20.12.1972
Neðri deild: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1591 í B-deild Alþingistíðinda. (1173)
131. mál, vegalög
Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Það er fjarri því, að ég sé sammála hv. 1. þm. Sunnl. og flestar þær röksemdir, sem hann færði nú fram, eru alveg andstæðar þeim röksemdum, sem hann færði fram annað hvert ár, þegar hann stóð hér í mínum sporum áður fyrr við að bera fram till. um að hækka þessi gjöld. Ég kýs því að svara ræðu hans, ef mér finnst ástæða til, við 2. umr. málsins. En eins og okkar tíma er nú háttað um þinghaldið, tel ég rétt að láta málið fara til n. fyrir kvöldverð og geyma mér síðan að ræða við hv. þm.