. Ef á að kenna núv. ríkisstj. um þá þróun, sem orðið hefur, þá er það vegna þess, að hún hafi hækkað kaup sjómanna of mikið, hækkað kaup verkafólks of mikið, hækkað tryggingarnar of mikið. En það er rétt, hún verður að viðurkenna það, að þetta hefur hún gert, og hún þarf að gera ráðstafanir til þess, að hægt sé að standa við þetta. En við skulum þá virða nokkuð frekar fyrir okkur, hver er í rauninni sá vandi, sem við er að glíma nú í efnahagsmálum.

Framleiðslan er í fullum gangi, og hún hefur ekki kvartað við þær aðstæður, sem hún býr við í dag. Um þær kringumstæður hefur hún samið, og það hefur ekkert komið fram um það, að hún telji ekki hag sinn sæmilegan, eins og ástandið er í dag. En ástandið í dag er við það miðað, að ríkissjóður greiði niður í kringum 5 vísitölustig. Við það miðuðust bráðabirgðaráðstafanirnar samkv. brbl. frá s.l. sumri. Þessar ráðstafanir eiga að renna út um áramót, og því er eðlilegt, að um það sé spurt: Hvernig á að halda þessu áfram? Þá kemur spurningin: Hvað kostar að borga áfram þessi 5 vísitölustig niður eða 5.5 eða 6 eða hvað sem þau yrðu? Jú, það er reiknað út af hinum vísu mönnum í valkostanefndinni, sem ég er nú ekki alls kostar ásáttur með, en það er önnur saga, en þeir reikna út, að þetta kosti rétt rúmar 1000 millj. á ársgrundvelli. Og það er talið, að það þurfi að afla ríkissjóði tekna upp á 1000 millj. kr., svo að hann geti staðið áfram við það að koma í veg fyrir víxlhækkanir verðlags og kaupgjalds, eins og gert hefur verið nú á seinni hluta ársins. En það er svo mikil spurning, hvort menn telja það að afla fjár upp á 1000 millj. einhver ósköp. Ég geri það ekki. Ég tók eftir því, að hæstv. fjmrh. gerði grein fyrir því, þegar hann lagði hér fram fjárlagafrv. fyrir næsta ár, að laun starfsmanna ríkisins samkv. frv. mundu hækka um tæplega 1000 millj. á árinu. Það var aðeins hækkunin, m.a. vegna þess, að opinberir starfsmenn eiga rétt á því að fá 1. marz n.k. 7% almenna launahækkun, og svo vegna þeirra samninga, sem áður höfðu verið gerðir við þá. Það þykir auðvitað alveg sjálfsagt að standa við þennan samning, og það verður að gera það. En ég held, að okkur eigi ekki heldur að verða skotaskuld úr því að afla fjár upp á 1000 millj. til þess að halda áfram þeim ráðstöfunum í verðlagsmálum, sem við höfum haldið uppi á þessu ári til þess að reyna að koma í veg fyrir víxlhækkanir verðlags og kaupgjalds.

Ég vil ekki gera úr þessu neinn stórvanda. Ég er hræddur um, að þeir viðreisnarmenn hefðu á góðu árunum sínum ekki talið þetta ýkjastóran vanda, — þeir, sem komu hér til Alþ. á svo að segja hverju einasta ári, í fjögur skipti í röð komu þeir með till. um að fella gengið, 1960, 1961, 1967 og 1968, og bara í tveimur síðustu sprettunum gerðu þeir hvorki meira né minna en það, að þeir hækkuðu verð á erlendum gjaldeyri um 100%. (Gripið fram í: Ráðh. fer nú vel af stað líka.) Ja, það verður að játast, að það er lítið, þetta sem við ætlum að gera, upp á 10.7%, miðað við það, sem þeir gerðu. En þeir gerðu miklu betur en þetta með gengislækkanirnar. Þeir komu flest árin með till. um það að hækka söluskatt. Þeir byrjuðu eitthvað í 3% og voru komnir upp í 11% og voru auðvitað á hraðri leið upp, ef þeir hefðu stjórnað áfram. Þeir eru að óskapast hér yfir millifærsluleiðum. Ég veit ekki betur en þeir hafi tekið upp á sínum tíma hvað eftir annað allmikilvægar millifærslur til framleiðsluatvinnuveganna. Og þeir auðvitað margfölduðu bæði tekjuskatta og aðra skatta á sínum stjórnartíma. Ég held, að þeir hefðu ekki verið hissa á því að leggja á einn lítinn skatt og ná sér í 1000 millj.

