18.12.1972
Neðri deild: 27. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1377 í B-deild Alþingistíðinda. (1005)
133. mál, ráðstafanir vegna nýs gengis íslenskrar krónu
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Dálítið er það nú sérkennilegt, þegar forustumenn hv. stjórnarandstöðuflokka tala um þetta mál, en lýsa ekki andstöðu sinni, svo að menn skilji a.m.k., við það frv., sem hér er til umr., við gengisfellinguna. Það skyldi þó ekki vera, að þeir væru með málinu þrátt fyrir allt sitt tal.
Öllum er ljóst, sagði síðasti hv. ræðumaður, hv. 7. þm. Reykv., að góðæri er í landinu. Og þetta er hverju orði sannara. Hér ríkir ekkert neyðarástand, engin upplausn, hversu mörg orð sem um það eru höfð. En það er skoðun þeirra, að það eigi aldrei að framkvæma gengislækkun nema í neyðarástandi. Ég álít, að það sé alrangt. Þeir hafa safnað saman neyðinni í stóran drelli og síðan, þegar allt hefur verið komið í strand, hafa þeir komið með gengislækkun, risavaxna gengislækkun, sem hefur umturnað öllu í þjóðfélaginu, og það hefur verið þeirra sterka mixtúra og endurtekin a.m.k. fjórum sinnum. Ég álít, að það sé miklu skynsamlegra að framkvæma gengislækkun og aðrar efnahagsmálaaðgerðir undir eðlilegum kringumstæðum og beita henni sem hverju öðru hagstjórnartæki, án þess að komið sé alveg fram í rauðan dauðann, í algert neyðarástand. En þetta hefur verið þeirra aðferð, og þetta mundi verða þeirra aðferð, ef þeir sætu aftur í valdastólum, sem sennilega verður ekki í bráð.
Ein setning var í ræðu hv. 7. þm. Reykv. um það, hvað þeir vildu gera, Alþfl: menn. Þeir mundu vilja hafa aðferðina hans Emils hérna um árið, þ.e.a.s. vissa útgáfa af niðurfærsluleið. Ég get lýst því yfir, að þessi leið var vandlega skoðuð í núv. ríkisstj. Hún var meðal þeirra leiða, sem sérfræðinganefnd ríkisstj. í efnahagsmálum taldi koma til greina. En þá lá ekki fyrir yfirlýsing hv. 7. þm. Reykv., kannske gefin fyrir hönd Alþfl. í heild. Stjórnarliðið kannaði það og fékk ekki þingmeirihl. meðal stjórnarflokkanna fyrir að fara þessa ágætu niðurfærsluleið, sem byrjar á því að lækka kaupgjald í landinu og öll launamál og reynir síðan að halda verðlagi í sömu hlutföllum og lækka verðlag að sama skapi. Að öðrum kosti væri leiðin a.m.k. ekki hagstæð launastéttunum, ef mikil kjaraskerðing yrði, launin skorin niður, en verðlagsbreytingarnar færu ekki niður á við að sama skapi á eftir. Það var þess vegna lokuð leið fyrir núv. stjórnarflokka, nema því aðeins að yfirlýsing hefði legið fyrir um það, að Alþfl. gæti veitt henni stuðning í heild. Við áttum ekki von á slíku stórhappdrætti upp á borðið hjá okkur og urðum því að afskrifa þessa niðurfærsluleið. Hún var ekki framkvæmanleg að okkar mati.
