19.12.1972
Efri deild: 29. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1413 í B-deild Alþingistíðinda. (1021)
32. mál, loðna til bræðslu
Oddur Ólafsson:
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, lögðum við einróma til í sjútvn., að yrði samþ. óbreytt. Mér er fullljóst, að það er vaxandi áhugi á loðnuveiðum hér við land og miklar vonir eru bundnar við næstu vertíð. Þetta byggist m.a. á spám fiskifræðinga um vaxandi loðnumagn við landið og af reynslunni síðasta ár. Einmitt á síðasta ári kom fram, eins og getið hefur verið, að miklir annmarkar voru á löndun, mikil löndunarbið og magnið þess vegna miklu minna, sem á land kom, þar eð verulegur hluti fiskiflotans þurfti að liggja í höfnum og bíða eftir löndun. Loðnan er, eins og við vitum, bundin við ákveðin svæði við landið, veiðin hefst við Austfirði, færir sig síðan suður og vestur með landinu, þannig að vinnslusvæðin eru aðallega þrjú, þ.e.a.s. Austurlandið fyrst, síðan Suðurlandið og þá Faxaflóasvæðið.
Það, sem hefur áhrif á loðnuveiðina og þá einnig á það væntanlega aflamagn, sem mun koma úr sjónum á næstu vertíð, er í fyrsta lagi magnið í sjónum og hvenær vertíðin getur hafizt af fullu afli, hvar loðnan heldur sig á hverjum tíma og þá er einnig mikið atriði hjá okkur gæftir og veðurfar, stærð flotans og hve lengi fram eftir vori loðnan veiðist. Vinnslumöguleikarnir eru aðallega á Austfjarðahöfnunum, í Hornafirði, Grindavík og Vestmannaeyjum, síðast á Faxaflóasvæðinu. Þróarrými er mjög mismunandi á þessum stöðum og einnig vinnslugetan.
Ég ætlaði að gera nokkuð að umtalsefni loðnusvæðið við Suðvesturlandið. Þar eru fyrst og fremst Vestmannaeyjar, Þorlákshöfn og Grindavík, sem um er að ræða sem löndunarstaði. Þar er hún venjulega lengst, og þar veiðist mest magnið. Þess vegna hlýtur að vera áríðandi að geta skapað á þessu svæði sem mesta vinnslumöguleika og mesta móttökumöguleika. Vestmannaeyjar liggja bezt við þessu svæði: Þangað leita skipin helzt, vegna þess að þangað er stytzt í höfn. Hins vegar hafa Þorlákshöfn og Grindavík þá sérstöðu, að þaðan eru auðveldar samgöngur á landi til vinnslustöðvanna við Faxaflóa, og þar sem nú er væntanlega mikil verðmætaaukning í loðnu, skapast e.t.v. möguleikar til þess að nýta Faxaflóaverksmiðjurnar fyrr og betur en gert hefur verið hingað til. Ég hef þá skoðun, að sá tími sé að koma, að hægt sé að flytja loðnu á bílum frá Þorlákshöfn og Grindavík til bræðslustöðvanna í Sandgerði, Keflavík, Hafnarfirði og Reykjavík og þetta geti þýtt það, að bræðsla geti hafizt á þessum stöðum miklum mun fyrr en ella og þar af leiðandi orðið um meiri afkastagetu flotans í heild að ræða. Væri þetta flutningakerfi sett í gang, þýddi það að sjálfsögðu, að gera yrði útboð og hlíta beztu samningum um flutningsgjöld. Enn fremur þyrfti að koma upp vissri aðstöðu í Þorlákshöfn og Grindavík, þannig að veiðiskipin gætu landað í síló og bílarnir síðan tekið á sig úr þessum sílóum. Með þessu móti, held ég, að hægt væri að koma akstursgjaldi niður í 25 aura á kg, sem þó er að sjálfsögðu við núverandi verðlag.
Þetta mundi hafa það í för með sér, að flotinn nýttist miklum mun betur á loðnuvertíðinni heldur en hann hefur gort að undanförnu, einkum meðan loðnan heldur sig eingöngu austan Reykjaness. Þar að auki mundi þetta verða mikið öryggisatriði fyrir flotann, vegna þess að skipstjórar mundu þá losna við að sigla drekkhlöðnum bátum sínum gegnum Reykjanes- og Skagarastir um háveturinn. Loðnuvertíðin varir þann tíma, sem einna minnst er að gera hjá stórum vörubifreiðum og vörubifreiðum með aftanívagna, og ég tel, að það sé mjög hagstæður tími til samninga við þessa aðila um flutninga í stórum stíl á þessum fiski. Með þessum vinnubrögðum ætti bræðsla að geta hafizt við Faxaflóa miklum mun fyrr en ella og aflamagnið að vaxa, svo framarlega sem loðna er til á miðunum.
Það er mikill viðbótarkostnaður, sem verksmiðjurnar hafa þurft að greiða undanfarin ár, þegar þær hafa þurft að flytja loðnuna fyrst frá skipi og á tún eða í hraun eða jafnvel í bráðabirgðaþrær fjarri verksmiðjunum og síðan moka henni upp og flytja hana í verksmiðjuþrærnar. Þar við bætist svo hin gífurlega rýrnun, sem verður við það, að loðnan er fyrst flutt á þessa bráðabirgðastaði.
Frv., sem hér um ræðir, er örugglega til mikilla bóta varðandi loðnuveiðarnar, en ég vildi láta þetta koma fram hér til athugunar fyrir þá, sem um þessi mál fjalla á næstunni, vegna þess að ef slíkar aðgerðir ættu að koma til á næstu loðnuvertíð, þá yrði að snúa sér strax að því að skapa skilyrði fyrir löndun í þessum sérstaka tilgangi. Ég fyrir mitt leyti lít svo á, að þetta mundi geta stóraukið aflamagnið á komandi loðnuvertíð.