19.12.1972
Neðri deild: 31. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1495 í B-deild Alþingistíðinda. (1092)

15. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Ég held, að ég hafi lært það í minni jómfrúrræðu á Alþ. haustið 1959, að þm. ættu ekki að ávarpa aðra þm. sem hæstv. Svo er nú komið samt, að ég vildi gjarnan ávarpa bæði hv. þm. Gunnar Thoroddsen, 5. þm. Reykv., sem hæstv. og jafnframt 3. þm. Sunnl., Guðlaug Gíslason, að ég tali ekki um hv. forseta og ritara hans, sem sat honum til hægri handar til skamms tíma, svo og ritara stjórnarflokkanna, sem hefur verið að væflast hér fram og aftur um dyr og sali. Þá er líka lokið upptalningin þar til nú á þessari stundu á þeim þm. í hv. Nd., sem gefa sér tíma til þess að hlýða á umr. um mál mála okkar Íslendinga, landhelgismálið, það eina á því sviði, sem við höfum nú til umr. hér á Alþ. Það, sem vekur enn fremur furðu mína, er það, að hæstv. sjútvrh. er ekki viðstaddur. Ég vil leyfa mér að biðja hæstv. forseta um að fresta fundi, þar til hann mætir hér og má vera að því að hlýða á þau mál. sem hér eru rædd og falla undir hans málaflokk. Ég mun gera hlé á minni ræðu, þar til hann mætir hér. (Forseti: Mér er tjáð, að hæstv. sjútvrh. sé alveg að koma inn í salinn.)

„Fæðist fótur, furðu ljótur,“ stóð í vísunni. Herra forseti. Það, sem vakti athygli mína í sambandi við þessar umr. hér fyrr í dag og reyndar líka nú í kvöld, er sú staðreynd, að það er, þegar við lítum fram hjá ræðu hv. síðasta ræðumanns, eins og þeir menn, sem voru að ræða það vandamál, sem er nú uppi í sambandi við nýtingu landhelginnar, séu enn að tala um gömlu 12 mílna fiskveiðilögsöguna. Hér hefur auðvitað orðið meginbreyting á. Við hljótum í sambandi við það, sem nú er verið að gera, að ræða um nýtingu og friðun svæða innan 50 mílna fiskveiðilögsögunnar, nema, eins og ég sagði hér í dag í sambandi við annað mál hæstv. ráðh. sjálfir og þá sérstaklega hæstv. sjútvrh. hafi enga trú á þessum aðgerðum sinum og telji þetta yfirleitt vera, eins og sagt var á slæmri dönsku í gamla daga, „húmbúkk“, og útfærsluaðgerðirnar hafi ekki verið nema, eins og ég sagði líka, til þess að sýnast gagnvart íslenzkum kjósendum, til þess að blekkja þá, til þess að ná þeim meiri hl., sem þeir náðu ómótmælanlega í síðustu alþingiskosningum.

Það, sem vakti furðu mína jafnframt, var það, að þegar hæstv. ráðh. hélt ræðu sína hér í dag og formaður sjútvn. d. og reyndar fleiri aðilar töluðu, þá skyldi enginn aðili verða til þess að minnast á þá stóru staðreynd, sem við Íslendingar stöndum frammi fyrir í dag, en það er, að málstaður okkar hefur sigrað á alþjóðavettvangi, — málstaður okkar í sambandi við útfærslu okkar fiskveiðilögsögu, — með samþykkt Allsherjarþingsins á þeirri tillögu, sem Ísland ásamt Perú og fleiri þjóðum flutti og við höfðum fréttir af, fyrst í gær og svo nánari fréttir í dag, að hefði sigrað og það glæsilega. Ég hefði talið, að það hefði einhvern tíma verið ástæða til, að einhverjir aðilar, t.d. einhverjir hæstv. ráðh., hefðu staðið hér upp og