Hér var því haldið fram, af hv. 7. þm. Reykv., að minnsti flokkurinn í ríkisstj. hefði kúskað hina flokkana til þess að fara inn á sína leið. Ég get sagt ykkur það, að hér hefur enginn verið kúskaður. Við höfum rætt þær leiðir, sem mögulegar voru taldar af sérfræðingum, sem ríkisstj. hafði kvatt til, og við höfum litið á þær till., sem stjórnarflokkarnir höfðu hver um sig borið fram. Við höfum sett þær undir sérfræðingamat og samstarfsflokkar mínir og minn flokkur litið á allar till. og litið síðan opnum augum á samanburðarniðurstöður sérfræðinga, þ. á m. hagrannsóknastjóra, og komizt að sameiginlegri niðurstöðu. Þetta eru öll ósköpin. Það var beitt þarna skynsamlegum vinnubrögðum og litið á alla möguleika, sem fyrir lágu, og síðan tekin ákvörðun innan mjög skamms tíma. Það er í dag, held ég, hálfur mánuður síðan nál. sérfræðinganefndarinnar lá fyrir. Þá fórum við að skoða þau plögg, bækurnar tvær, og það er vika í dag, held ég, síðan flokkur minn lagði fram till. sínar um aðgerðir í efnahagsmálum, sem voru eins og allir vita, um að fara gengislækkunarleið að meginstofni. Það hefur ekki tekið okkur lengri tíma en þetta að rífast um þetta, af þeirri einföldu ástæðu, að það hefur ekkert verið rifizt. Málin voru athuguð, rædd gaumgæfilega, og síðan komumst við að sameiginlegri niðurstöðu. Það, sem liggur hér fyrir, 10.7% gengislækkun, er sameiginleg niðurstaða allra stjórnarflokkanna, ríkisstj. í heild. (Gripið fram í: Hver setti þær kröfur fram?) Ég var að enda við að segja, að það hefði verið minn flokkur, sem hefði lagt fram till. í ríkisstj. um að leysa efnahagsmálavandann að meginstofni með gengislækkun. Ég játa alveg á mig glæpinn, ef glæpur er.
Hv. 7. þm. Reykv. sagði, að það væru alger pólitísk fataskipti, sem hér hefði gerzt. Flokkar, sem aðhylltust millifærsluleið, hefðu sætt sig við gengislækkunarleið. Ég er nú hræddur um það, að Alþfl. hafi einhvern tíma á 12 ára samstarfstímabili við Sjálfstfl. orðið að fara úr sokkum, kannske úr buxum líka, til þess að fara inn á þær leiðir, sem Sjálfstfl. lagði til og taldi nauðsynlegar, þótt þær samrýmdust kannske heldur illa stefnu Alþfl., svo að pólitísk buxnaskipti eru ekkert nýtt fyrirbæri hér hjá fleiri en þeim, sem nú sitja í valdastólum. Það kann að hafa gerzt einhvern tíma áður, og það gæti verið, að hér væri að gerast það, sem Tryggvi heitinn Þórhallsson kallaði, að sagan endurtæki sig. — Þetta var nú aðallega í tilefni af því, sem hv. 7. þm. Reykv. sagði hér áðan. Það var mér efst í huga, og því taldi ég rétt að hefja mál mitt á því.
Það er því eitt atriði, sem ég vil víkja að í tilefni af hans ræðu. Hann talaði um, að hér væri að hefjast nýtt stríð, þ.e.a.s. helstríð núv. ríkisstj. Það er ekki gott að segja, hvort hann hefur rétt fyrir sér í þessu eða ekki. Það er margur talinn dauðvona og dauður, sem verður allra karla elztur, svo að ég veit ekki, hversu spádómsgáfa hans að þessu leyti endist. En reynslan sýnir það. Það eitt er víst, að úr því að hann segir, að þetta sé upphafið að endalokum núv. stjórnar, þá er hann, að því er virðist, enn þá vonbetri um, að það kunni að vera lausir stólar handa honum og hans félögum og samstarfsmönnum innan skamms. En þær vonir eru ekki orðnar að veruleika.
