19.12.1972
Efri deild: 32. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1545 í B-deild Alþingistíðinda. (1106)

133. mál, ráðstafanir vegna nýs gengis íslenskrar krónu

Oddur Ólafsson:

Herra forseti. Hæstv. forsrh. viðhafði þau orð í Sþ. nýlega, að það væri allt í lagi að skipta um skoðun, breyttar forsendur, nýjar upplýsingar gætu valdið því, að menn yrðu að skipta um skoðun. Ég er honum sannarlega sammála um það, að menn geti þurft að skipta um skoðun, menn geta fengið nýja reynslu, nýjar upplýsingar, nýja þekkingu. En þegar menn, sem árum saman í stjórnarandstöðu hafa úthúðað vissum efnahagsráðstöfunum og talið þær vera þjóðarbúinu og þjóðfélagsheildinni til hins mesta ama og skaða, koma síðan til valda, m.a. á þeim forsendum, að fólkið í landinu lítur svo á, að þeir eigi í pokahorninu nýjar leiðir til úrlausnar aðsteðjandi efnahagsvanda, en nýta svo gömlu leiðirnar, þá lít ég svo á, að forsendur fyrir tilvist slíkrar stjórnar séu að verulegu leyti brostnar. Líkast er því, að þessi stjórn okkar beinlínis elti uppi ýmsar af þeim ráðstöfunum, sem hún úthúðaði mest, meðan hún var í stjórnarandstöðu.

Við vitum öll, að verðbólgan er óvættur hinn mesti. Þó er það svo, að flestar þjóðir heims, a.m.k. í vestrænum heimi, munu eiga við verðbólgu að stríða að jafnaði. Til þess að hamla gegn verðbólgu viðhafði fyrrv. ríkisstj. tilburði til vissra aðgerða, sem stjórnarandstaðan hamaðist gegn í tíma og ótíma og notfærði sér þar mjög aðstöðu sína í verkalýðshreyfingunni. En ekki var þessi stjórn fyrr komin að völdum en hún tók að notfæra sér sömu ráðstafanir og hún hafði mest hamast gegn. Á ég þar ekki sízt við frestun á vísitölu, hagræðingu á vísitölu og ýmis önnur atriði, sem hún telur nauðsynlegt að viðhafa til þess að geta haft einhvern hemil á verðbólguþróuninni. Ein af þeim efnahagsráðstöfunum, sem hún jafnan hamaðist gegn, var að sjálfsögðu gengisfelling. Einn af höfundum valkostafræðiritsins svonefnda ritaði rétt fyrir síðustu kosningar grein í Þjóðviljanum um verðbólgu. Ég má til, vegna þess að nú er um að ræða virkilega verðbólgu, neyðarráðstöfun, sem gerð var í góðæri, að lofa hv. þm. að heyra, hvað einn af höfundum valkostaritanna hefur að segja um áhrif verðbólgunnar, með leyfi hæstv. forseta:

„Þessi ójafni breytanleiki, hreyfanleiki á verði hinna mörgu tegunda hefur m.a. eftirfarandi áhrif á efnahagslífið: a) Kaupmáttur peninganna minnkar, þannig að stöðugt þarf fleiri krónur til að kaupa sama magn af vörum. b) Grundvallarhlutverk gjaldmiðilsins, sem er að verða verðmætismælikvarði, fer út um þúfur. Þegar verðhlutföll eru á sífelldri hreyfingu og enginn þekkir gildi neins er mælikvarðinn gagnslítill. Þetta hefur ekki aðeins í för með sér efnahagslega ringulreið, heldur er afar siðspillandi og verður til að eyða öllu siðmæti í þjóðfélaginu. Skipting þjóðarteknanna breytist til hagsbóta þeim sterku, þ.e.a.s. þeim, sem mest verðrými hafa og geta bæði hækkað tekjur sínar fyrr og meir en aðrir svo og hafa aðstöðu til að festa fjármuni sína og það, sem þeir hafa fengið að láni, því að þeir borga til baka fasta upphæð, en ekki kaupmátt. Fjármagnið beinist inn á rangar brautir, burt frá framleiðslu yfir í spákaupmennsku og margs konar flóttaráðstafanir, munaðaríbúðir og neyzlubruðl. Ómögulegt er í verðbólgu að reikna út fyrir fram svokallaða fjárfestingarvexti eða yfirleitt að gera útreikninga, sem byggja mætti á langtímafjárfestingu og arðsemi. Allt markast af gróðaáætlunum, og allt þarf að borga sig í hvelli. Skattakerfinu hefur nýlega verið breytt skv. þessu.“