En hinn hluti af vandanum, sem við eigum við að glíma nú, er sá, að það þarf að styðja nokkuð við útflutningsframleiðsluna, sbr. þá útreikninga, sem fram fóru í okt. s.l., þegar frystihúsamenn og bátaeigendur fóru fram á viðbótarhækkun á fiskverði við fyrri samninga, og það var á það bent, að á ársgrundvelli, miðað við það sem sagt að standa við slíkt á heilu ári, þá hefði það átt að kosta í kringum 880 millj. En það er hægt að tala um það fram og til baka, hvort vandamál sjávarútvegsins eru 1000 millj. eða 1200 millj. eða 800 millj. Hagfræðingarnir, sem leitað hefur verið til, hafa reiknað út allar þessar tölur og lagt þær allar fyrir. Það fer nokkuð mikið eftir því, hvað þeir gefa sér í dæmið. T.d. aðaldæmið, sem liggur fyrir í valkostanefndinni, er miðað við það, að á næsta ári verði hækkun á útflutningsverði sjávarafurða, sem nemi 4%. Á þessu ári var hækkunin á milli 8 og 9% og á árinu á undan 25%. En þeir gefa sér það, að meðaltalshækkun á útflutningi verði 4%. Á það er svo bent, að langsamlega þýðingarmesta útflutningsvara okkar, sem er frosinn fiskur, langsamlega stærst, hefur þegar hækkað um 6% frá því, sem miðað var við, og árið er ekki byrjað enn. Við vitum um allmargar greinar í sambandi við útflutningsvörur, sem allar líkur eru til, að eigi eftir að hækka verulega í verði. En það er rétt, það er ríkjandi mikil óvissa um þetta. Við getum ekki sagt um það fyrir fram. Ég hygg, að það hafi fleiri heyrt en ég, að Samlag skreiðarverkenda skýrði frá því í útvarpinu fyrir nokkrum dögum, að þeir byggjust við, að framleiðsla þeirra hækkaði á milli 30 og 40% á næsta ári, og við vitum líka um vörutegund, sem við höfum nýlega samið um sölu á, og hún hækkaði um 50% frá því í fyrra. Það er, eins og ég segi, afskaplega erfitt að segja um það fyrir fram, hvað verðhækkunin verður mikil á næsta ári á okkar útflutningsvörum. Það er jafnerfitt og að segja til um það, hvað aflinn muni verða mikill. Við höfum séð það hjá þeim í valkostanefndinni, að þeir hafa sett upp töflur um það, ýmist að fiskaflinn muni minnka á næsta ári frá þessu lágmarki, sem hann var í þetta ár, eða þá að aflinn verði jafnmikill. En það er mjög mikill munur á þessu í þeirra útreikningum, eins og skýrslurnar sýna.

Ég skal alveg játa það, að það hefur verið minn háttur lengi, að ég hef verið heldur bjartsýnn í sambandi við rekstur sjávarútvegsins. Þó hefur það komið fyrir, að svartsýnin hefur náð tökum á mér. Ég er alveg hiklaust bjartsýnn miðað við horfurnar nú. En það er afar erfitt að slá einhverju föstu um það fyrir fram fyrir allt árið, hver útkoman verður. Ég tel því, að í aðalatriðum sé sá vandi, sem við er að glíma og við stöndum nú frammi fyrir, sá, að okkur vantar tekjur handa ríkissjóði upp á ca. 1000 millj. kr., svo að ríkissjóður geti haldið áfram að koma í veg fyrir verðhækkanir, eins og hann hefur gert að undanförnu, og í öðru lagi vantar okkur að færa yfir til útflutningsatvinnuveganna í kringum 1000 millj. kr. til þess að tryggja sómasamlega vel afkomu þeirra. En þá eru ýmsir, sem bæta hér við og segja: Já, en hvað er þá um framkvæmdaáætlun ríkisins, og hvað er þá um lánin úr öllum stofnlánasjóðunum? Þarf ekki að afla fjár til þeirra líka? Það liggur fyrir, að við höfum verið með mun meiri framkvæmdir á vegum framkvæmdaáætlunar ríkisins en var hér um langan tíma. Og heildarlánin hjá stofnlánasjóðunum eru mun meiri hluti af okkar áætlun en áður var. Það er engin veruleg hætta á ferðum, þó að við stillum þarna nokkuð í hóf og förum ekki eftir öllum stærstu óskum, sem fram koma um að geta fengið lán. Þeir, sem vilja mála hér skrattann á vegginn, þeir, sem eru búnir að prenta það í blöð sín, eins og formaður Alþfl., að allt sé í kalda koli, þurfa auðvitað að reyna að gera þennan vanda sem allra stærstan og segja: Þarna vantar 2000 millj., þarna 2000 millj. og enn 2000 millj., hér verður að gripa til stóra hnífsins.