Það, sem gerzt hefur í þessum málum, er, eins og öllum er kunnugt, að í júnímánuði s.l. skipaði ríkisstj. Íslands n. sérfræðinga til þess að athuga þann vanda í efnahagsmálum, sem við blasti og kynni að blasa við fram á árið 1973. Ég held, að það sé óhætt að fullyrða, að þessir sérfræðingar njóta mikils trausts í öllum stjórnmálaflokkum og eru líklega úr öllum stjórnmálaflokkum. Þeir tóku að sér þetta verk, unnu það og skiluðu miklu og góðu verki að mínu mati. Og það, sem merkilegt var, þeir urðu allir sammála um, hvaða leiðir væru fyrir hendi. Þeim var ekki falið að gera till. um, hvaða leiðir skyldu farnar, en þeir áttu að gera grein fyrir, hvaða leiðir teldust færar til lausnar á þeim efnahagsvanda, sem við blasti. Þeim var gert ljóst, að þeir ættu að finna leiðir, sem fullnægðu ákveðnum markmiðum. Þar var sett allra efst á blað að finna leið, sem fullnægði því markmiði, að full atvinna héldist í landinn. (Gripið fram í.) Jú, það er rétt, það dróst nokkuð, að þeir gætu lokið sínu verki. Þeir gerðu sér lengi vonir um, að þeir gætu lokið verkinu að lokinni fyrstu viku nóv., en það dróst nokkuð fram yfir þann tíma, og þeir skiluðu ekki nál. sínu endanlega fyrr en í byrjun þessa mánaðar. Það tel ég, að hafi ekki verið neinn óeðlilegur dráttur, þó að æskilegt hefði verið, að þeirra merku gögn hefðu legið fyrir eitthvað fyrr. Þegar þessi sérfræðinganefnd hafði afhent sitt mikla nál., skoðuðu ríkisstj.- flokkarnir það og sögðu til um, hvaða leið þeir vildu fara. Þeir lögðu fram sínar till.
Það er öllum kunnugt, að hæstv. forsrh. lagði fram till., þar sem lagt var til, að aðalvandi efnahagsmálanna yrði leystur með hækkun söluskatts úr 11%, eins og fráfarandi stjórnarflokkar skildu við hann, — Ég held, að þeir hafi byrjað með hann 3–4%, — og forsrh. lagði til, að hann yrði hækkaður í 16%. Með þessu var ætlunin að afla meginstofnsins af því fjármagni, sem þurfti að færa til í þjóðfélaginu 23–25 þús. millj. kr. Alþb. lagði svo nálega samtímis fram sínar till., sem gerðu ráð fyrir, að aðaltekjuöflunin yrði með tvennu móti, með innflutningsgjaldi á um það bil helming innflutningsins og að nokkru leyti með söluskatti. Minn flokkur tjáði sig, þegar hann hafði athugað þessar till., vera andvígan þeim báðum. Það er alkunnugt, að verkalýðshreyfingin hefur ekki hrópað neitt húrra fyrir söluskatti sem tekjuöflunarleið. Það hefur verið viðurkennt, að söluskatturinn, sem leggst á allar vörur og hækkar þannig verðlag engu síður en gengisbreyting, leggst einna þyngst á þá, sem lágar tekjur hafa og verja nálega öllum tekjunum til kaupa á brýnustu lífsnauðsynjum. Um innflutningsgjaldið er það að segja, að það leggst við innkaupsverðið á vörunum og er þannig í eðli sínu sama eðlis og gengislækkun. Slíkt innflutningsgjald mundi aldrei verða afnumið aftur, nema með því að skrá það saman við innflutningsverðið og þannig færa það upp í nýtt gengi, þ.e.a.s. þetta er skref í áttina til gengisfellingar. Þessu höfnuðum við hvoru tveggja. En þá stóð auðvitað skákin á okkur, og okkur var sagt: Komið þið þá með ykkar till. — Og það gerðum við. Við unnum í því yfir eina helgi og lögðum fram till. okkar í 10 liðum, og síðan var sú till. ásamt hinum tveimur til skoðunar í ríkisstj. Enginn hafði sett þessar till. sínar fram sem úrslitakosti, það er alrangt, þó að því hafi verið haldið fram í blöðum. En þær lágu þarna allar fyrir á borðinu hjá okkur og voru okkar umræðugrundvöllur í nokkra daga. Okkar till. fól í sér aðalfjáröflun gegnum gengislækkun. Ég tek það enn fram, ef einhver skyldi hafa fengið sér blund í salnum og ekki heyrt það áðan. Ég hef þegar sagt frá því, að sérfræðingar voru látnir fara yfir allar þessar þrjár till. og gera á þeim nákvæman samanburð, og sá samanburður kom okkar till. nokkuð í vil og mun hafa átt sinn þátt í því, að meðráðh. mínir féllust að lokum á að fara að meginstofni þessa leið.
