19.12.1972
Efri deild: 30. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1427 í B-deild Alþingistíðinda. (1040)
131. mál, vegalög
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Ég ætlaði að vísu fyrst og fremst að þakka hæstv. samgrh. fyrir svörin, en hann virðist upptekinn á öðrum fundi, og harma ég það. Ég hefði að vísu kosið að fá ítarlegrí svör og frétta, að hún væri á meiri ferð, þessi athugun á þungaskatti og þeirri mismunun, sem hann veldur. Ég er viss um, að sú athugun, sem fram fer, er góðra gjalda verð, en leyfi mér þó að efast um, að af þeirri athugun geti fengizt sú niðurstaða, að ein ákveðin flutningaleið sé betri og hæfari í öllum tilfellum heldur en önnur. Flutningar á sjó eru að sjálfsögðu hentugastir fyrir okkar strandríki. En í sumum tilfellum getur hinn hraði flutningamáti á flugleiðum verið réttlætanlegur, og í mjög mörgum tilfellum er nauðsynlegt að flytja einnig á landi, m.a. sparar það oft geymslutíma vörunnar og hefur ýmsa aðra kosti.
Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta, enda er hæstv. ráðh. fjarverandi, eins og ég sagði áðan. En ég vil lýsa því yfir, að ég mun greiða þessu frv. atkv. mitt, en ég geri það í trausti þess, að þetta mál um þungaskatt á bifreiðum og jöfnun á vörukostnaði, e.t.v. eftir einhverjum öðrum leiðum, verði tekið til ítarlegrar athugunar og því máli hraðað.