Þannig farast m.a. þessum hagfræðingi, Þresti Ólafssyni, orð, þeim manni, sem var höfundur að hinu margnefnda valkostariti. Ég les þetta hér upp til að vekja athygli á þeim vanda, sem nú er einmitt að gerast. Það er gjörsamlega ný kenning, held ég, og ekki kenning, sem núverandi stjórnarflokkar hafa haldíð fram áður, að gengislækkun væri til þess að varðveita kaupmátt. Lengst af hefur hinu gagnstæða verið haldið fram. En engum blandast, held ég, hugur um, að gengislækkun sé að jafnaði verðbólgumyndandi. Það er einnig sýnilegt, að verðbólguþróun hefur verið mjög ör í okkar þjóðfélagi síðustu mánuðina, hvað svo sem útreikningarnir segja. Það, að hún er ekki meiri á pappírnum en látið er í veðri vaka, byggist á hagræðingunni með vísitöluna, sem aldrei hefur verið betur framkvæmd en í tíð þessarar ríkisstj., þar sem m.a. var byrjað á að flytja nefskattana yfir í beinu skattana, þannig að þeir hyrfu út úr vísitölunni, og ýmsar ráðstafanir í því sambandi. M.a. var reynt að finna út, hvaða ráðstafanir það væru, sem fæstir af þjóðfélagsþegnunum nytu, til þess að lækka þar, þannig að vísirinn hreyfðist sem minnst.

Það er engin ný bóla, að verðbólgan vaxi. En sýnilegt er, að með þeim ráðstöfunum, sem nú er verið að gera, er í vændum mikill verðbólguvöxtur. Eins og kom fram hjá þessum hagfræðingi og nýlega hefur komið fram á Alþingi hjá hæstv. heilbrmrh., er ekki nóg með það, að þetta sé að jafnaði skerðing á afkomumöguleikum fólksins í landinu, heldur er þetta líka talið vera siðspillandi og valda ringulreið á siðmæti þjóðfélagsþegnanna, ókostirnir taldir ótölulega margir. Nú má segja, að áhrifin af þessum aðgerðum til siðbætabrenglunar og ringulreiðar séu nú þegar komin í ljós, þegar einn ágætur þm. segir sig úr sínum þingflokki, vegna þess að stjórnin sé að framkvæma gengislækkun, en lofar svo að styðja hana til að geta framkvæmt hinar sömu aðgerðir. Þegar hinir lærðu láta brenglast svo fljótt, getum við ekki vænzt annars en að svo verði í ríkari mæli hjá hinum óbreyttu þegnum.

Ekki er vafi á því, að eftir sumur viðreisnirnar voru hlöður fullar til vetrarins og þessi stjórn tók við góðu búi, eins og viðurkennt er nú, enda kemur það í ljós, að á þremur síðustu árum hafa þjóðartekjur vaxið hér á landi að jafnaði meira en í nágrannalöndunum. Því skyldi maður balda, að ekki væri, með vaxandi þjóðartekjum og útflutningsverðmætum, mikill vandi á höndum. En hvað hefur skeð? Ég held, að ég fari ekki að lesa upp neinar tölur, það er búið að gera svo mikið að því, en mér finnst einhvern veginn, að hér séu það ekki búmenn, sem hafa tekið við stjórninni. Ég held, að þarna liggi meginorsökin, það eru ekki búmenn, sem hafa tekið við stjórninni. Þeir hafa orðið heylausir á miðjum vetri. Þetta er að mínu viti hin eina og sanna ástæða fyrir því ástandi, sem hefur skapazt. Þegar grípa þarf til neyðarráðstafana í góðæri, er það hvorki gott né farsælt. Ég held, að þeir menn, sem hafa gert sig seka um að taka við góðu búi og klúðra því á svo stuttum tíma sem hér ber raun vitni, muni varla lengi njóta trausts þeirra kjósenda, sem léðu þeim atkv. sitt lítandi svo á, að þeir mundu finna nýjar leiðir gegn hverjum vanda, — leiðir, sem væru hagstæðari almenningi en þær, sem hingað til hefðu verið farnar.