Gengislækkunin nú er sett undir nokkuð eðlilegum kringumstæðum. Það er ekkert neyðarástand ríkjandi. Hún er þess vegna ekki nema 10.7%, sem þýðir að gjaldeyririnn hækkar um 12%. Ég játa að vísu, að við hefðum talið varlegra að skrá gengið 15–16%, en þá er þess að gæta, að með í þessari leið er það, að nú verður að hætti margra annarra þjóða aukið svigrúm um skráningu gengis, þannig að nú verður frjálst, ef þetta frv., sem hér liggur fyrir, verður samþykkt, að skrá gengið 2.25% yfir meðalgengi og 2.25% niður á við. Þannig verður meira svigrúm en áður hefur verið, og getur það stuðlað að því, að hægt sé að komast af með skráningu rétt við 11%. Ég hefði talið — ég játa það hreinskilningslega — hitt varfærnislegra. En vitanlega leikur sér enginn að því að ákveða meira gengisfall en fallizt er á, að sé alveg bráðnauðsynlegt.
Vitanlega var enginn af þessum leiðum né leiðunum, sem sérfræðinganefndin taldi færar, neinn fagnaðarboðskapur. Það kemur við í þjóðfélaginu að þurfa að færa til um 3000 millj. Frá einhverjum verður að taka þær, úr því að þær eiga að koma til einhvers aðila. En ég álít, að með gengisfellingu gerist þetta með eðlilegustum hætti, nokkurn veginn sjálfkrafa, án þess að setja upp neitt „apparat“ til þess að koma fénu til þeirra aðila, sem eiga að fá það.
Hverra kosta var völ? Það var niðurfærsluleiðin, sem ég hef þegar rætt um og sagt frá, á hverju strandaði, að mati okkar í stjórnarflokkunum. Hún var ekki talin fær að mati okkar né verkalýðshreyfingarinnar. Millifærsluleiðin var sú, sem sérfræðingarnir höfðu einnig tekið í mál að fara. Teknanna yrði þá aflað með sköttum og dýrt úthlutunarkerfi sett á stofn til að koma þessu fé í réttar hendur, — áður þrautreynd leið og vafasamt um réttmæti hennar í framkvæmd. Ósamræmi skapast tiltölulega fljótt við framkvæmd hennar, hversu réttlátlega sem menn reyna að framkvæma hana, og nauðsyn er á að leiðrétta ósamræmið, sem myndazt hefur, eftir lengri eða skemmri tíma með gengislækkun. Af þessu höfum við reynslu. Við höfum því reynslu af því, að millifærsluleiðir, þó að þær séu enn þá teknar í mál, af sérfræðingum, skapa fleiri vandamál en þær leysa. Og það var ekki ætlunin að vera með í neinum slíkum dansi.