bent á þetta mál, og bent okkur öðrum þegnum hins íslenzka þjóðfélags á, að ástæða væri til þess að fagna þessum áfanga, sem þarna hefði náðst, um leið og við hefðum kannske sent þakkir okkar til þeirra mörgu og ágætu manna, sem þarna hafa unnið að. Vil ég sérstaklega benda á fastafulltrúa okkar hjá Sameinuðu þjóðunum, bæði ambassadorinn Harald Kröyer og Gunnar Schram og Ívar Guðmundsson líka. Ég vildi auk þess gjarnan láta það koma hér sérstaklega fram í sambandi við ferðir okkar þm. og annarra ftr. þingflokkanná á þing þetta, að við höfum sjaldan haft á erl. vettvangi betri ftr. úr slíkum hóp en frá flokki utanrrh., Hannes Pálsson, sem var þar allan tímann, þótt ekki sé hann þm. Mér finnst rétt, að það komi hér fram, því að hann á það vel skilið, að hans sé minnzt í sambandi við þetta mál. En þetta er vissulega mál, sem hefði reyndar verið frekar ríkisstj. að minnast á, en ekki okkar í stjórnarandstöðunni. Að vísu er málsmeðferðin engin uppfinning þeirra, heldur er þetta beint framhald af stefnu fyrrv. ríkisstj. í utanríkismálum og framkvæmd á landhelgismálinu, eftir að Norðursjávarþjóðirnar höfðu helgað sér hafsbotninn til olíu- og gasvinnslu í Norðursjónum. Eins og ég hef löngum sagt og sagði reyndar strax á sínum tíma á sérstakri ráðstefnu, sem haldin var í Strassbourg á vegum Evrópuráðsins, eftir að þetta hafði skeð, — þá sagði ég: Nú erum við Íslendingar búnir að vinna málið, okkar mál. — Ég held einmitt, að þetta ráð, sem þeir gripu til á sinum tíma, Bretar, Vestur-Þjóðverjar og allir hinir, sem að því stóðu, það spor, sem þeir stigu þá, hafi líka verið sporið, sem stigið var og olli því, að við höfum náð því, sem við höfum náð núna á þingi Sameinuðu þjóðanna. Reyndar hefði átt, um leið og við erum að ræða þetta mál, að ræða okkar landhelgismál í heild. Ég skal þó ekki hefja slíkar umr: nú, vegna þess, hve áliðið er þingtímans, en við þyrftum að fara efnislega í það mál. sem hér er til umræðu, og stöðu landhelgismálsins í dag. Hins vegar vildi ég láta það koma fram, að það gladdi mig sérstaklega, að þessi till. skyldi hafa komið fram og náð samþykki á þingi Sþ., vegna þess að hún fór saman við grundvöll skoðana minna og fleiri um, að það var mesta vitleysa, sem við nokkurn tíma gerðum, að segja upp samningunum við Breta og Vestur-Þjóðverja, miðað við það, sem við horfum á nú og mátti reyndar sjá fyrir, þó að nokkur dráttur hefði getað á orðið á útfærslunni. Þá hefðum við nú haft frið með alla okkar fiskveiðilögsögu skv. samningnum. Þessir andstæðingar okkar hefðu orðið að bíða niðurstöðu dómstólsins í Haag, og enginn maður með nokkru viti vefengir nú eftir þessa niðurstöðu á þingi Sameinuðu þjóðanna, að dómsniðurstaðan hefði fallið okkur í vil.

Hér er verið að ræða um framlengingu laga um nýtingu landhelginnar o.fl. Ég er meðflm. ásamt hv. 3. þm. Sunnl. að brtt., sem hann hefur þegar skýrt, og skal ég ekki tefja um of þann stóra hluta þingheims, sem hefur gefið sér tíma til þess núna að sitja hér og hlusta á umr. um þetta mál, þegar ég ræði málíð efnislega.

