21.12.1972
Sameinað þing: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1640 í B-deild Alþingistíðinda. (1238)
Umræður utan dagskrár
Bjarni Guðnason:
Herra forseti. Hv. Alþ. hefur undanfarna daga og jafnvel vikur fjallað um efnahagsvanda þann, sem Íslendingar eiga nú við að glíma. Þó er það svo, að Ísland er hluti af veröldinni, og við getum ekki látið okkur litlu skipta, þegar annars staðar gerast stór og voveifleg tíðindi. Enn berast austan úr Suðaustur-Asíu þær fréttir, að Bandaríkjamenn hefja loftárásir á Norður-Víetnam, og daglega fara langað yfir 100 risaþotur og varpa niður mörg þúsundum sprengna á dag. Þetta er þeim mun hörmulegra, þar sem vikuna fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum lá fyrir, að friðarsamningur lægi tilbúinn og vantaði einungis undirskriftir. Nixon forseti taldi þó rétt að bíða með undirskriftirnar fram yfir kosningar, en ég hygg, að hann hafi á þessari forsendu, að friður væri í nánd í Víetnam, unnið nokkuð á í kosningunum í Bandaríkjunum.
Nú hins vegar einum mánuði síðar hefjast mestu loftárásir, sem hafa átt sér stað í öllu þessu hörmulega stríði. Ég vil minna sérstaklega á, að Íslendingar fengu nú nýlega samþykktan hjá Sameinuðu þjóðunum rétt strandríkja til auðæfa á hafsbotni og yfir hafsbotninum, og öflugasta sveit þjóða, sem veittu þeim stuðning, voru þjóðir hins svokallaða þriðja heims. Íslendingar hljóta að hafa samstöðu með þessum þjóðum í þeim málum, sem þessar þjóðir skiptir miklu. Ég vil því á þessari stundu vekja máls á því, hvort ekki væri rétt af Íslendingum að láta í sér heyra í þessu máli. Norðurlandaþjóðirnar hafa gert það að meira eða minna leyti. T.d. hefur danski forsrh. fordæmt þessar loftárásir, og jafnvel eindregnar stuðningsþjóðir Bandaríkjanna hafa látið í ljós miklar áhyggjur af þessu framferði Bandaríkjamanna. Hér vakir alls ekki fyrir mér að fordæma bandarísku þjóðina, heldur hitt, sem hér um ræðir, að stefna Nixons forseta í þessu máli er að mínu viti með öllu forkastanleg.
Þetta mál er alls ekkert einkamál Bandaríkjanna, og ég tel það tilhlýðilegt af Íslendingum, sem eru þó í hernaðarbandalagi með Bandaríkjunum, að láta í ljós skoðun sína á þessu máli og geta þannig lagt sitt litla lóð á vogarskálina, til þess að þessir hörmulegu atburðir geti ekki haldið áfram endalaust. Ég vil því leyfa mér að spyrja hæstv. utanrrh., hvort ekki væri æskilegt og eðlilegt, að íslenzka ríkisstj. beindi þeim tilmælum til Bandaríkjamanna að láta af þessum loftárásum og láta í ljós andúð Íslendinga á þessu háttalagi þeirra í Austurlöndum.