Þá var aðeins ein leiðin eftir, ekkert sælgæti kannske, gengislækkunarleiðin. En þegar ég og mínir flokksmenn vorum búnir að sannfærast um, að þetta væri skásta leiðin af þeim, sem um væri að ræða, hikuðum við ekki við að fara hana, þótt við vissum, að það væri illur keimur af hugtakinu gengislækkun. Hún mælir þó útflutningsatvinnuvegunum hlutfallslega eftir framleiðslumagni, án þess að nokkurt „apparat“ sé sett til þess að framkvæma það. Það voru allir í valkostanefndinni, — ég kalla það sérfræðinganefndina, — sammála um, að þessi leið, sem þeir kölluðu uppfærsluleiðina, — ég sé enga ástæðu til að nota það nafn, ef það væri skilið þannig, að menn væru að dulbúa gengislækkunina með öðru nafni, — tryggi bezt af þeim leiðum, sem fyrir hendi voru, fulla atvinnu í landinu. Það er stærsta krafa verkalýðshreyfingarinnar, eins og allir geta skilið. Ég get því lýst yfir, að ég vel þessa leið með beztu samvizku, hvað sem hver segir, og tek afleiðingunum af því.
Þessari leið okkar fylgja aðrar minni háttar aðgerðir, eins og hér hefur verið nefnt í umr. Það er áformað að hækka áfengi og tóbak. Það þarf a.m.k. ekki að fara djúpt ofan í hvers manns buddu, þó að slíkt sé gert. Því ræður fólk sjálft, og þetta á að gefa um 350–400 millj., ef menn taka ekki upp á því fangaráði að láta vera að drekka og reykja, sem er mönnum alveg frjálst, þegar verðið er skrúfað upp á vörunni. Þá er og lækkunarheimild á ólögbundnum gjaldaliðum fjárl., sem ætti að lækka útgjöld ríkissjóðs — menn gera sér vonir um 500 millj. Ég tel það alveg sjálfsagða aðgerð sem lið í þessu. Einnig munu verða gerðar ráðstafanir til að lækka tekjuskattsbyrði á hinum lægst launuðu í landinu og leitað samninga við verkalýðshreyfinguna og nokkur önnur félög um það atriði. Ætlunin er t.d. að fara fram á það við verkalýðshreyfinguna, að hækkunin á áfengi og tóbaki hafi ekki áhrif á vísitölu, þar sem hér er ekki um almenna neyzluvöru að ræða, a.m.k. ekki almenna nauðsynjaneyzluvöru. Það fylgir ekki beint með í þessum aðgerðum, að lagt verður gjald á benzín og þungaskattur hækkaður. Það er ekki gert til þess að leysa dæmi ríkissjóðs og ekki vegna fjárfærslunnar til útflutningsatvinnuveganna, heldur fer hver einasta króna, sem með þeim hætti verður aflað, beint í vegasjóð til þess að fyrirbyggja, að dregið sé úr framkvæmdum í samgöngumálum.
Menn hafa talað um, að verzlunin hafi oft auðgazt á gengislækkunum. Hún hefur verið beitt svokallaðri 30% reglu, unað henni illa, talið hana sér óhagstæða og þrönga, en samt látið kyrrt liggja. Ég held, að þar sem við ákveðum að fylgja henni gagnvart verzluninni, þá sé ekki ástæða til að þrengja meira að henni í sambandi við slíka gengislækkun, sem hér er um að ræða, og hún fái engan gróða af henni.
Ég held, að menn verði líka að taka það með í reikninginn, að hér er að nokkru leyti um allt aðra aðferð við gengislækkun að ræða en viðhöfð befur verið. Það var tekið fram hér áðan og er ástæða til að endurtaka það, að allar gengislækkanir, sem áður hafa verið framkvæmdar, hafa verið framkvæmdar með þeim hætti að kippa vísitölunni úr sambandi og láta þannig launþegana bera meginhlutann af byrði gengislækkunarinnar. Þessu er ekki svo farið nú. Það er ætlunin, að launþegar fái vísitöluna greidda á laun sín, og gerir það gengislækkunina í raun og veru allt annars eðlis, að því er snertir allar launastéttir landsins. Með því að taka vísitöluna úr sambandi, var í raun og veru verið að taka af verkafólki og öðrum launþegum í landinu og færa beint af þeirra launum yfir til sjávarútvegsins og annarra útflutningsatvinnuvega. Þetta verður ekki gert að þessu sinni. Auk þess hefur það þýðingu í málinu, að hér er aðeins um gengislækkun að ræða, sem er brothluti af því, sem framkvæmt hefur verið hverju sinni áður.
