20.12.1972
Neðri deild: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1581 í B-deild Alþingistíðinda. (1170)

131. mál, vegalög

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Þetta frv. til l. um breyt. á vegal. er komið frá hv. Ed., þar sem það var samþ. efnislega óbreytt, en formbreyting á þá leið varð á frv. í meðferð Ed., að til samræmis við formið varðandi 1., 2. og 3. gr. verði vitnað til þess í 4. gr., hvaða gr. vegal. breyttist með þessari gr. En texti gr., 4. gr., er nákvæmlega eins í brtt. og í frv. sjálfu.

Breytingarnar í frv. eru við 85., 86., 87. og 88. gr. vegal. Efni frv. er það að hækka nokkuð innflutningsgjald af hjólbörðum, notuðum og nýjum, og gúmmíslöngum í bifreiðar og bifhjól. Það er breytingin á 86. gr. vegal. 85. gr. breytist varðandi innflutningsgjald af benzíni. 87 gr. fjallar um hækkun þungaskatts. Og 88. gr. felur í sér breytingu varðandi skatt af jeppabifreiðum. Tilgangurinn með frv. er sá að auka fjármagn til framkvæmda vegáætlunar og draga úr lánsfjárþörf vegna vegaframkvæmda. Þetta er í raun og veru ráðstöfun til þess, að ekki dragist saman framkvæmdir í vegamálum, til þess að mæta vaxandi dýrtíð og til þess, eins og ég áðan sagði, að draga úr lánsfjárþörf.

Innflutningsgjald af benzíni hækkar samkv. þessu frv. um 2 kr. á lítrann, en gúmmígjald og þungaskattur hækka í hlutfalli við það. Þó er þungaskattur af benzínbílum óbreyttur. Hann verður svo sem hann er nú í vegal. Innflutningsgjaldið af benzíni er nú 7.87 kr. og verður að frv. samþykktu 9.87 kr. á lítra. Í vegáætluninni var áætlað innflutningsgjald á árinu 1973 af 90.2 millj, lítra, en sú áætlun hefur ekki staðizt og er nú lækkuð í 88.6 millj. lítra, og er þar sem sé byggt á reynslu yfirstandandi árs. Þungaskattur á dísilbifreiðum er nú 22 þús. kr. á ári fyrir bifreiðar að eigin þunga allt að 2 tonnum og að viðbættum 750 kr. fyrir hver 100 kg, og fyrir dísilbifreiðar allt að 5 tonnum er þetta viðbótargjald samkv. mæli. Með hlutfallslegri hækkun miðað við innflutningsgjald verður hækkunin annars vegar í 27500 úr 22 þús. og hins vegar í 950 kr. fyrir 100 kg umfram 2 tonn, en er 750 kr. nú.

Frv. fylgir tafla yfir það, hvernig tekjuhækkunin kemur út fyrir árin 1973, 1974 og 1975, árin, sem vegáætlunin nær yfir, og er hér um að ræða 204 millj. á árinu 1973, 246.6 millj. á árinu 1974 og 262.2 millj. á árinu 1975.

Ég skal að lokum upplýsa það, að tvö ár eru liðin síðan síðasta breyting var gerð á þessum gjöldum. Síðasta hækkun var gerð í des. 1970, og verðbreytingar eru svo örar í okkar þjóðfélagi, að flest frv., sem ætlunin er, að fylgi hækkandi verðlagi, eru oftast endurskoðuð árlega, en sjaldan með lengri millibilum en á tveggja ára fresti. Getur því ekki talizt óeðlilegt, þó að þessar tölur séu færðar til núverandi verðlags, og er hækkunin ekki fjarlæg því að vera hlutfallslega við verðhækkanir síðan 1970.

Það má að vísu segja, að það sé illt að þurfa að íþyngja skattþegnum landsins með slíkum hækkunum, en ég held samt, að flestir hv. alþm. líti á það sem aðalatriði, að ekki þurfi að draga saman framkvæmdir í vega- og öðrum samgöngumálum, og vissulega er frv. ætlað að ráða nokkra bót á því. Við viljum auðvitað öll sízt af öllu una því, að samdráttur verði í vegagerð, og á því sviði er a.m.k. áreiðanlegt, að við teljum það afturför, ef við stöndum í stað að því er snertir þessi verkefni.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði vísað til samgn. deildarinnar.