24.10.1972
Sameinað þing: 7. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í B-deild Alþingistíðinda. (117)

1. mál, fjárlög 1973

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Ég veitti því athygli undir ræðu hv. 2. þm. Norðurl. e., að hann vísaði til þess, að hann hefði í fórum sínum ræður frá því, þegar hæstv. fjmrh. var í stjórnarandstöðu og var höfuðmálssvari síns flokks í umr. um fjárlög að jafnaði, að ég hygg, upp undir áratug. Það kom hins vegar fram hjá hv. 2. þm. Norðurl. e., að hann, að því er manni Fannst af samúð með hæstv. fjmrh., sleppti að vitna bókstaflega til þessara ræðna hans. En það er að vísu svo, að ég hef, eins og ég geri ráð fyrir allir aðrir, ríka samúð með hæstv. fjmrh., en ég fór svo að glugga í einar tvær ræður hæstv. ráðh. frá því í okt.

1969 og í okt. 1970, og þar var ýmsan fróðleik að finna, sem ég gat ekki meint, að ætti í neinu að skaða, þótt rifjaður væri upp, sér í lagi af því mér sýnist, að þar komi fram alveg framúrskarandi og ljómandi framsóknarmennska.

Hæstv. fjmrh. segir í ræðu sinni hinn 20. okt. 1969 í 1. umr. um fjárl. svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Fjárlög íslenzka ríkisins hafa nærri tífaldazt síðan 1958, þ.e. síðan áhrifa núverandi valdhafa fór að gæta, og hækkun þeirra er 145% síðan 1965, að núv. fjmrh. (þ.e. hv. 2. þm. Norðurl. e.) settist í valdastól. Ef sama þróun á sér stað til næstu aldamóta, eins og orðið hefur síðustu 5 árin, þá liti myndin þannig út með 5 ára millibili: Árið 1975 yrðu niðurstöðutölur fjárl. 19 milljarðar og 500 millj. kr.“

Það rifjaðist upp fyrir mér, að eitt sinn heimsóttu vinir Bjarts í Sumarhúsum hann og höfðu uppi þar merkilegar samræður, sér í lagi af því, að Ólafur í Yztadal, sem var mjög svo vísindalegur í hugsun, hafði varpað fram ýmsum spurningum, sem vöfðust fyrir mönnum. Og Bjartur fór þá að segja frá því, þegar faðir hans hafði verið í Reykholti suður og sagði: „Það var eitt sinn á hvítasunnumorgun sem oftar, að faðir minn þurfti að skera kálf í Reykholti á bæjarhólnum fyrir framan skemmudyrnar. Og nú vil ég leggja fyrir ykkur spurningu eins og hann Ólafur okkar hérna áðan: Hvað haldið þið, að kálfurinn geri?“ Gestir Bjartar gáfust þegar upp við spurninguna, en nú bjargaði hin vísindalega hugsun Ólafs í Yztadal honum og hann sagði að bragði: „Bezt gæti ég trúað, að kálfurinn hafi stokkið höfuðlaus úr klofinu á honum föður þinum sáluga út um víðan völl.“ „Seigur er Ólafur,“ sagði Bjartur, „nærri fórstu, en ekki hafðir þú það. Þannig vill til, að fyrir neðan bæjarhólinn í Reykholti er hver, og haldið þið ekki, þegar faðir minn sálugi hafði skorið hausinn af kálfinum, að hann stökkvi úr klofinu á honum og beint niður í hverinn.“ „Hvernig átti ég að vara mig á þessu, þar sem þú hafðir ekki getið þess, að hver væri beint fyrir neðan bæjarhólinn?“ sagði Ólafur í Yztadal og var gramur.