Nú vil ég segja það, að þeir, sem eru á móti öllum þessum leiðum, sem hér hafa verið nefndar, og þá kannske alveg sérstaklega á móti þeirri leið, sem ríkisstj. hefur valið, gengislækkunarleiðinni að meginstofni, eru að mínu áliti skyldugir til að koma með einhverja þá leið, sem þeir geta sýnt fram á, að sé færari og hagkvæmara að fara en þá, sem valin hefur verið. Undan þeirri skyldu komast þeir ekki. Hver er sú kjörleið, sem þeir hafa? (Gripið fram í: Stjórna betur.) Þessum orðum beini ég ekki aðeins til Sjálfstfl. og Alþfl, sem núverandi stjórnarandstöðuflokka, heldur einnig til hins nýja þingflokks, sem hefur hér orðið til í dag og er skyldugur til að koma með sínar till. til lausnar á þessum málum eins og hinir. — Stóll þingflokksins er auður.
Þegar ég og mínir samflokksmenn vorum að velja milli þeirra leiða, sem teknar höfðu verið í mál, komumst við raunar að þeirri niðurstöðu, að valið væri ekki mjög vandasamt, því að hér væri aðeins verið að velja á milli dulbúinna gengislækkunarleiða og hreinnar og beinnar gengislækkunar. Ég er nú einu sinni þannig gerður og mér hefur alltaf gefizt það vel að fara heldur beint framan að kjósendum en krókaleiðir að þeim. Það með öðru gerir auðveldara fyrir mig að velja þá leið, sem gekk beint framan að kjósendum og þeir gátu dæmt um þegar í stað, gengislækkunarleiðina með engum umbúðum, engum öðrum nöfnum, hvorki söluskatti né innflutningsgjaldi eða neinu öðru, því að það voru auðvitað hvort tveggja dulbúnar gengislækkunarleiðir.
Menn hafa hér verið að gera að gamni sínu um það, að menn hafi áður fortekið, að þeir yrðu nokkurn tíma með gengislækkun eða tækju þátt í að beita henni. Jú, það kann að vera, að einhverjir hafi fullyrt þetta. En ég held nú samt, að það verði heldur erfitt fyrir menn að finna, að ég hafi fordæmt gengislækkun undir öllum kringumstæðum. Ég hef stundum barizt á móti gengislækkun hjá fyrrv. stjórnarflokkum, og ég tel, að stundum hafi þeirra gengislækkanir verið ótímabærar. Þannig hafi verið full ástæða til þess stundum að berjast á móti þeim. Gengislækkanir geta verið sjálfsagðar efnahagsaðgerðir. Þær geta líka verið allsendis ótímabærar. Það er þess vegna engin smán fyrir nokkurn mann að hafa eftir atvikum barizt fyrir gengislækkun eða barizt á móti. Það verður að líta á aðstæður. Og hv. 7. þm. Reykv. sagði hér áðan, að gengislækkanirnar, sem þeir hefðu framkvæmt áður, hefðu verið allt annars eðlis en þessi og undir allt öðrum kringumstæðum framkvæmdar. Vitanlega ber fyrst og fremst að líta á aðstæðurnar. Ef aðstæður hafa breytzt, þá geta menn komizt að allt annarri niðurstöðu, og ég held, að það sé haft eftir hinum mikla meistara sósíalismans, Lenin sjálfum, að ef aðstæður breyttust 365 sinnum á einu ári, þá væri hann reiðubúinn til þess að skipta um skoðun 365 sinnum á því sama ári. Hvað þá um minni spámenn? (Gripið fram í: En skipta þeir oft um skoðun?) Já, ég jafna þeim ekkert á við Lenin. Nú spyr ég: Sjálfstfl. hefur beitt gengislækkun, Alþfl. hefur beitt gengislækkun, og nú er tekið í mál að beita gengislækkun. Eru þeir búnir að skipta um skoðun? Kannske. Aðstæðurnar eru allt aðrar. Þetta er framkvæmt undir allt öðrum kringumstæðum. En ef það opnar þeim leið til þess að skipta um skoðun, því þá ekki öðrum?
