20.12.1972
Neðri deild: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1579 í B-deild Alþingistíðinda. (1165)

15. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu

Guðlaugar Gíslason:

Herra forseti. Vegna orða hæstv. forseta vil ég geta þess, að ég bar þetta undir skrifstofustjóra Alþingis, og tjáði hann mér, að þetta væri eðlilegt form, sem hér hefði verið viðhaft, að taka upp orðréttan hluta af fyrri till. Mér var tjáð, að það væri eðlilegt form á málinu.

Vegna beiðni hæstv. ráðh. um að draga till. til baka gegn því, að hann leitaði álits aðila, sem þarna eiga hlut að máli, bæði í Vestmannaeyjum, Grindavík og viðar á Suðurnesjum, þá vil ég segja það, að ég vildi mjög gjarnan fallast á þessa beiðni. En það er nokkur hængur á því. Það er samdóma álit, a.m.k. hef ég það frá aðilum í Eyjum, að sá tími, — sem er tilgreindur í gildandi reglugerð, sé of stuttur, þetta sé ekki nema hluti af hrygningartímanum, og fer það saman við það, sem fiskifræðingar hafa einnig látið í ljós. Þeir telja sig ekki geta staðhæft með neinum rökum, að hrygning fari fram nákvæmlega innan þess tíma. Það sé meiri von til, að till. mundi ná tilgangi sínum, ef tímamörkin væru rýmri. En það út af fyrir sig er þó alltaf áfangi á leið að hafa tímamörkin eins og þau eru, þó að þau séu talin vera of stutt. En það er annað, sem ég á erfiðara með að sætta mig við, ef ég félli frá till., en það er, að ráðh. gerir það að skilyrði, að það næðist sæmilegt samkomulag milli þeirra aðila, sem þarna eiga hlut að máli. Hann tjáði hér, að hann vissi um aðila í Grindavík, sem væru þessu mótfallnir. Ég vil geta þess, að á fundi, sem fiskveiðilaganefnd hélt í Grindavík, — ég held, að ég fari þar alveg rétt með og muni það rétt, það verður þá leiðrétt, ef það er ekki rétt hjá mér, — að þar kom í ræðustól sá maður, sem ég held, að mestum afla hafi skilað á land þar á s.l. vertíð, og ég minnist þess ekki, að hann hreyfði neinum andmælum við hugmyndinni um friðun á þessu svæði. Ég man nú því miður ekki nafn þessa manns, en ég hjó þó sérstaklega eftir þessu, af því að ég bjóst við, að andmælin mundu kannske koma frá útgerðarmönnum eða sjómönnum í Grindavík. En ég tel mig muna alveg rétt, að það hafi ekki komið nokkur andmæli, og ég held, að ég muni það einnig rétt, að þeir hafi talið sig hlynnta þessari hugmynd. Það, sem ég þarf að fá nánar skilgreint hjá hæstv. ráðh., ef hann treystir sér til þess, er þetta: Hvað má þessi ágreiningur vera mikill? Við skulum segja, að nokkrir aðilar í Grindavík séu þessu andvígir, allir aðilar í Vestmannaeyjum séu meðmæltir, mundi hann þá meta málið þannig, að það væri meiri hl., sem væri þessu meðmæltur, og hann treysti sér á þeim forsendum að verða við þessum tilmælum?

Ég verð að segja í þessu sambandi, að ég veit ekki, hvort Alþ. á að fara inn á þá braut að láta aðila, sem þarna eiga hlut að máli, þ.e. sjómenn og útgerðarmenn, hafa úrslitavald um slík atriði. Ég tel, að undir svona kringumstæðum þurfi, eins og hæstv. ráðh. hefur bent á bæði í ræðum sínum í gær og einnig aðrir, að liggja fyrir álit fiskifræðinga, hvort þeir telji þetta eðlilegt, skynsamlegt og nauðsynlegt eða ekki. Nú er vitað, að einmitt um þetta svæði liggur fyrir alveg skýlaust álit fiskifræðinga, þar sem þeir telja, að ef eigi að friða svæðið, þá verði einnig að friða það fyrir netaveiði, og þeir hafa mælt með því, að það verði gert. Ég hef það úr skýrslu þeirra, að þeir mæla með því, að svæðið verði það sem þeir kalla alfriðað og þá sérstaklega fyrir þorskanetaveiðum. Og þar sem þessi yfirlýsing fiskifræðinga liggur fyrir og einnig einróma álit sjómanna og útgerðarmanna í stærstu verstöð, sem þarna á hlut að máli, mætti ætla, að hæstv. ráðh. teldi þetta nægjanlegt, þó að einhver andmæli kæmu frá öðrum smærri veiðistöðum, að þá mætti meta málið þannig, að hann sæi sér fært að breyta reglugerðinni þannig, að hún næði til netaveiða einnig. Ef hann teldi sig geta metið málið þannig, að hann mundi þá breyta reglugerðinni á þann veg, sem hann hér lýsti, mundi ég fyrir mitt leyti vera reiðubúinn að falla frá brtt., því að ég tel, að þá hafi málið þokazt nokkuð í þá átt, sem till, gerir ráð fyrir. Það er þetta, sem ég óska eftir að fá svar við hjá hæstv. ráðh., hvort hann treysti sér til að gefa yfirlýsingu um, að hann telji sér nægja umsögn fiskifræðinga og till. aðila úr Vestmannaeyjum, þó að einhver andmæli kæmu frá einhverjum aðilum í hinum smærri verstöðvum, þá mundi hann samt telja slíkt nægjanlegan grundvöll til að breyta reglugerðinni í það horf, sem till. okkar gerir ráð fyrir.