Þegar hæstv. fjmrh., sem er góður í prósentureikningi, hafði framið þennan vísindalega útreikning, þá gáði hann ekki að því, enda höfðu honum ekki verið veittar um það upplýsingar, að það mundi vera heitur pyttur í nágrenninu, að hæstv. fyrrv. fjmrh., Magnús Jónsson, og hans stefna ættu skammt eftir, en við tæki annað og önnur stefna, hans eigin. Og hann kemst þannig áfram í reikningi sínum, að hann fær út árið 2000 allháa fjárhæð. En ef ég beiti svipuðum reikningi og skal nú ekki jafna mig til móts við hæstv. fjmrh., þá skilst mér, að ef hans stefna ríkir til ársins 2000, þá muni upphæð fjárl. vera orðin 2 billjónir og 700 millj. (Gripið fram í) Er þetta lauslega reiknað? En hann leiðréttir þetta þá, hæstv. fjmrh., þegar tækifæri gefst til.

Hæstv. núv. fjmrh., þáv. aðalmálsvari flokksins í fjármálum og umræðum um fjárlög, segir enn fremur í þessari tilvitnuðu ræðu, að alvarlega horfi vegna þess mikla nefndafargans og það þurfi að gera gangskör að því að leggja niður fjölda nefnda til þess að spara útgjöld hjá ríkissjóði, og nefnir þar m.a., hvort ekki væri ráð að sameina Efnahagsstofnunina hagdeild Seðlabankans. Það er eins og í fleiru, þegar gripið er niður í orðum hans, frá því að hann var í stjórnarandstöðu, og til gerða hans nú í stjórn, að þar skýtur ýmsu skökku við. Að vísu hafði hann um það frumkvæði ásamt samstarfsflokkum sínum að leggja niður Efnahagsstofnunina. En hann sameinaði hana ekki hagdeild Seðlabankans, heldur stóð hann að stofnun þess risafyrirtækis og yfirnefndar, nefndar allra nefnda, sem er Framkvæmdastofnun ríkisins. Og það væri kannske ráð fljótlega að gera fsp. um það hér í þingi, hvernig starfsemi þeirrar stórstofnunar er háttað, og ég hygg, að hæstv. forsrh., sem ekki gefur sér tíma til þess að fylgjast með umr. um fjárlög hér, það snúi e.t.v. að honum að veita upplýsingar þar um.