Það er vissulega verið að framkvæma gengislækkun hér með öðrum hætti. Það er verið að taka upp nýja aðferð við gengisskráningu. Það er verið að taka upp sveigjanlegri gengisskráningu en hér hefur ríkt og verið lagaákvæði um, og það er mikils virði. Það gerir gengislækkun, sem þannig er framkvæmd, nokkuð annars eðlis en þær gengislækkanir, sem fyrrv. stjórnarflokkar framkvæmdu.
Hv. 1. þm. Reykv., Jóhann Hafstein, spurði: Hvers vegna gengislækkun nú? Því er fljótsvarað. Við erum, stjórnarflokkarnir, að nokkru leyti valdir að þessari gengislækkun, það skal alveg fyllilega játað. Við höfum staðið að geysimikilli kauphækkun í landinu. Þá var áður að vísu af fyrirrennurum okkar búið að framkvæma geysilega launahækkun hjá öllum opinberum starfsmönnum. Það var erfitt fyrir okkur að láta hlut verkafólksins í landinu eftir liggja eftir slíka aðgerð, sem fyrrv. stjórn hafði gert á launakerfi opinberra starfsmanna. Þetta var því sjálfsögð aðgerð, við vorum skyldugir til þess að framkvæma hana og gerðum það í samstarfi við verkalýðshreyfinguna. En yfir 30% kauphækkun í einu er stórt stökk og leggst auðvitað sem byrði á framleiðsluatvinnuvegina í landinu. Við höfðum líka horft upp á það, að hlutur sjómanna var of rýr. Það var komið upp það vandamál, að ekki fengust menn á skipin. Og hvar erum við þá staddir? Hvað á þá að gera? Þá verður að hækka fiskverð og bæta þannig lífskjör sjómanna. Það gerðum við. Það hefur kannske orðið samtals um 30% fiskverðshækkun, síðan við tókum við. En þar var nauðsynleg aðgerð, því að öll efnahagsmál íslenzka þjóðfélagsins byggjast á framleiðsluatvinnuvegum okkar og fyrst og fremst á sjávarútveginum. Við framkvæmdum styttingu vinnuvikurnar um 4 stundir, úr 44 í 40, af því að fyrirrennarar okkar í stjórnarstólum höfðu lögfest 40 stunda vinnuviku hjá því fólki í landinu, sem léttustu störfin vinnur. Þá var ekki auðvelt að láta hlut verkafólksins eftir liggja, þess, sem þrælar við erfiðustu störfin. Ég játa, að það hefði verið hyggilegra að dreifa þessu á tvö ár, kannske á fjögur ár, stytta vinnutímann um eina klst. á ári næstu fjögur árin. Það hefði verið ærin þjóðfélagsbreyting samt. En þetta kemur einkanlega fram hjá sjávarútveginum og fiskiðnaðinum sem launagreiðsla. Þá kemur fyrir greiðsla yfirvinnukaups með 50% álagi og nætur- og helgidagavinnukaups með 80% álagi. Þegar maður lítur á það frá sjónarmiði atvinnurekandans, er þetta auðvitað íþynging í launagreiðslum, og þetta kemur líka á sjávarútveginn. Hér er því um það að ræða, að við erum búnir að þyngja byrðar framleiðsluatvinnuveganna verulega til hagsbóta fyrir hið vinnandi fólk í formi launagreiðslna, styttingar vinnutíma og fiskverðshækkunar, og það hefur auðvitað enginn möglað gegn því. Þetta eru allt saman góð mál. En góðu málin eru oft ekki nefnd, eftir að þau eru orðin að veruleika. Svo kemur nokkur rýrnun aflamagns hjá útveginum, og þá standa menn frammi fyrir því, að þeir ná ekki endum saman. Það þykir fullkannað. Það er ekki bara þeirra uppgjör, að þeir ná ekki endum saman, það þykir sannað mál. Hvað á þá að gera? Það verður að færa fjármagn í þjóðfélaginu til, til þessara undirstöðuatvinnuvega landsmanna, sem allir lifa á. Það erum við að gera. Það er ekki til neins að neita þeirri staðreynd, að um aflabrest er að ræða, og það er það, sem sker úr um, að endarnir nást ekki saman tekna- og gjaldamegin.
