20.12.1972
Efri deild: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1558 í B-deild Alþingistíðinda. (1112)
133. mál, ráðstafanir vegna nýs gengis íslenskrar krónu
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Ég kvaddi mér ekki hljóðs fyrr en mér var ljóst, að engir aðrir voru á mælendaskrá og ekki ætlunin af hálfu hæstv. ráðh. að svara þeim fyrirspurnum, sem ég bar fram í ræðu minni við 1. umr. hér í kvöld. Ég gat þess þá, að ég hefði borið fram fyrirspurnir á nefndarfundum fjh.- og viðskn. í dag, ítrekað þær og óskað eftir svörum ráðh. þar, en verið vísað á að spyrja ráðh. hér í hv. þd., sem ég og gerði án árangurs. Ég leyfi mér, herra forseti, að ítreka þessar fsp. og gera þær e.t.v. skýrari að einhverju marki, ef það mætti fremur verða til þess, að hæstv. ráðh. sæju sér fært að svara einhverju.
Ég hef spurt í fyrsta lagi: Hverjar aðrar ráðstafanir en þær, sem felast í breyttri gengisskráningu, hyggst ríkisstj. gera, til lausnar aðsteðjandi efnahagsvanda?
Ég hef spurt: Hver er útreikningur hagrannsóknadeildar Framkvæmdastofnunarinnar á áhrifum gengislækkunarinnar og þeirra efnahagsaðgerða, sem henni eru tengdar? Hér er átt við sams konar útreikninga og valkostan, hefur gert í álitsgerð sinni og hagrannsóknadeildin hefur gert með samanburði þriggja tillagna um efnahagsaðgerðir frá 11. des. s.l. Sérstaklega er í þessu sambandi spurt: a) Hver verður afkoma sjávarútvegsins á ársgrundvelli miðað við þær aðgerðir, sem nú eru ráðgerðar með gengislækkun? b) Hver verður afkoma annars vegar útflutningsiðnaðar og hins vegar heimaiðnaðar, miðað við þær sömu aðgerðir?
Ég spurði: Hvað verður um greiðslu 21/2 kaupgreiðsluvísitölustigs 1. jan., sem felld voru niður með brbl. um tímabundna verðstöðvun í júlímánuði s.l.? Í því sambandi og framhaldi þess: Hver verður þróun kaupgreiðsluvísitölu á næsta ári? Hvaða áhrif á hana hafa hækkunarþarfir: a) af innflutningi erlendra vara, b) heimaiðnaðar, c) flutningafyrirtækja, eins og t.d. skipa og flugfélaga, d) annarra þjónustufyrirtækja, þ. á m. á vegum ríkis og sveitarfélaga?
Ég hef spurt: Er gert ráð fyrir breytingu á fiskverði 1. jan. n.k., og hvaða fiskverð er lagt til grundvallar útreikningum á afkomu útgerðar og fiskiðnaðar?
Loks hef ég spurt: Hvaða ráðstafanir eru fyrirhugaðar til að mæta a.m.k. 150 millj. kr. skuld tryggingakerfis fiskiskipa, og hvaða ráðstafanir eru fyrirhugaðar til að standa undir tryggingaiðgjöldum á næsta ári?
Fleiri spurningar væri hægt að flytja hér, en sumar þeirra gætu eins vel átt við í sambandi við afgreiðslu fjárlaga. En ég tel það lágmarkskröfu, að þm. fái svör við þessum fsp. Að öðrum kosti tel ég núv. hæstv. ríkisstj. fara blindandi út í þann leik, sem nú er farið út í.