En það hefur komið fram hér í umr., að því fer fjarri, víðs fjarri, að hæstv. núv. ríkisstj. hafi beitt sér fyrir fækkun nefnda, heldur þvert á móti, enda mun nefndum í hennar tíð hafa fjölgað um einar 50, enda þótt einhverjar hafi verið skornar niður við trog. Og m.a. er ein frægust nefnda sú, sem skipuð var af hæstv. ríkisstj. á ársafmæli hennar, að ég hygg, þegar henni var ljóst, að einhverjar ráðstafanir alvarlegar þyrfti að gera til viðreisnar í fjármálum. Og það er hin svonefnda valkostanefnd. Fjmrh. tók það fram eða eitthvað í þá átt, að menn þyrftu ekkert að undrast, þótt ríkisstj. þyrfti að skipa nefndir til þess að vinna með sér störfin. Og það skal alls ekkert undrazt yfir því, þótt hæstv. núv. ríkisstj. þurfi að fá mjög marga menn til þess að vinna með sér verkin og nýjar nefndir. En þessi n. er sérstaklega athyglisverð fyrir það, þessi n., sem ég nefndi, valkostanefndin, að stór meiri hluti þeirrar n. er skipaður mönnum, sem kallast mega, að hafi verið aðalráðunautar fyrrv. ríkisstj. og mjög áhrifaríkir um mótun stefnu hennar í efnahagsmálum. Ekki skal það heldur lastað. En það kemur vissulega ýmsum á óvart, að þar er að finna prófessor Ólaf Björnsson, sem, eins og ég segi, var ekki einvörðungu aðalráðgjafi fyrrv. ríkisstj. í efnahagsmálum á viðreisnartímanum, heldur aðalráðgjafi Sjálfstfl. í efnahagsmálum allt frá því fyrir 1950. Og oft hefur mátt lesa það á undanförnum áratugum, að stuðningsmenn hæstv. núv. ríkisstj. hafa síður en svo haft mikið álit á þeim ráðagerðum, sem hann hefur haft uppi um stjórn þjóðarbúsins. Í þessari valkostanefnd er enn fremur seðlabankastjóri Jóhannes Nordal. Menn hafa haft það fyrir augum um allmörg ár, a.m.k. meðan núv. hv, ríkisstjórnarflokkar voru í stjórnarandstöðu, að þeir virtust mjög hafa það á oddi, að þar færi ekki maður, sem væri vel treystandi til þess að taka þær ákvarðanir, sem helzt skyldi hafa í frammi í efnahagsmálum, og nefndu stefnu hans í háði Nordalsfrystihús o.s.frv. Fleiri mætti telja, en ljóst er, að meiri hluta þessarar nefndar skipa, menn sem voru mjög áhrifaríkir og sumir hverjir þeir áhrifaríkustu um mótun þeirrar efnahagsstefnu, sem fylgt var af fyrrv. ríkisstj. Og ég skal ekkert um það segja, hvaða valkosti hún mun leggja fyrir hæstv. ríkisstj. um leiðir í efnahagsmálum. Ég verð að segja, að það hafa ýmsir haft á orði, að það hafi verið kjarkur af hæstv. forsrh., sem því miður er ekki viðstaddur, að hefja hásætisræðu sína á því, að stefna ríkisstj. væri óbreytt, og hafa viljað kalla það mikinn kjark af hans hálfu. Það er ég sannfærður um, að þetta er ekki kjarkur. Sá maður, sem gerir sér grein fyrir ástandi og horfum í efnahagsmálum nú, hefur alls ekki slíkan kjark til þess að lýsa slíku og þvílíku yfir. Þetta hlýtur að stafa af því, að hæstv. forsrh. gerir sér ekki grein fyrir ástandi og horfum, og engu öðru. Og nú, þegar valkostanefndin leggur fram sína valkosti, færri eða fleiri, þá er að sjá, hvernig brugðizt verður við. Bezt gæti ég trúað því og það væri í samræmi við annað, að þetta yrði sett í einn hatt og hæstv. sjútvrh. fengi að draga úr hattinum undir vitni hæstv. heilbrh. og það mundi þá ráða ferðinni. En sleppum því.

Ég ætla ekki að láta alveg staðar numið við að vitna í hæstv. núv. fjmrh. Hann segir hér, með leyfi hæstv. forseta:

„Ég vil undirstrika það, að málum ríkissjóðs er þannig komið, að fjárlög hækka um milljarða á milli ára vegna aukins rekstrarkostnaðar, en verklegar framkvæmdir ríkissjóðs, er áður voru greiddar af samtímatekjum, eru fjármagnaðar með lánsfé.

Hæstv. ráðh. er hér að lasta það sérstaklega, að framkvæmdir ríkissjóðs séu fjármagnaðar með lánsfé. Nú höfum við aftur á móti fyrir augum, hvernig ástatt er í þessum efnum hjá hæstv. núv. ríkisstj., og auðvelt að ganga úr skugga um, hvað gífurlega háar lántökur eru á þessum skamma tíma, sem hún hefur setið við völd, og hversu skuldasúpa ríkissjóðs hefur hækkað gífurlega.

Þá er að vitna enn í hæstv. fjmrh. og það er ekkert langt síðan þessi speki var fram sett. Það er aðeins frá árinu 1969. Og nú kemur hér lesning, sem er afar athyglisverð og mundi tæplega vera hægt að vitna upp á annan heldur en mann, sem hefur tekið stórar gráður í framsóknarmennsku. Og þetta hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Forstjóri Landssímans hefur að engu haft tilraunir ríkisstj. til að ná til þeirra tekna, er Landssíminn aflar, heldur notar þær eingöngu til rekstrar og uppbyggingar í stofnuninni sjálfri. Hann hefur meira að segja (þ.e. forstjóri Landssímans) verið það harður í horn að taka í vörn sinni við ásókn ríkissjóðs í fjármuni Landssímans, að hann hefur komið í veg fyrir, að söluskattur væri lagður á tekjur Landssimans. Með þessum hætti hefur Landssimanum tekizt að byggja kerfi sitt upp með undraverðum hraða og þannig lagt grundvöll að miklum tekjum stofnunarinnar í framtiðinni. Ég hef ekki heyrt, að því væri haldið fram, að það væri ábyrgðarleysi af forstjóra Landssímans að láta stofnun sína njóta þeirra fjármuna, sem hún aflar, þó að á því sé smjattað á opinberum vettvangi af ráðamönnum þjóðfélagsins og það jafnvel þeim, er sízt skyldi.“

