20.12.1972
Efri deild: 38. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1623 í B-deild Alþingistíðinda. (1201)

111. mál, samningur um aðstoð í skattamálum

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Frv. þetta er um heimild fyrir ríkisstj. til að fullgilda fyrir Íslands hönd samning milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um aðstoð í skattamálum. Norðurlönd hafa um langt skeið haft með sér samvinnu á mörgum sviðum, og hefur sú samvinna verið mjög vaxandi. Þannig hafa íslenzkir samningar við hvert hinna Norðurlandanna komið í veg fyrir tvísköttun. Norðurlönd, önnur en Ísland, hafa sín á milli gert samning um aðstoð í skattamálum. Fyrir nokkrum árum kom fram sú hugmynd, að öll Norðurlöndin gerðu með sér fjölhliða gagnkvæman samning um aðstoð í skattamálum. Hafa sérfræðinganefndir unnið að máli þessu, og náðist samkomulag með þeim á þessu ári. Samkomulagið var undirritað í Stokkhólmi 9, nóv. s.l., og er þess vænzt, að samningurinn verði fullgiltur af aðildarríkjunum á þessu ári, þannig að hann geti tekið gildi um næstu áramót.

Aðstoðin, sem gert er ráð fyrir, er aðallega tvenns konar: Gagnkvæm aðstoð við rannsókn skattamála ásamt upplýsingum og aðstoð við innheimtu skatta. Auk þess er gert ráð fyrir, að aðstoð verði við birtingu ýmissa skjala og skipzt á eyðublöðum í sambandi við skattamál Samningurinn tekur til tekjuskatts og eignarskatts, bæði til ríkissjóðs og sveitarsjóða, ökutækjaskatta, virðisaukaskatta og söluskatts, almannatryggingagjalda og annarra opinberra gjalda, sem ákvörðuð eru af skattstjórnarvöldum. Samningur þessi mun auðvelda ýmislegt í framkvæmd skattamála og skattaeftirliti.

Þetta mál fékk góða afgreiðslu í hv. Nd., og var samstaða um það. Ég leyfi mér með tilliti til þess, sem áður hefur komið fram, að vænta þess, að svo verði einnig í þessari hv. d. og málið verði afgr. sem lög fyrir þinghléið.

Ég leyfi mér svo að leggja til. herra forseti, að eftir þessa umr. verði frv. vísað til 2. umr. og til fjh.- og viðskn.