Ég ætla að taka það fram, að strax í sjútvn., þegar málið kom þar til umr., tók ég skýrt fram og tók undir það, sem hefur komið fram, ekki aðeins hjá sjútvrh., heldur og hjá viðkomandi n., sem kölluð hefur verið landhelgisfriðunarnefnd með meiru, og þori ég þó ekki að hafa fleiri orð þar um, ef ég væri að taka einhverja verðuga titla af þeim, að það væri eðlilegt, að þeir gætu ekki haft fullmótaðar till. um nýtingu landhelginnar til þess að bera fram fyrir þetta þing, fyrst og fremst auðvitað vegna þess, að allar till., sem fram koma, eru mótaðar af hagsmunum þeirra, sem í hlut eiga. Hagsmunir þessa sjávarpláss fara ekki saman við hagsmuni næsta. Hagsmunir þess, sem veiða með þessu veiðarfærinu, fara ekki saman við hagsmuni þeirra, sem veiða með hinu. En það breytir ekki því, að hæstv. sjútvrh., hefur orðið á sú skyssa, máske ekki skyssa, heldur trassaskapur, að hann skipar ekki n. til að starfa að þessu máli fyrr en á haustmánuðum. Það er auðvitað út í hött að tala um það, þegar við erum að ráðstafa, eins og hann hefur sjálfur margoft orðað það, okkar eigin eign, löglegu ráðstöfunarsvæði, að við þurfum að vera eitthvað hræddir við það að hafa n. starfandi til þess að leggja fram till. um framtíðarnotkun þessara sömu svæða. Þetta er ekkert annað, en heldur ómerkilegar afsakanir þess manns, sem er orðinn ber að því að hafa brugðizt sínum skyldustörfum í sambandi við þetta mál.

Ég tók það líka fram í hv. sjútvn. Nd., að um leið og ég viðurkenndi rök ákveðinna staða og jafnvel ákveðinna aðila, sem veiða með ákveðnu veiðarfæri, sem óhjákvæmilega staðreynd í sambandi við efnahagslega afkomu, þá yrðum við á þeim tímamótum, sem við stöndum á, að hafa önnur sjónarmið uppi, en það væru friðunar- og verndarsjónarmiðin. Þrátt fyrir það, sem ég hef sagt um það, sem gerðist hjá Sameinuðu þjóðunum í gær, og er auðvitað ekki á nokkurn hátt hæstv. sjútvrh. að þakka, — langt frá því, þá vitum við auðvitað, að hinn raunverulegi sigur er ekki unninn enn. Við höfum haft tvö sjónarmið í huga, þegar við höfum barizt fyrir okkar útfærzlu. Það er efnahagssjónarmiðið og verndarsjónarmiðið. í aðgerðum hæstv. sjútvrh. fram til þessa, vil ég leyfa mér að fullyrða, að það, sem hann hefur látið frá sér fara í sambandi við verndar- og friðunarsjónarmiðin, sé í algeru lágmarki. Og þá leyfi ég mér að koma að því, sem hefði átt að vera búið að minnast á hér á hv. Alþ. fyrir löngu, það er hin eindæma friðun Faxaflóans. Það er ákaflega gott fyrir hv. þm., sem koma annars staðar að en hér frá Faxaflóasvæðinu, nema um sé að ræða sérstaka fulltrúa fyrir sportveiðar eða trillubátaveiðar, að koma og segja: Nú skulum við friða Faxaflóa til þess að benda öllum þjóðum á, hvað við íslendingar séum miklir friðunarmenn. En það er bara það, sem auðvitað allir, ættu að vita, sem þekkja eitthvað fiskveiðar hér við Ísland, að Faxaflóinn er ekki neitt sérstakt svæði í sambandi við nauðsyn friðunar eða verndar ungfisks. Það eru flestallir flóar, a.m.k. 80% af öllum okkar fjörðum, sem falla undir það. Ef við værum réttlátir og vildum líka hafa í huga efnahagslega sjónarmiðið gagnvart fiskimönnunum við Faxaflóa, ættum við auðvitað að láta þetta ganga jafnt yfir allt landið og allt í kringum landið. Við eigum auðvitað að taka fyrir svæði og friða þau í nokkur ár hvert um sig og segja sem svo: Við erum að gera það til þess að vernda okkar ungfisk. Við erum að ala hann upp á þessum svæðum í 2–3 ár. Gott og vel, við, sem búum við Faxaflóa, höfum byrjað. Ég segi: Á næsta eða þar næsta ári skulu aðrir taka við. Þar með er ég ekki að segja, að það eigi að opna Faxaflóann, eins og hann var, áður en hann var nær alfriðaður. Hitt er svo annað mál, að það vantar nær algerlega í allt það, sem