Svo mörg eru þau orð. Það þarf enginn að segja mér það, að hæstv. fjmrh. hafi verið búinn að gleyma þessari ræðu sinni, þegar hann ákvað á s.l. ári að leggja söluskatt á tekjur Landssímans. Þetta er aðeins dæmi um framúrskarandi framsóknarmennsku. Að sjálfsögðu hefur honum verið þetta ofarlega í mínni. En eftir sem áður var þetta eitt af hans fyrstu verkum, sem hann hælir Landssímanum sérstaklega fyrir árið 1969, að honum hafi tekizt að verjast þeirri ásókn, að farið yrði til og teknar af honum tekjur eða lagður söluskattur á tekjur hans, þá er það hans fyrsta verk, þegar hann tekur við stjórn fjármálanna, að leggja söluskatt þar á. Og hvernig er svo ástandinu háttað nú hjá Landssímanum, sem hefur t.d. með höndum dreifingu sjónvarps í landinu? Mér er fullkunnugt um það, að sú framkvæmd er stórsvelt fjármálalega séð, — stórsvelt, — og það hefur orðið stórlega að draga úr þeim framkvæmdum, sem áformaðar voru. Betra hefði verið, að forstjóra Landssímans hefði tekizt að verjast ásókn hæstv. fjmrh. og fengið að hækka sín gjöld til þess að stofnunin sjálf fengi að ráða yfir sínu fjármagni til hinna nauðsynlegu framkvæmda, sem dreifing sjónvarpsins t.d. er um landið.

Þá kemur hér einn lærdómurinn hjá hæstv. fjmrh. í stjórnarandstöðunni þáv. Hann segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Það er með öllu óskiljanlegt, hvað því veldur, að persónufrádráttur til skatts skuli ekki hafa verið hækkaður. Það vekur undrun, að í fjárlagafrv. fyrir árið 1970 er gert ráð fyrir honum lítið breyttum, þar sem áætluð er 10% hækkun á tekjuskatti. Við það getur þjóðin ekki unað, að lagðir séu háir skattar á nauðþurftartekjur, eins og nú er gert. Persónufrádráttur verður að breytast í samræmi við breyttan framfærslukostnað.“

Mönnum er í fersku minni, með hverjum hætti hann fór að þessum eigin orðum á s.l. ári við afgreiðslu fjárl. þá. Hann segir enn fremur í ræðu sinni árið 1970 við 1. umr. um fjárlög þá, með leyfi hæstv. forseta:

„Framsóknarmenn telja, að eitt af þeim atriðum, sem nota þurfi til baráttu gegn verðbólgunni, sé að fella niður söluskatt af mestu nauðsynjum og hafa persónufrádrátt til skatts þannig, að ekki sé lagt á nauðþurfartekjur eins og nú er gert. Það er röng stefna að dómi framsóknarmanna að hagnýta sér vöxt verðbólgunnar til aukinnar skattheimtu.“

Hér er tekið mjög svo skýrt til orða. Það fer ekkert milli mála, að það er að dómi framsóknarmanna röng stefna að hagnýta sér verðbólgu til aukinnar skattheimtu. Hvernig hefur nú hæstv. fjmrh. farið eftir þessari stefnu Framsfl., eins og hún var árið 1970? Þessu geta allir hv. þm. svarað sér sjálfir af kunnugleika sínum af því, hvernig þessi mál hafa verið framkvæmd, hinni gífurlegu skattpíningu, sem átti sér stað samkv. skattal., sem var rubbað hér í gegnum þingið á s.l. ári. Hann segir meira um skattamál, og það er mjög athyglisvert að kynna sér það aðeins, og það snertir atvinnufyrirtæki í landinu. Ein af forsendunum fyrir skattalagabreytingunni í fyrra, var sú, að fyrrv. ríkisstj. hefði ætlað að ívilna atvinnufyrirtækjunum í landinu og það bæri hina mestu nauðsyn til þess að breyta því. En árið 1969 hefur hann þetta að segja, hæstv. fjmrh., um skattalagningu á atvinnufyrirtæki, með leyfi hæstv. forseta:

„Það sama er að segja um skatta á atvinnufyrirtæki. Í verðbólguþjóðfélagi sem okkar verður sú regla að gilda, að afskriftir séu miðaðar við endurkaupsverð. Með öðru móti er fyrirtækjum með öllu gert ókleift að endurnýja sig. Eitt af því, sem hefur verið óskabarn núverandi valdhafa, er, að skattur á skatt ofan sé lagður á atvinnufyrirtæki landsins, sem nemur nú orðið háum fjárhæðum. Væri þörf hreingerningar þar til stuðnings við atvinnuvegina.“

Þetta er talsmaður Framsfl., sem er að setja fram þá stefnu, sem sá flokkur hafði í þessum málum árin 1969 og 1970. En svo bregður við, að strax og þeir eru komnir í stjórn, þá er þessu öllu öfugt farið og ekkert stenzt af þeim kennisetningum, sem efstar voru hafðar í frammi á þeim tíma, sem þeir voru sjálfir í stjórnarandstöðu. Læt ég svo lokið tilvitnunum í þessa stórfróðlegu ræðu hæstv. fjmrh. frá því, þegar hann var höfuðtalsmaður sins flokks í umr. um fjárl. hér á hinu háa Alþ. árin 1969 og 1970, en það er af miklu, miklu meira að taka. En það endist enginn maður til þess, enda veit ég svo sem ekki, ef í alvöru er talað, hversu mikið er upp úr þessu leggjandi. En það er þó fróðlegt að kynnast þessu á marga vísu.

Ég vil aðeins svo að lokum víkja að nokkrum fréttum, sem sagðar voru í Þjóðviljanum í gær af skýrslu eða upplýsingum, sem hæstv. sjútvrh. hafði veitt þingi þeirra Alþb: manna. Og þar kemur ýmislegt fróðlegt fram. Í lok ræðu sinnar hafði hann vikið að þeim vandamálum, sem nú væri glímt við, og með leyfi hæstv. forseta vil ég tilvitna orðrétt, sem sagt er hér. „Hann sagði, að vissulega væri við nokkra erfiðleika að stríða vegna stórminnkaðs fiskafla. Sennilega yrði að afla nær 100 millj. kr. í tengslum við endanlega fjárlagaafgreiðslu, en þá upphæð kostaði að greiða niður 5–7 vísitölustig í eitt ár. Einnig þyrfti útflutningsframleiðslan og fjárfestingarsjóðir á nokkurri fjáröflun að halda.“ Þarna er tekið mjög vægt til orða, og hér er ekki um stóran vanda að tefla, eftir því sem fram kemur í þessari frétt. Nú kann að vera, að þar sé einhverju hallað til, en eftir því sem mér heyrðist á samþykktum ráðstefnu eða þings þeirra Alþb: manna í útvarpinu í hádeginu, þá var kveðið þar miklu fastar að orði en þetta um þau vandamál. sem þyrfti að glíma við og þyrfti að leysa fyrir áramót nú. Ef það hefði verið einhver annar en hæstv. sjútvrh., sem hefði fullyrt, að 100 millj. kr. þyrfti í tengslum við endanlega fjárlagaafgreiðslu, en þá upphæð kostaði að greiða niður 5–7 vísitölustig, — ef það hefði verið einhver annar annar en hæstv. sjútvrh., sem sagði þetta, þá hefði ég reiknað með, að þetta væri prentvilla. En e.t.v. fáum við skýringar á þessu. En það er ekki mikið um að vera og vandinn ekki stór, þegar hæstv. sjútvrh. er mættur á þingi sinna manna og er að leggja þar fram skýrslur sínar um ástand og horfur í efnahagsmálum.

