20.12.1972
Efri deild: 38. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1629 í B-deild Alþingistíðinda. (1209)
15. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Þetta mál er nú komið til hv. Ed, í nokkuð breyttu formi, sem skilmerkilega hefur verið gerð grein fyrir hér af frsm. n. og þarf ég ekki miklu við að bæta, þó að hér séu um mjög viðamikil mál að ræða, og að mínu mati er raunhæf og eðlileg hagnýting fiskimiða okkar út að 50 mílum eitt af mikilvægustu framtíðarmálum okkar Íslendinga. Ég vil undirstrika það við hv. þm., sem eru margir hér viðstaddir þessar umr., að það ber hverjum og einum að hugleiða með sjálfum sér, hvernig hann telur rétt að standa að því að hagnýta fiskveiðilögsöguna. Við verðum að horfast í augu við það innan skamms hver og einn að taka afstöðu í því máli. Og mér segir svo hugur um, eins og frsm. kom hér inn á áðan, að það muni vera uppi margar skoðanir og það fari ekki eftir pólitískum línum, heldur svæðum, hagsmunasamtökum og jafnvel mjög þröngum persónulegum hagsmunum, sem eru bundnir við atvinnu viðkomandi manns, hver afstaða hans verður. Hér er því um mjög viðkvæmt mál að ræða, en um leið eitt af brýnustu málum okkar varðandi framtíðaröryggi og því í eðli sínu mjög viðkvæmt og erfitt.
Við höfum fjallað um þetta mál í fiskveiðilaganefnd. Ég verð að segja það eins og er, að ég harmaði það nokkrum sinnum á fundum, hve málið gengi seint. Mér fannst málið þokast áfram ofur rólega. Það liðu t.d. þrjár vikur, og það var aðeins einn fundur haldinn, núna á þingtímanum í nóv. Þetta fundust mér allt of róleg vinnubrögð í svo miklu máli og vissi ekki hvers vegna það átti sér stað. Það voru líka vonbrigði hjá mér, að hæstv. sjútvrh. kom á fundinn og sagði, — ég held, að ég muni það algerlega orðrétt, — að ekki væri gerlegt að breyta um stærð eða tímamörk friðunarsvæða, sbr. reglugerðina, sem gefin var út í sumar. Ég varð fyrir vonbrigðum með þessi orð, þrátt fyrir það að við stöndum í umr. um fyrirkomulag og lausn á deilu okkar við Breta og Vestur-Þjóðverja, vegna þess að ég hafði alltaf skilið það svo, að númer eitt væri fyrir okkur og aðra, að við sýndum raunhæft og skynsamlegt mat á því, hvernig við ætluðum að hagnýta þetta nýja svæði utan 12 mílna, frá 12–50 mílna, varðandi botnvörpu og önnur hugsanleg veiðarfæri, þó fyrst og fremst botnvörpu. Ég vil ekki efna til deilna hér um þetta mál. Er þessi orð hæstv. ráðh. hef ég hugleitt mjög, og ég veit ekki, hvað liggur að baki þeim. En mér finnst ástandið mjög alvarlegt í viðræðum við þessar grannþjóðir okkar, ef við höfum verið þvingaðir svo, að við getum ekki þrátt fyrir þetta ákvæði, sem er sett nú inn í 4. gr. þessara laga, sjálfir ákveðið eða breytt um þessi tímabundnu svæði, sem við höfum sett núna og eru fyrir Norðausturlandi í tvo mánuði og hér á Selvogsbanka. Við höfum ekki sjálfir aukið þau utan 12 mílna, því að það eru fyrst og fremst svæði innan 12 mílnanna, sem við erum að tala um hér. Það má ekki blekkja neinn í því efni. Það er greinilegt, þó að það standi ekki í frv. Ég hélt, að það hefði alltaf verið haldið þannig á málum, að skilyrðislaust mundum við krefjast þess, að ef við sæjum nauðsyn á að friða viss svæði, eins og lög opna núna heimild fyrir að gera utan 12 mílna, þá væri það skilyrðislaus krafa okkar, að þjóðirnar, sem við erum að tala við um lausn á þessu máli, fylgdu okkar fordæmi án átaka og vandræða og viðurkenndu þessi svæði, þó að það væri á móti þeirra hugmyndum um friðun og nýtingu á þessum svæðum.