sjútvrh. hefur látið frá sér fara, ákvæði um algera friðun, sem þarf að vera á ákveðnum svæðum fyrir öllum veiðarfærum. Hann veit auðvitað manna bezt, að það er ekki allt stórþorskur eða stórýsa, svokölluð graðýsa, sem kemur á krókinn á línu eða færi. Það kemur líka smáfiskur. Það eru til ljósmyndir af því, sem voru teknar hér í Reykjavíkurhöfn fyrir skömmu, sem sýndu, hvað trillubátar af Akranesi veiddu mikið á lóðir á svæðum, þar sem helztu uppeldisstöðvarnar eru hér í Faxaflóa, svo mikið, að þeir voru nærri búnir að drekkja sjálfum sér, að ég nú ekki tali um tapið á þessum dýrmæta fiski, allt smáfiski, sem þeir höfðu veitt á leiðinni hingað til Reykjavíkur, þar sem þeir komu með þennan sama fisk á markað. Þess vegna hefði ég talið, þótt ég flytji ekki um það sérstaka brtt. nú, að þarna þurfi að gera bragabót á. Við ræddum um það, hv. 3. þm. Sunnl. og ég, og við erum sammála um það. En við, vildum samt sem áður ekki setja í hættu aðrar till. okkar, sem þegar hafa verið bornar fram. En það er enginn vafi á því, að það eru mörg svæði hér innan okkar landhelgi og jafnvel utan núv. fiskveiðilögsögu, sem við þurfum að friða fyrir öllum veiðarfærum. Það svæði, sem ég bendi sérstaklega á hér í Faxaflóanum, afmarkast að austanverðu af línu, sem dregin er frá Skaga á Akranesi og að Malarrifi. Þetta er eitt atriðið, sem mér finnst, að hafi mikið vantað inn í aðgerðir hæstv. sjútvrh. og hefði auðvitað þurft að koma núna í sambandi við framlengingu þessara laga og hefði verið ákaflega auðvelt að koma með.

Áður en ég held lengra, vil ég benda á, að auðvitað hlýtur það að vekja athygli okkar þm. hér í hv. d., sem hv. frsm. sjútvn. d. viðhafði, þegar hann fylgdi málinu úr hlaði. Ég man ekki, hvort þau orð eru fengin beint frá hæstv. ráðh. eða hvaðan þau eru fengin, þegar hann talaði um, að það væri ekki normalt af þm. að flytja brtt. við alla þá speki, sem kæmi frá þessari hv. landhelgisnefnd eða frá hæstv. ráðh. Nú má vera, að þetta sé beint framhald af þeirri stefnu, sem hefur verið tekin upp hjá hv. stjórnarþm., eins og reyndar hefur komið fram, að því er mér er tjáð af fulltrúum Sjálfstfl. í fjvn., t.d. hjá hv. skrifara þessarar d., hv. þm. Ingvari Gíslasyni, 3. þm. Norðurl. e., þegar hann lét hafa eftir sér í fjvn. í morgun, að minni hl. kæmi ekkert við, hvað verið væri að gera í sambandi við fjárlög. Þeir réðu þessu í meiri hl., þeir ætluðu að keyra þetta áfram og við í minni hl. gætum haldið kjafti. Guði sé lof, að þeir eru ekki alveg búnir að loka þar fyrir, allavega ekki fyrir Pétur Sigurðsson! En hvað um það. Þetta lýsir nokkuð þeim hugsunarhætti, sem er uppi hjá þessum ráðamönnum. Þetta er framhald af því, sem hefur komið fram hjá hæstv. sjútvrh. í sambandi við frumkvæði hans í landhelgismálinu. Ef till. eða frumkvæði annarra en hans sjálfs eða fylgifiska hans hafa komið fram, þá er það þegar dæmt dautt og ómerkt, vegna þess að það er ekki komið frá honum. Hins vegar hafa nautin tvö stangazt illilega á í Hafrannsóknastofnuninni, starfsmennirnir og stjórnin. Ekki veit ég, hvort hæstv. sjútvrh. stendur þar mitt á milli eða hvorum megin hann ætlar að stanga frá. En hitt þykist ég vita, vegna þess að hann er maður, sem hefur mikla þekkingu á þessum sviðum, að hann getur aldrei orðið sammála því, sem hefur komið frá starfsmönnum stofnunarinnar. Líklega verður hann ekki heldur með því, sem frá stjórninni kemur, vegna þess að hann er klókur og hygginn pólitíkus og á það til að geta sagt í dag, að það sé svart, sem var hvítt í gær, og öfugt, þannig að auðvitað verður hann að fara þarna bil beggja og vera á móti stjórnendunum líka til þess að móðga ekki starfsmennina. En ef nokkur maður getur farið þannig á milli, þá er það auðvitað hann.