Hann lætur þess getið eftir umsögn Þjóðviljans, að það hafi verið lagður grundvöllur að nýrri atvinnuþróun, uppbyggingu togaraflotans þýði atvinnulega byltingu fyrir marga staði úti um land. Nú hefur verið rætt hér um arfinn, sem þessi hæstv. ríkisstj. tók við af fyrrv. ríkisstj., og yfirleitt hafa þeir lastað hann með stórum orðum. Hv. 2. þm. Norðl. e. vék sérstaklega að þessu máli. En þarna er þó varðandi uppbyggingu togaraflotans um arf að tefla frá hæstv. fyrrv. ríkisstj., svo að það fer ekki á milli mála. Ég vil láta þess getið, að í tíð fyrrv. ríkisstj. hafði verið tekin ákvörðun a.m.k. með lagasetningu um smíði 8 togara af stærstu gerð, um 1000 tonn og enn fremur um 5 af millistærð, tæpra 500 tonna, í Noregi, þarna eru 13. Enn fremur höfðu verið keyptir til landsins eldri togarar af minni gerð til Neskaupstaðar, til Eskifjarðar, til Siglufjarðar, og fyrrv. ríkisstj,. hafði tekið ákvörðun um kaup og byggingu á eldri og nýjum skuttogurum 17 talsins. Og það var ærin framkvæmd, þannig að þegar hæstv. núv. ríkisstj. er að hæla sér af því að hafa staðið fyrir þessari atvinnubyltingu, sem þeir svo nefna, þá vil ég aðeins leyfa mér að rifja það upp, að allt frumkvæði í þessu er verk fyrrv. ríkisstj. Að vísu er það rétt, að haldið hefur verið áfram á þessari braut — og kannske um of, ekkert vil ég um það fullyrða. Ljóst er, að við höfum orðið nokkuð á eftir tímanum í þessu efni. Við höfum misst af allmörgum árum, sem við hefðum þurft að nota til þess að byggja þessa atvinnugrein upp, en ástæðan fyrir því er fyrst og fremst sú, að á þessum árum bjó okkar togaraútgerð við mjög bágborinn hag. Og það er fyrst á árinu 1969 og sér í lagi 1970, sem svo raknar úr um útgerð togaranna, að áhugi vaknar fyrir því að festa kaup á þessum framleiðslutækjum. Vitaskuld er það fyrst og fremst fyrir þann áhuga, sem vaknaði, sem þau kaup og samningar, sem gerðir hafa verðir síðan um kaup á þessum atvinnufyrirtækjum, hafa verið gerð. Það er fyrst og fremst fyrir þessa möguleika, sem opnuðust, fyrir það, að menn hafa nú áttað sig á því, að þetta er nýi tíminn í þessu efni og auðvitað hljótum við og allra helzt við Íslendingar að leggja höfuðáherzlu á uppbyggingu þessa atvinnuvegar með kaupum á þessum nýtízku framleiðslutækjum.

Ég dreg enga dul á það, að ég álít, að hæstv. fyrrv. ríkisstj. hefði átt að bregða fyrr við og reyna að efna til þess, að þessi tæki yrðu keypt til landsins. En ytri skilyrði voru ýmis mjög svo öndverð, þannig að ekki varð af þessu fyrr en á árinu 1969, að ákvarðanir eru teknar, og í kjölfarið fylgdu þeir samningar, sem gerðir voru um kaup á samtals 17 skipum af þessari tegund í tíð fyrrv. ríkisstj.