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að svæðin fyrir Norðurlandi og út af norðausturhorninu eru það svæði, sem sérstaklega minni skip Breta hafa mjög sótt á að vorlagi og sumarlagi, og það var allmörg ár staðreynd, að þeir tóku upp 75–80 fiska af hverjum 100, sem voru veiddir á þessu svæði, svo að það út af fyrir sig er gífurlegt skref í friðunarátt, ef við getum fært veiði þessara skipa út fyrir 50 mílur. Það segir sig sjálft. En samt sem áður er ég þeirrar skoðunar, að við þurfum einnig að taka upp lágmarksöryggisfriðun, sem ég kalla svo, á þessu svæði og viðar, og skal ég ekki fara nánar út í það. Það eru ekki tök á því núna, og ég vil ekki efna til neins orðaskaks í því sambandi. En ég vildi aðeins láta þetta koma fram og undirstrika það, að hver og einn þm. verður að hugleiða málið alvarlega, vegna þess að það má ekki veltast svona undan okkur mánuð eftir mánuð, þannig að við tökum ekki afstöðu í málinu.
Við höfum þegar friðað Faxaflóa fyrir botnvörpu. Við höfum þegar lagt kvaðir á útgerð, sérstaklega minni báta hér í Reykjavík, og hún verður að sækja miklu, miklu lengra en nokkrir aðrir aðilar á landinu. Uppi eru raddir um, sérstaklega varðandi minni báta á Breiðafirði, að Breiðafjörður verði tekinn eins. En svo eru aðrir, sem vilja ekki taka það skref að draga línu þvert fyrir Breiðafjörð. Þarna eru hagsmunaárekstrar. En ég segi fyrir mig, að ég tel skynsamlegt, að samræmi sé í friðunaraðgerðum hringinn í kringum landið. Það er ekki sanngjarnt að heimta af einu plássi algera friðun, en láta svo aðra leika lausum hala, ef svo má segja, skammt frá. Þá fáum við ofsóku á svæði, sem eru opin. Langæskilegast er, að álagshreyfingin sé sem jöfnust hringinn í kringum landið. Það er a.m.k. mitt álit.
Varðandi það atriði að opna hér fyrir loðnuveiði, þá er ég heldur tortrygginn á það að hleypa loðnutrollinu inn fyrir 3 mílurnar.
Samstaða er ekki um að hafa það í greininni, en ég féllst á þetta í trausti þess, að rn. muni fylgjast vel með og svipta bátana umsvifalaust leyfi, eins og stendur hér, ef bolfiskur kemur í loðnutrollið, því að það er alveg hliðstætt að vera nokkuð ákveðinn varðandi loðnutrollið eins og við erum allir ákveðnir á því, að notkun nótarinnar sé stöðvuð við bolfiskveiðar. Ég vil, að það komi hér fram, það hefur komið greinilega fram í n., og ég held, að frsm. hafi bara gleymt því, að við lítum svo á, að ríkissjóður baki sér skaðabótaskyldu með því að banna þegar í stað notkun eins veiðarfæris, því að það eru nokkrir bátar, þótt þeir séu ekki margir, sem eiga veiðarfærið og hafa notað það hér í litlum mæli fyrir Suðurlandi og Vesturlandi á undanförnum árum, — það eru fáir bátar. En þegar það er gjörbannað fyrirvaralaust, hlýtur því að fylgja einhver skaðabótaskylda að mínu mati og okkar í n. Ég vildi, að þetta lægi skýrt fyrir.
Einnig kynni að vera sú hætta, ef loðnutrollið bæri árangur hér við Ísland, að við kölluðum yfir okkur Norðmenn á veiðisvæði við Ísland einmitt á þessum tíma, því að þeir eru með stór skip, úthafsskip. Ef þeir færu að veiða loðnu rétt við 50 mílurnar og ausa henni upp í tugþúsunda tonna magni, eins og gert hefur verið við Noreg, kynni að vera neikvætt að leyfa þessa veiðiaðferð hér við land, — ég segi: kynni. Þeir hafa þegar náð góðum árangri á þessum stóru skipum við loðnuveiðar á úthafi, og það gæti verið tvíeggjað að auglýsa þessa veiði, vegna þess að loðnan er þarna feitust, um 5–6% feit, og eftirsóknarverðust núna í skammdeginu og fram í febrúar á svæði, sem sennilega er utan við 50 mílurnar. Hins vegar fáum við hana fljótt inn fyrir, þegar liður á árið, og þá mundum við sitja einir að henni. Ég vil aðeins, að þetta komi fram, vegna þess að ég tel, að afkastageta okkar í loðnuveiði sé svo mikil í nótina, að það orki tvímælis að vera að kalla yfir sig aðrar veiðiaðferðir og skapa vandræði á miðunum þess vegna. Við höfum því miður meira en nóg af þeim.
