19.12.1972
Neðri deild: 30. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1478 í B-deild Alþingistíðinda. (1074)

95. mál, almannatryggingar

Frsm. (Jón Skaftason):

Herra forseti. Heilbr.- og trn. þessarar hv. d. hefur haft til meðferðar og athugunar frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar, nr. 67 frá 20. apríl 1971, og hefur n. orðið sammála um að mæla með samþykkt frv. með vissum breytingum, og liggur nál. fyrir á þskj. 205. Ég tel rétt að gera í örfáum orðum grein fyrir helztu breytingum, sem samþykkt þessa frv. og brtt., sem fluttar eru á þskj. 205, hafa í för með sér, ef samþ. verða, en tel þó rétt að geta þess, áður en ég vík að þessu, að einstakir nm. í heilbr.- og trn. hafa undirritað nál. með áskilnaði um rétt til þess að flytja eða fylgja brtt.

Ég vík þá fyrst að þeim brtt., sem er að finna á þskj. 205. Þar leggur n. til, að breyta 2. mgr. 2. gr. frá því, sem er í frv. á þskj. 154, þannig, með leyfi hæstv. forseta: „Utan Reykjavíkur skal Tryggingastofnunin hafa umboðsskrifstofur, og fer um staðarval. fyrirkomulag og rekstur eftir ákvörðun tryggingaráðs.“ Þetta þykir eðlileg skipan þessara mála að áliti nm. Gert er ráð fyrir því, að ríkið eða hið opinbera greiði 90% af kostnaði við lifeyris- og sjúkratryggingar eftir áramótin, en sveitarfélögin greiði hins vegar 10%. Þetta er allmikil breyting frá því, sem áður hefur verið, þ.e.a.s. ekki á þessu ári, því að það var til bráðabirgða sérákvæði, sem gilti um þetta á yfirstandandi ári, en skyldi falla úr gildi um næstu áramót, ef ekki kæmi annað til. En áður var það svo, að ekki einasta ríkið og sveitarfélögin greiddu til trygginganna og sjúkrasamlaganna, heldur líka ríkissjóður og sveitarfélögin. Það þykir því eðlilegt, að tryggingaráð, sem er æðsta stjórn Tryggingastofnunar ríkisins undir ráðh., ákveði, hvernig þessum málum skuli fyrir komið utan Reykjavíkur, þ.e.a.s. hvernig og hverjir fari með umboð Tryggingastofnunarinnar í hinum ýmsu héruðum landsins. Það liggur fyrir álit tryggingaráðs um þetta atriði, sem n. var sent í sambandi við athugun á þessu frv., og vil ég, með leyfi hæstv. forseta, aðeins lesa niðurstöður, að því er tekur til þessa atriðis, frá tryggingaráðinu, þær eru þannig:

„Í sambandi við 2. gr. frv. tekur tryggingaráð fram, að það telur rétt að stefna að því sem aðalreglu, að tryggingaumboðin verði áfram á vegum sýslumanna, og telur rétt, að lagagr. verði þannig orðuð, að ekki verði breytt út frá því gegn till. tryggingaráðs. Adda Bára Sigfúsdóttir tekur fram, að hún er ekki samþykk því, að stefna skuli að því sem aðalreglu, að tryggingaumboð verði hjá sýslumönnum. Hennar skoðun er, að aðalreglan eigi að vera, að umboð séu hjá sjúkrasamlögum. Að öðru leyti er tryggingaráð samþykkt því, að frv. verði lögfest.“

Þá leggur n. enn fremur til að breyta lítillega orðalagi í 3. mgr. 2. gr. frv. Efnisbreytingin er í því fólgin, að áskilið er samráð við tryggingaráð, þegar sveitarstjórnir tilnefna sérstaka trúnaðarmenn Tryggingastofnunarinnar í þeim sveitarfélögum, þar sem ekki er að finna umboðsskrifstofur. Þykir eðlilegt, að haft sé samráð við tryggingaráð um þetta atriði, því að eins og gr. ber með sér er ætlunin, að Tryggingastofnunin greiði þann kostnað, sem hlýzt af starfsemi þessara sérstöku umboðsmanna Tryggingastofnunarinnar í hinum ýmsu sveitar félögum landsins.

2. brtt. á þskj. 205 lýtur að gildistöku frv., en þar segir, að lög þessi skuli öðlast gildi 1. jan. 1973.

3. brtt. á þskj. 205 er, að við ákvæði til bráðabirgða bætist ný mgr., svo hljóðandi: „Heimilt er sjúkrasamlögum að greiða meiriháttar sjúkrakostnað Íslendinga, sem flutzt hafa heim eftir langvarandi búsetu erlendis, til fallinn eftir heimflutninginn, en áður en þeir gátu öðlazt réttindi í sjúkrasamlagi eftir þeim reglum, sem áður giltu.“

Þetta þykir sanngjörn og eðlileg afleiðing þess, að hinir tryggðu í sjúkrasamlögunum eru nú hættir og munu ekki á næsta ári greiða úr eigin vasa iðgjald til sjúkrasamlags.

Ég hef þá í fáum orðum gert grein fyrir þeim brtt., sem er að finna á þskj. 205 og nm. allir í heilbr.- og trn. standa að, þó með fyrirvara, eins og ég gat um áðan, um rétt til þess að flytja eða fylgja brtt. Um aðrar breytingar, sem frv. það, sem hér er verið að ræða, á þskj. 115, hefur í för með sér frá gildandi lögum, vil ég segja þetta í örfáum orðum:

Megintilgangurinn með frv. er að afnema endanlega einstaklingsgreiðslur til lífeyris- og sjúkratrygginga og greiðslur sveitarfélaga til lífeyristrygginganna. Eins og hv. alþm. rekur minni til, var með l. nr. 96 frá 1971 gert ráð fyrir þessu, en það var aðeins bundið við árið 1972, og þess vegna er nauðsynlegt, að í því frv., sem hér er verið að ræða, séu tekin upp þessi ákvæði, sem ætlað er, að gildi til frambúðar og eru ekki tímabundin.

Þá þykir mér ástæða til að geta þess, að í 3. gr. frv. er heimild til að greiða einstæðum feðrum, sem halda heimili fyrir böru sín, sambærileg laun, svo og einstæðu fósturforeldri, en þetta er breyting til samræmis við þann rétt og þá heimild, sem tryggingaráð hefur til þess að greiða einstæðum mæðrum og fósturmæðrum þessar greiðslur.

Í 4. gr. er svo það atriði, sem ég gat hér um áðan. Þar er ákvæði að finna, sem lýtur að endanlegri niðurfellingu iðgjalda frá hinum tryggðu og sveitarfélögum til lífeyristrygginganna, en gert er ráð fyrir, að ríkissjóður greiði 86% og afvinnurekendur 14% af þessum kostnaði.

Í 7. gr. er svo að finna smáefnisbreytingu, er lýtur að því, að ríkisendurskoðunin annist eftirlit með samlögunum, en eins og frv. ber með sér er gert ráð fyrir því, að eftir næstu áramót verði um sjúkrasamlög að ræða, sem bundin eru við kaupstaði annars vegar og svo heil héruð hins vegar. Hreppasjúkrasamlögin eiga sem sagt þá að falla niður.

Þetta eru þær aðalbreytingar, sem frv. hefur í för með sér. Ég vil, áður en ég vík úr stólnum, geta þess, að hæstv. heilbrh. hefur á þskj. 154 flutt brtt. við frv., og munum við einstakir þm., nm. í heilbr: og trn., leggja fram skrifl. brtt. um nokkur atriði í þeirri brtt. við 3. umr. málsins.