20.12.1972
Efri deild: 36. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1565 í B-deild Alþingistíðinda. (1123)

114. mál, verðlagsmál

Frsm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Fjhn. d. hefur haft til athugunar frv. til l. um breyt. á l. um verðlagsmál. Hér er um að ræða, að ákveðin sé skipan verðlagsnefndar í samræmi við það, sem verið hefur nú um nokkurra ára skeið eða allt frá 1967. Á hverju ári hefur umboð verðlagsnefndar verið framlengt, og nú stendur svo á, að umboð verðlagsnefndar fellur niður 31, des. og þarf að taka ákvörðun um, hvort ekki skuli endurnýja umboð verðlagsnefndar og þá skipan, sem frv. gerir ráð fyrir og hefur verið í gildi sem sagt um 5 ára skeið. — N. hefur rætt þetta frv. og mælir einróma með samþykkt þess.