20.12.1972
Neðri deild: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1603 í B-deild Alþingistíðinda. (1182)

95. mál, almannatryggingar

Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Ég á dálítið erfitt með að skilja þessar langvinnu umr. Ég hélt, að okkur væri öllum ljóst, að það er nauðsynlegt, að þær breytingar á almannatryggingal., sem þegar er búið að fjalla um, nái fram að ganga fyrir áramót, og ég sé ekki, hvernig við bætum okkur á því að halda áfram endalausum ræðum um þetta mál núna. Það liggur í hlutarins eðli, að ef menn vilja reyna að koma fram breytingu núna, þá er það afar einfalt. Það er hægt að taka efnisatriðin úr brtt. mínum og setja þau inn í siglingal., sem liggja einnig fyrir, það væri þá nær fyrir þá menn, sem eru hér að halda ræður, að fara að vinna að því að leysa málið á þann hátt.

Í sambandi við málið sjálft ætla ég ekki að fara hér í neinar deilur. En út af því, sem sagt hefur verið hér um ýmis fyrirheit, vil ég aðeins taka þetta fram: Ég gaf Landssambandi ísl. útvegsmanna fyrirheit um það, að ég mundi beita mér fyrir því, að ákvæði um slysatryggingu sjómanna yrði breytt þannig, að þar yrði um að ræða afmarkaðri og betur skilgreinda tryggingu en gert var í siglingal. í fyrra, til þess að sú tortryggni, sem uppi var, að af þessu gæti leitt óhemjulegar greiðslur, yrði kveðin niður. Ég hef ekki orðið var við neinn ágreining varðandi það, að mér hafi ekki tekizt þetta. Ég hef staðið algerlega við þetta fyrirheit. Ég setti mér það einnig að standa við þetta fyrirheit á þann hátt, að ég gengi á engan hátt á eðlilegan rétt sjómanna, og ég hef orð Sjómannasambandsins fyrir því, að ég hef einnig staðið við það fyrirheit. Það er hvorugt þetta, sem um er deilt. Það, sem um hefur verið deilt hér í dag, er, að þau sömu vátryggingafélög, sem neituðu að taka þessa tryggingu að sér í haust, telja sig nú geta grætt á því að framkvæma hana. En ég hef aldrei gefið neitt fyrirheit um, að ég ætli að beita mér fyrir því, að þessi vátryggingafélög geti safnað gróða á því að tryggja sjómenn. Ég hef staðið við það, sem ég hef heitið að gera, en ég hef ekki beitið því að tryggja þessum vátryggingafélögum gróða.