20.12.1972
Efri deild: 39. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1635 í B-deild Alþingistíðinda. (1220)
121. mál, launaskattur
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti: Út af ummælum hv. 5. þm. Vestf. vil ég segja það í sambandi við þetta lagafrv., að það var á engan hátt ætlun ríkisstj. að gera ákvæðið um launaskattinn til byggingarsjóðs ríkisins að bráðabirgðaákvæði. Við 1. umr, þessa máls í hv. Nd. lýsti ég því yfir, að ég gæti með glöðu geði fallizt á að endurnýja til bráðabirgða eða eins árs þann þátt skattsins, sem átti við í sambandi við dýrtíðarráðstafanirnar, sem gerðar voru árið 1970, og byggður var á því, að sömu greiðslum er haldið og þá voru upp teknar, eins og ég gerði grein fyrir áðan. Hins vegar, þegar n, hafði gengið frá málinu á þann veg, sem hér er gert í frv., alveg án samráðs við mig þar um, þá var ég, eins og hv. 5. þm. Vestf., ekki undir það búinn að fara að tefja málið með því að láta breyta því í þá átt, sem ég þó reyndar hefði getað gert í hv. Nd., ef mér hefði verið kunnugt um það í tæka tíð. Hins vegar skal ég lýsa því yfir, að ef ég undirbý þetta mál fyrir næsta þing, þá skal þessi tekjustofn verða fastur tekjustofn. Ég skal segja meira. Ég skal tilkynna ráðuneytisstjóranum í fjmrn. um þessa yfirlýsingu mína og biðja hann að sjá um, að þannig verði frá málinu gengið, ef það kemur hér fram aftur á þingi, sem það gerir alltaf sem tekjustofn byggingarsjóðsins. Það er ekki á bak við þetta nein hugsun um að skerða þann sjóð, enda held ég, að flestum sé kunnugt um, að sú leið væri lítt fær, nema þá að önnur fylgdi þar til úrbóta. Þetta er ekki komið inn af því, heldur af því einu, að hv. fjhn. Nd., þegar hún gekk frá þessari breytingu, þá gekk hún frá frv. í heild, vegna þess að í 1. gr. frv. var þessu blandað saman af hálfu rn.
Þessa yfirlýsingu er mér ljúft að gefa, því að það er ekki ætlunin að skerða á neinn hátt þennan tekjustofn byggingarsjóðs ríkisins.