Ég fyrir mitt leyti er ekki á þessari skoðun, Ég álit, að þjóðarbúskapur okkar í dag skili fullum afköstum og það sé ekki undan neinu að kvarta. Ég tel því, að þær till., sem ríkisstj. gerir nú í efnahagsmálum, séu þannig, að þær séu mjög miðaðar við það hóf, sem á því ætti að vera, hvað þarf að gera til eðlilegrar millifærslu. Það er alveg rétt — við Alþb.-menn höfum ekki verið hrifnir af gengislækkun og erum það ekki. Við vitum mætavel, að þær gengislækkanir, sem hér hafa verið framkvæmdar, hafa allar haft það að meginmarkmiði að skerða umsamin launakjör, Þeim hefur öllum fylgt það, að vísitalan væri tekin úr sambandi, en ekki látin mæla launþegunum að fullu, eins og þeir hafa átt samningsrétt til. Það er þetta meginatriði, sem gert hefur það að verkum, að launþegasamtökin í landinu eru yfirleitt á móti gengislækkunum, af því að þeim hefur beinlínis verið beitt til þess að hafa af mönnum það kaup, sem þeir hafa samið um. í till. ríkisstj. nú er að vísu gert ráð fyrir gengislækkun, lítilli gengislækkun, en það er gert ráð fyrir því, að vísitöluákvæði kaupgjaldssamninga haldist áfram eins og þau hafa verið og launþegar fái bætta þá verðlagshækkun, sem af gengislækkuninni leiðir. Á þessu er auðvitað grundvallarmunur.

Mér er það ljóst, að með gengislækkun er hægt að færa yfir til útflutningsframleiðslunnar ákveðna fjármuni. Það er líka hægt að færa ákveðna fjármuni yfir til útflutningsframleiðslunnar, án þess að um gengislækkun sé að ræða. Það hefur oft verið gert áður. Það er engin launung, að við Alþb.-menn hefðum frekar kosið að fara venjulega millifærsluleið. En við höfum gert samkomulag um, að fara þá leið, sem hér er lögð til, og við stöndum því að þessari leið alveg eins og aðrir í ríkisstj.

Það er rétt, sem hæstv. forsrh. sagði: Meginvandi gengislækkunar er fólginn í því, að gengislækkun leiðir af sér hækkandi verðlag. Og við viljum reyna að koma í veg fyrir hækkandi verðlag, eins og kostur er á. Það er vegna þess, sem ríkisstj. hugsar sér að gera ýmsar hliðarráðstafanir jafnhliða gengislækkuninni, sem miði að því að reyna að koma í veg fyrir of mikla hækkun á verðlagi. Þannig er það, að ríkissjóði mun verða séð fyrir þeim tekjuauka, sem hann þarf til þess að geta haldið áfram niðurgreiðslum, eins og hann hefur innt af hendi til þessa. Og það verður einnig reynt að sjá til þess með öðrum hliðarráðstöfunum, að hinir tekjulægstu í þjóðfélaginu, eins og t.d. hinir lægst launuðu bótaþegar almannatrygginga, ellilaunafólk og öryrkjar, fái nokkra viðbótargreiðslu við sín laun, af því, að við vitum, að kaupgjaldsvísitalan, þó að hún geti verndað þá, sem hafa verulegt kaup, þá verndar hún ekki nægilega vel þá, sem hafa sáralítið kaup. Við gerum líka ráð fyrir því, að námsmenn okkar erlendis fái sérstakar aukabætur, þannig að þeir geti fengið í erlendum gjaldeyri jafnháa fjárhæð og þeim hafði verið ætluð áður. Við gerum líka ráð fyrir því í okkar till., að samþ. verði heimild um það að lækka útgjöld á fjárlögum um 10–15% af ólögbundnum fjárveitingum. Á þennan hátt ætti að vera hægt að lækka útgjöld á einu ári um a.m.k. 500 millj. kr. Og við teljum, að þótt við færum nokkuð niður þær beiðnir, sem liggja fyrir frá hinum ýmsu lánasjóðum í landinu, þá sé engin hætta á því, að þeir geti ekki haldið áfram að lána til framkvæmda, á meðan þeir fá meira fé en þeir höfðu árið áður.

Ég veit, að hv. stjórnarandstæðingar munu hafa hér uppi mörg orð um það, að við, sérstaklega Alþb.-menn, höfum hingað til verið á móti gengislækkun, og við höfum oft lítið vandað þeim kveðjurnar, þegar þeir hafa staðið að sínum gengislækkunum. En slíkur lestur hefur ekkert að segja, hann breytir hér engu um. Það, sem hér skiptir máli, er það, að menn segi alveg hreinlega til um það, hvað af því, sem gerzt hefur í tíð núv. stjórnar, hafi verið rangt og eigi að dragast til baka. Ef stjórnarandstæðingar vildu koma fram með það alveg skýrt og greinilega, hvað þeir vildu fella niður af þeim útgjöldum, sem við höfum stofnað til, þá væri vissulega hægt að tala við þá. En eilíft fjas um það: Stefnan er röng, stefnan er röng, og skýra það svo ekki í neinu, það hefur lítið upp á sig.