Þetta frv. er framlenging á lögum, sem voru upphaflega mótuð 1967. Þá var það málamiðlun, sem náðist. Ég var formaður í þeirri n., og hæstv. núv. sjútvrh, var þá líka í n. Við fórum víða um land og höfðum svipuð vinnubrögð á og nú í þessari n. Það var auðvitað viðkvæmt mál. Menn höfðu misnotað gildandi lög í skjóli skeytingarleysis. Þessi lög bættu verulega um, og sá mórall, ef ég má nota það orð, sem var ríkjandi á hafinu varðandi virðingu þeirra reglna, sem þar giltu, fór mjög batnandi. En í því hefur sigið á ógæfuhliðina aftur. Þær reglur, sem við þurfum að móta í framtíðinni, þurfa að vera einfaldari og ákveðnari, svo að hægt sé að framfylgja þeim, því að það er alveg gagnslaust að vera að setja upp svo flókið kerfi, að menn gefist upp við að fylgja því, með mikilli tímaskiptingu, með mikilli stærðarskiptingu skipa o.s.frv. og mjög mikilli hólfaskiptingu. Þá verður þetta svo flókið, að fjöldi manna sinnir því ekki, og við höfum ekki nægan kraft til eftirlits. Það er nú einu sinni staðreynd, að við getum ekki elt hvern einasta mann uppi og tryggt eðlilegt aðhald í þessu efni.
Hér segir í 4. gr., c-lið, að sjútvrh. skuli beita sér fyrir auknu eftirliti með veiðum fiskiskipa innan fiskveiðilögsögunnar. Ég tel mjög mikilvægt, að það sé einn aðili og þá eðlilegt, að það sé sjútvrn., sem hvetji til sem bezts aðhalds í þessu efni. En auðvitað hlýtur samstarf milli dómsmrn. og sjútvrn. að vera mjög náið í þessum málum og þarf að eflast miðað við reynsluna, sem verið hefur, því að eins og ég sagði áðan, þá er gagnslaust að hafa reglurnar svo flóknar og miklar, að menn ráði ekki við að fara eftir þeim og brotin byrji á þessu í stórum stíl og skeytingarleysi ríki um framkvæmd varðandi sektarákvæðin.
Ég var þess mjög fýsandi í n., að lögin tækju gildi 15. maí, vegna vertíðarskipta. Ég skal ekki gera þetta atriði að ágreiningsefni, en ég undirstrika það enn einu sinni, að það er nauðsynlegt, að menn taki afstöðu í þessu efni, því að þetta er búið að vera ljóst svo lengi hverjum og einum, að það er tilgangslaust að ætla að fara að velta því endalaust fyrir sér. Það er alveg tilgangslaust. Við verðum að bera gæfu til þess að móta hér heildarfyrirkomulag. Það má deila um það, hve nákvæmt við eigum að hafa þetta í löggjöf. Ég er heldur hlynntur því, að við eigum að hafa, eins og segir í 4. gr., ákvæði, er heimilar ráðh. að fenginni umsögn Hafrannsóknastofnunarinnar að þrengja veiðisvæðin og tryggja þar með aukna vernd. En það er greinilegt, að landsmenn vilja, a.m.k. næstu 2-3 árin, taka á sig nokkurt álag til þess að tryggja aukna vernd, þ.e.a.s. minni sókn botnvörpuskipa nærri Íandi en verið hefur.
Að svo mæltu vil ég ekki lengja þessar umr. meira né stofna til orðaskaks um málið. Ég vildi bara undirstrika það, að hv. alþm. gerðu sér grein fyrir því, að hér er um mál að ræða, þar sem allar pólitískar línur brotna meira og minna og margir hringja til manna með og móti þessu og hinu ákvæðinu og eru að skýra sin sjónarmið. Ég vil því vekja enn einu sinni athygli þeirra á því, að þeir munu sjálfsagt verða varir við slíkt, þegar líður á febrúarmánuð, að sjónarmiðin eru misjöfn og hagsmunirnir misjafnir. En við þurfum að bera gæfu til þess að móta hér þá stefnu, sem farsæl verður fyrir okkur í heild til lengdar.