Hv. formaður þessarar landhelgisnefndar, hv. þm. Gils Guðmundsson, 4. þm. Reykn., ræddi mjög efnislega bæði starf n. og þau vandamál, sem þeir hefðu haft við að glíma. Ég skal viðurkenna það fúslega, eins og ég hef þegar gert, að þau vandamál eru alls ekki léttvæg. Ég hef þegar tekið það fram, hann tók það einnig fram, og reyndar líka frsm. sjútvn. og fleiri ræðumenn, þ.á.m. hv. 3. þm. Sunnl., að það er ekki gott né auðvelt að ætla sér að sameina allar þessar skoðanir, og má vera, að það verði ógerlegt fyrir Alþ. En það breytir ekki því, að hæstv. ráðh. ef hann hefði haft nokkra trú á því sjálfur, að það mætti ná samkomulagi, hefði átt að leggja fram till. á réttum tíma, áður en lögin runnu úr gildi nú um áramót. Hann hefði átt að kalla n. saman til starfa fyrr en í sept. þá hefði kannske verið búið að vinna svolítið meira, en máske undrast enginn, ef n. hefði ekki þurft að byrja á því að safna t.d. saman upplýsingum um bátastærðir á landinu eða hvernig skipting bátastærða í flokka væri. Hvers konar vinnubrögð eru þetta? Þetta er fordæmanlegt. Svo kemur hæstv. sjútvrh. til okkar á síðustu stundu og leggur þetta fram fyrir okkur, sem þekkjum mætavel til þessara mála, og segir: Nú skuluð þið bara samþykkja framlengingu, vegna þess að n. gat ekki lokíð störfum. Þetta er fyrir neðan allar hellur og lýsir auðvitað í einu og öllu störfum þessa hæstv. ráðh. og ríkisstj. í heild.

Fyrst verið er að tala um afla og aflaspár, þá er kannske rétt að draga fram þá staðreynd um leið, sem auðvitað hefur komið hér í sambandi við önnur mál. að núv. hæstv. ríkisstj. hefur verið að spá, hún hefur spáð og spáir í aflann. Hún spáði svo mikið, þegar hún tók við völdum, að hún fór að skipta aflahlutanum, áður en aflinn var kominn á land. Hún skipti aflanum, þar til þeir komust að því, bæði bóndinn úr Selárdal og framkvæmdastjórinn frá Norðfirði, að það var enginn fiskur í fjörunni til þess að henda til hásetanna. Hann kom ekki á land, en þeir voru samt búnir að skipta honum, það vantaði ekki. En spáð gátu þeir. Hún gerist stórkostleg, spákaupmennska á Íslandi. Auðvitað þurfti engan að undra, þótt þessir menn færu að fást við þá spákaupmennsku.