Núv. ríkisstj. vinnur að því að byggja upp atvinnutæki landsmanna. Sú uppbygging hlýtur að eiga eftir að skila sér í aukinni framleiðslu í þjóðarbúið. Við treystum því. Sú stefna ríkisstj. að færa út fiskveiðilandhelgina leggur líka grundvöll að því, að framleiðslan geti orðið meiri. Sú stefna ríkisstj, að hafa vinsamlegt samstarf við launþegasamtökin í landinu og standa að því, að hægt sé að semja til tveggja ára og tryggja þannig vinnufrið, er allt önnur en hjá fyrrv. ríkisstj., þegar allt logaði í verkföllum á hverju ári og við töpuðum hundruðum þúsunda af vinnudögum á hverju ári, eins og skýrslur liggja fyrir um.

Sá vandi, sem nú er við að glíma í okkar efnahagsmálum, er minni háttar, og það eru allar líkur til þess, að við getum fljótlega komizt yfir þann vanda. Ég vil í þessu sambandi segja, að ég tel, að framkoma, sérstaklega foringja stjórnarandstöðunnar, hafi verið að undanförnu vægast sagt ábyrgðarlaus. Á örfáum dögum, sem liðið hafa síðan valkostan. skilaði áliti sínu, hafa blöð stjórnarandstöðunnar og foringjar stjórnarandstöðuflokkanna ekki sett sig úr færi á nokkurn hátt með því að hrópa út yfir landsbyggðina: Gengið verður fellt, það á að fella það svona og svona mikið, gengið verður fellt. — Auðvitað hefur þetta orðið til þess, að það hafa margir brugðið þannig við, svo sem vill verða, þegar menn eru gerðir hræddir í þessum efnum. En þá hafa þessir menn kunnað að leika hlutverk sitt bezt, þegar þeir koma beint ofan í svona framkomu og segja: Við erum nú að aðvara stjórnina, hún þarf að gæta að því, hvað gerist í þessum málum. — Dálagleg aðvörun það, að koma öllu úr skorðum á þennan hátt.

Okkur Alþb.-mönnum er það vel ljóst, að til þess að koma í veg fyrir ráðstafanir af því tagi, sem við stöndum nú frammi fyrir hér í okkar þjóðfélagi, en þær hafa nú mjög sótt á okkur, svo til árlega, þá þarf auðvitað út af fyrir sig að gera miklu meira en að færa til minni háttar fjármuni, það getur aðeins bjargað í bili. Það er enginn vafi á því, að okkar þjóðfélagsbygging er allt of dýr. Við eyðum allt of miklu á mörgum sviðum. Við höfum t.d. lagt til og núv. ríkisstj. hefur lýst því yfir í sínum stjórnarsamningi, að hún vilji vinna að því, að við sameinum banka í landinu og gerum bankakerfið einfaldara. Þessu máli hefur þokað það áleiðis, að það mun verða lagt fram frv. á þessu þingi um sameiningu bankanna. Okkur er líka ljóst, að það mætti spara stórfé með því að breyta skipulagi á olíusölunni í landinu. En það er ekki auðvelt að fá samkomulag um það, og mættu þeir í stjórnarandstöðunni vita allvel, hverjir hafa helzt staðið þar á móti. Það er líka enginn vafi á því, að það mætti gera hér skipulagsbreytingu á mörgum sviðum, sem gæti létt af okkur miklum kostnaði. En við gerum okkur það fyllilega ljóst, að þó að við séum í samstjórn með öðrum flokkum, að við munum ekki fá fram allar okkar till. og það á stuttum tíma, og við vitum, að þótt ríkisstj. væri mjög samstíga um það að gera þessar breytingar, þá tekur það alllangan tíma. Að þessu þarf vitanlega að vinna.

Ég skal nú stytta mál mitt, þó að freistandi væri að tala um miklu fleiri þætti þessa máls, en tíminn er naumur og málið þarf að nást fram, helzt af öllu í dag, og því skal ég ljúka máli mínu.

Ég efast ekki um, að þeim í stjórnarandstöðunni líður ósköp illa núna. Þeir misstu af því, að stjórnin félli. Þeir voru búnir að gera sér vonir um það, sumir munu jafnvel hafa verið farnir að taka sig til í tauinu í þeim efnum. En þetta hefur nú farið á hinn veginn. Við auðvitað getum sýnt þeim samúð í þessum efnum. Þeir verða enn að bíða.