20.12.1972
Neðri deild: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1576 í B-deild Alþingistíðinda. (1159)

132. mál, siglingalög

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Þetta mál var tekið fyrir í n, í morgun og við fengum þær upplýsingar, að það væri samkomulag um það frv. um tryggingarnar, sem þetta frv. er í raun og veru byggt á, og n. varð sammála um, að þetta frv. yrði samþykkt. En ég vil vekja athygli á því, að það verður að horfa á það í samhengi við hitt frv.