Það er rétt, sem kom hér fram hjá ræðumönnum í dag, þegar mál þetta var rætt, að það er auðvitað ekki um neina samfellda fiskveiðistefnu að ræða hjá ríkisstj. Auðvitað skal ég taka undir það, sem sjútvrh. sagði, að það er ekki til hjá neinum. Það er hvorki til pólitískur flokkur, hagsmunasamtök né ríkisstj., sem hafi treyst sér til þess að móta þá stefnu enn þá. Og þetta er auðvitað eðlilegt með tilliti til þess, sem ég hef þegar sagt um þá gífurlegu skiptingu hagsmuna, sem hlýtur að verða, ekki aðeins á milli staða landfræðilega séð hér á landi, heldur og á milli veiðarfæra. Þetta hlýtur auðvitað að verða okkar stóra vandamál, þegar við komum að því að gera till. eða þeir, sem það eiga að gera, fyrir þingið. Það verður hið stóra vandamál. Persónulega er ég alveg á móti öllum hömlum á hugsunarhætti veiðimannsins, sem verður að vera við hún hjá íslenzka fiskimanninum hér eftir sem hingað til. Ég er á móti því, að það skuli vera tekin út einhver ákveðin lokuð hafsvæði fyrir einhver ákveðin byggðarlög, þar sem á að loka fyrir ákveðna staði. Jú, þetta er allt í lagi, segja þm. hinna dreifðu byggða. Það er allt í lagi að loka Faxaflóanum og friða hann öllum öðrum bófum til varnaðar. Við erum að friða, ekki aðeins vegna innanlands áróðurs, heldur utan lands líka. Hvert eiga þeir sjómenn, sem áttu áður aðgang að Faxaflóanum, að leita? Hvað mættu, ef út í þetta er farið, þeir segja, sjómennirnir frá Vestmannaeyjum, útvegsmennirnir frá Vestm.eyjum, frá stöðunum við sunnanvert Reykjanes og reyndar Reykjanes sjálft, þegar segja má, að allur floti landsins komi á þessi mið á vetrarvertíð? Er þá hægt fyrir einhverja ákveðna íbúa við þessi svæði að segja: Nei, nú er ykkur alveg bannað að koma til okkar? Við komum bara til ykkar til veiða. Nú skal ég viðurkenna það fúslega, að þetta er ekki jafneinfalt og það lítur úr fyrir, þegar ég segi þetta svona, því að það eru auðvitað margir staðir, sem þurfa virkilega á því að halda, að þar séu friðuð ákveðin svæði fyrir þau hin sömu, vegna sérstakra veiða, svo að atvinnu verði haldið uppi í viðkomandi byggðarlögum. Þetta vita allír og viðurkenna, og þetta hefur veríð gert og verður gert. En það er ekki þar með sagt, að heil hafsvæði eigi að friða fyrir ákveðin byggðarlög, alls ekki til þess, sem ég mundi kalla til botnfiskveiða. En kröfur hafa komið fram um það. Ég skal frekar viðurkenna, að það megi og þurfi að gera það, ef um er að ræða takmarkað fiskmagn, hvort sem það er skelfiskur eða einhver annar slíkur fiskur, og magnið takmarkað, sem megi taka af, að ráði okkar fiskifræðinga. Þá skal ég viðurkenna þetta sjónarmið, en annars ekki. Það getur ekkert eitt byggðarlag átt sína landhelgi út í 50 mílur út frá sínu kaupfélagi. Það er alveg útilokað.

Ég kom aðeins inn á það, að það væri auðvitað stórkostleg blekking í sambandi við landhelgismálið í heild, fólgin í því, þegar verið væri að tala um það, að við værum búnir að færa okkar fiskveiðilögsögu í 50 mílur. Auðvitað erum við búnir að því að nafninu til. En þetta er ekki orðið virkt enn þá, og það vantar mikið á. Það vita auðvitað þeir hæstv. ráðh. bezt, sem að málinu standa, sömu ráðh. sem sögðu fyrir síðustu alþingiskosningar, að allir samningar um þetta mál væru svik, en hafa gengið miklu lengra en nokkrir úr núv. stjórnarandstöðu gátu hugsað sér í sambandi við samningaumleitanir. Vera má kannske, að inn í þetta blandist líka annað mál. rétturinn til loðnuveiða. Öll frv. ríkisstj. í sambandi við efnahagsmál, sem hafa komið fram nú, eru byggð á hugsanlegri loðnuveiði, og væri réttast að kalla þau einu nafni loðnufrv., því að ef loðnuveiðin stenzt ekki samkvæmt spám okkar haf- og fiskifræðinga, þá stendur ekki steinn yfir steini í efnahagsfrv. ríkisstj. það miðast allt við það, að Gunnari Hermannssyni skipstjóra á Eldborginni, bróður hv. þm. Sverris Hermannssonar, 4. þm. Austf., takist ásamt öðrum, sem að því vinna, að finna það miklar loðnugöngur fyrir ríkisstj., að það megi keyra í gang allar verksmiðjur, sérstaklega eystra og þá að sjálfsögðu einkum á Norðfirði, sbr. kaup þeirra og fjárfestingu í sérstökum loðnuveiðiskipum, sem þeir hafa gert, að það takist að setja þessar verksmiðjur í gang og verksmiðjunum að mala það Fróðagull fyrir ríkisstj., sem hún þarf á að halda. Ég vildi, að guð gæfi, að ríkisstj. yrði nú að ósk sinni og spám. En svipull er sjávarafli, og ekki er víst, að það sé komið strax á sparisjóðsbók þeirra Lúðvíks og Halldórs Sigurðssonar, þótt hagfræðingar og fiskifræðingar vorir hafi spáð þessum ágætu væntanlegu úrslitum efnahagsráðstafana ríkisstj. eða beinu framhaldi af þeim.