Eftir umsögn Þjóðviljans hefur hæstv. sjútvrh. orðað það svo á ráðstefnu Alþb.-manna, að atvinnuleysinu, sem viðreisnarstjórnin lét viðgangast, hefði verið útrýmt. Sem betur fer er atvinnuleysi ekki ríkjandi í þessu þjóðfélagi. En þetta orðaval, að atvinnuleysinu, sem viðreisnarstjórnin lét viðgangast, hafi verið útrýmt, er með þeim hætti, að því verður ekki látið ómótmælt. Eða hvað segja hæstv. félmrh. og hv. þm. Björn Jónsson, forseti A.S.Í., um það, að fyrrv. ríkisstj. hafi látið atvinnuleysi viðgangast? Hvaða dóm vilja þeir kveða upp úr um það? Sannleikurinn er sá, að þau stóráföll, sem við urðum fyrir á árunum 1967 og 1968 og allt fram á árið 1969 voru með þeim hætti, að ekkert er saman við að jafna. Og það var með algerum ólíkindum, að takast skyldi að vinna bug á hinu alvarlega og gífurlega atvinnuleysi, sem varð þá í landinu. Og það hefur aldrei verið brugðið myndarlegar við til þess að vinna bug á þessum ógnarvanda, en það er vitaskuld einhver mesti vandi og hörmulegast, þegar atvinnuleysi heldur innreið sína í einu þjóðfélagi. Ég vil minna á stofnun atvinnumálanefndanna, sem urðu til gífurlegrar hjálpar við að útrýma atvinnuleysinu, og það er stærsta átak, sem hefur verið gert, sem ég a.m.k. þekki til, í þeim efnum. Og ég vil minna hæstv. sjútvrh. á, að það var ekki hvað sízt til mikillar uppörvunar og til viðreisnar atvinnulífi á Austurlandi, sem þessar aðgerðir með stofnun atvinnumálanefndanna urðu. Mér er nær að halda, að það hefði haft meiri þýðingu og meiri áhrif til uppbyggingar eftir hin miklu áföll, sem þar urðu vegna þess, að síldin hvarf af miðunum. Nei, það skal hafa það, sem sannara reynist, og í þessari fullyrðingu um, að viðreisnarstjórnin hafi látið atvinnuleysið viðgangast í þjóðfélaginu, er svo farið með staðreyndir, að það getur ekki staðið, án þess að því verði harkalega mótmælt, enda má færa að því skýr rök, að þetta er alrangt.

Ég nefndi þetta sérstaklega varðandi togaruppbygginguna af því, að þessar staðreyndir liggja nú til málsins. Það er mjög haft í orði af þeim hv. stjórnarsinnum, að efnahagsvandinn, sem nú er við að glíma, stafi af aflabresti. Ég vil minna á, að það var sér í lagi Dagblaðið Tíminn og þeir framsóknarmenn, sem héldu því statt og stöðugt fram á miklum áfallaárum okkar, að þetta væri svo sem ekkert sérstakt, sem þar væri á ferðinni varðandi aflabrestinn og lækkun útflutningsafurða okkar þá. En nú er reynt að halda því að fólki, að aflabrestur sé ein höfuðorsök þess efnahagsvanda, sem nú blasir við. Þetta er auðvitað fjarri öllu lagi. Að vísu hefur þorskaflinn minnkað nokkuð, og það er mjög alvarlegt út af fyrir sig. En að það eigi einhvern verulegan þátt, einhvern snarasta þáttinn í þeim örðugleikum, sem nú er við að etja, það er fjarri öllu lagi, og má m.a. benda á það, að nú hefur verð á t.d. fiskmjöli hækkað svo mikið, að það slagar nokkuð upp í það, að vega upp á móti þessum aflabresti, sem um er talað. Það eru náttúrlega rök, sem eru haldlaus, að ætla að fara að halda því fram, að aflabrestur nú sé orsök þess efnahagsvanda, sem við er að glíma. Sá vandi er allur heimatilbúinn, og eins og þetta fjárlagafrv., sem hér er til umr., ber með sér, þá vantar þar í allt, þannig að menn geti af því markað, hver stefna hæstv. núv. ríkisstj. er í þessum málum og hvernig hún ætlar að bregðast við vandanum. Mála sannast er það, að fjárlagafrv. er höfuðlaust og hleypur nú sennilega í heita pyttinn hjá hæstv. fjmrh.