Úr þessum vanda ætlar ríkisstj. að bæta með því að skrá gengið um 10.7% niður á við. Ég heyrði, að hv. 1. þm. Reykv., Jóhann Hafstein, taldi, að þessi gengislækkun væri í knappasta lagi, og hún er það vafalaust. Hún ofætlar ekki fjármagnstilfærslunni á fyrsta stigi. Ríkisstj. telur, að á vetrarvertíðinni, meðan kostnaðarliðir eru ekki farnir að þokast verulega upp á við og útgjaldaliðirnir þannig ekki farnir að rísa að marki, sé hægt að komast af með lægri fjármagnstilfærslu til útvegsins, og skoðun hennar er, að þetta kunni að duga. Þeir, sem gera út á sumarvertíð, gera út við aðrar kringumstæður, minni aflavon, smærri fisk, dýrari í vinnslu oft og tíðum, og þá er frekar farið að koma fram verðhækkun innfluttrar vöru. Samt höfum við gengið inn á þetta, ég og mínir samflokksmenn, að skrá gengið um 10.7% niður á við, en svo er opnuð sú leið, að svigrúmið verði 2.25% upp á við og niður á við með breyttri gengisskráningu, og lagaheimild þar til. En ég játa, að þetta muni vera algerlega í neðra kanti þess mögulega, til þess að dæmið sé leyst. Ég held hins vegar, að það hefði enginn sagt neitt við því, þó að gengið hefði verið skráð t.d. 12% og möguleikarnir staðið opnir um 2.25% upp fyrir það, ef eitthvað bjátaði á í sjávarútveginum frá því, sem nú er reiknað með.
Ég skal ekki hafa þessi orð mín fleiri. Við höfum farið fram á, að málið fái afgreiðslu án tafa og megum þá ekki tefja fyrir því sjálfir. En ég lýk máli mínu með því að segja: Þið, sem áður hafið farið gengislækkunarleiðir, gerið það upp við ykkur, hvort þið eruð nú allt í einu á móti gengislækkun, svo lítilli gengislækkun, að þið hefðuð aldrei tekið í mál neitt slíkt. Kannske þið segið bara: Hún er svo lítil, að það tekur því ekki. Okkur þykir skömm að henni, hún er svo smánarlega lítil. — Það væri hægt að búast við slíku af þeim, sem hafa verið með gengislækkun upp í 10–50% og þaðan af meira. Þið, sem hafið önnur úrræði en gengislækkunarleið, verð ekki svo hæverskir og hlédrægir, að þið liggið á góðum úrræðum og látið þau ekki koma fram. Berið þau hér fram og leggið þau fram á þinglegan hátt í tillöguformi, svo að við missum ekki af neinum kjörleiðum, sem vera kynnu til, áður en við afgreiðum þetta á þann hátt, sem ríkisstj. leggur til. En ég verð að segja það, að ef þið hv. stjórnarandstæðingar hafið verið undrandi á því, að þeir menn, sem áður hafa fortekið að fylgja gengislækkun sem efnahagsmálaúrræði, standi nú að gengislækkunarfrv., held ég líka, að ýmsir meðal landslýðsins yrðu dálítið hissa á því, ef Alþfl. og Sjálfstfl. — og nýi þingflokkurinn — gætu nú með engu móti talið forsvaranlegt að lækka gengið um 10.7%.