Hér kom fram nokkuð gagnrýni á það, að heimílt væri að veiða innan svokallaðra þriggja mílna. Nú hef ég aldrei getað skilið, — en það má kannske vel vera, að ég hafi þá sett mig í spor þorsksins, en ég veit, að hann skilur það ekki heldur og hann mun aldrei skilja það, — af hverju einhver ákveðin 3 mílna mörk eða 4 mílna eru höfð í sambandi við veiðar hans. Sannleikurinn er sá, að við allt það sem við erum að tala um í sambandi við heimildir og bönn við veiðarnar og sérstaklega þessa gömlu fordóma manna, sem lítið vit hafa haft á, þótt viljann hafi ekki vantað í sambandi við ákveðin veiðarfæri, þá er aðal spurningin auðvitað ekki um einhverja ákveðna línu. Þessi lína er ekki til nema á kortinu, og fiskurinn tekur ekki nokkurt mark á því, þó að einhverjir spekingar hér á Alþ., uppi í rn., jafnvel þótt hæstv. sjútvrh. sjálfur striki þessa línu, þá veit ég, að þorskurinn tekur ekkert mark á henni. Það er því tilgangslaust að tala um línur í sambandi við fiskinn. Aðalspurningin er þessi: ætlum við að leyfa okkar fiskimönnum að ná fiskinum á ódýrastan og hagkvæmastan hátt, á hagkvæmasta veiðarfærið, sem er til staðar á hverjum tíma, eða ætlum við að láta einhverjar gamlar bábiljur hamla okkur frá því, að svo sé? Þetta stendur ekki í neinu sambandi við það að vernda fiskstofninn. Ég segi það alveg hiklaust, og m.a. þess vegna kvaddi ég mér hljóðs í sambandi við þetta mál nú, að ég tel nauðsynlegt, enda hef ég gagnrýnt hæstv. ráðh. fyrir það að hafa ekki gengið lengra í friðunaraðgerðum í sambandi við þetta mál nú en gert er, og þar á ég sérstaklega við alfriðun, friðun fyrir öllum veiðarfærum. Ég hef bent á það, og það er hægt að sýna fram á, að hægt er að drepa ungfisk ekki aðeins við veiðar í botnvörpu og dragnót, en ekki síður í hringnót og í net. Við tökum fiskinn, áður en hann hrygnir, einnig á línu, og ég benti á ákveðið dæmi hér úr Faxaflóanum þar um. Ég held, að áður en þetta mál fer endanlega frá okkur þurfi hér um að bæta. Okkur er nauðsyn, að málið nái fram fyrir áramót, og ég skal standa að því, að svo verði, jafnvel þótt brtt. okkar Guðlaugs Gíslasonar verði felld. Ég viðurkenni þá efiðleika, sem hafa verið uppi í sambandi við störf n. og það mikla starf, sem þeir eiga eftir. En það breytir ekki því, að ég hefði óskað eftir því, um leið og við látum frv. fara frá okkur á þessari stundu, að frekari ákvæði hefðu komið frá okkur, ekki sízt í framhaldi af þeim glæsilega sigri, sem Ísland hefur unnið á alþjóðarvettvangi, þess efnis, að um leið og við erum að færa út okkar fiskveiðilögsögu, þá séum við líka að friða okkar fiskstofna.