21.12.1972
Sameinað þing: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1657 í B-deild Alþingistíðinda. (1248)
1. mál, fjárlög 1973
Frsm. 1. minni hl. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Eins og fram kom við 2. umr. fjárl., þá taldi ég, að það væri ekki neinn möguleiki að afgreiða fjárlagafrv. fyrir jól, vegna þess að þá höfðu engar upplýsingar komið um tekjuhlið fjárlagafrv. og fjölmarga mikilvæga gjaldaliði. Þá var almennt búizt við, að á næsta leiti væru sérstakar aðgerðir í efnahagsmálum, sem kæmu til með að hafa mjög varanleg áhrif á fjárlagafrv. og afgreiðslu þess. Skoðun mín í þessum efnum er alveg óbreytt. Að vísu komu fram upplýsingar loksins fyrir tveimur dögum um tekjuhlið frv. og mikilvæga gjaldaliði, og síðan hefur verið ákveðin, eins og allir vita, gengisbreyting, sem hefur auðvitað margvísleg áhrif á fjárl. og atvinnulífið í landinu. En hæstv. ríkisstj. hefur ekki tekið þessum aðvörunum á annan veg en þann, að fjárlög skuli knúin fram fyrir jól, án þess að fjvn., þingið eða flokkar þingsins fái tækifæri til þess að fjalla um margvísleg breytt viðhorf, sem hafa skapazt á þessum dögum. Málið hefur verið keyrt áfram með feiknahraða, eins og heill þjóðfélagsins væri í veði og allt þetta yrði að gerast fyrir jól, eða áður en Alþ. fer í jólafrí.
Við fulltrúar Sjálfstfl. í fjvn. höfum tekið þá afstöðu til þessara mála í samráði við okkar flokk að flytja ekki brtt. við fjárl., vegna þess að þær brtt., sem a.m.k. við nm. flokksins í fjvn. hefðum helzt viljað flytja, væru fremur til lækkunar á fjölmörgum útgjaldaliðum fjárlagafrv., en á því er okkur ekki gefinn neinn kostur. Svona vill ríkisstj. hafa það, og á þennan hátt hefur hún náð sínu fram. Við gætum auðvitað beitt þeirri aðferð að halda hér uppi málþófi og koma í veg fyrir, að fjárl. yrðu afgreidd fyrir jól. En þá hefur verið sagt, að haldið verði áfram þriðja í jólum, en við teljum ekki ástæðu til þess. Það er stefna ríkisstj. að afgreiða fjárl. fyrir jól og það með þessum hætti og hefur ekki verið vandalaust fyrir stjórnarliða í fjvn. að hlýða þessari stefnu. Það hefur ekki heldur verið sérstaklega létt hlutskipti, sem formaður fjvn. hefur haft. En þrátt fyrir þetta hefur hann eins og áður sýnt fullkomna sanngirni við afgreiðslu mála innan n. Höfum við fulltrúar minni hl. ekki undan neinu að kvarta í samskiptum við hann, nema síður sé.
Þegar við lítum nú á fjárlagafrv., þá voru gjöldin í frv., eins og það var upphaflega lagt fram hér í byrjun þings, 19 milljarðar 868 millj. kr. En nú við 3. umr., eða þegar komið er að 3. umr., er gjaldahlið fjárlagafrv. komin upp í 21 milljarð 455 millj. kr. Hækkun frá því, að frv. var lagt fram, er komin í 1 milljarð 587 millj. kr. Þar af verður hækkun vegna áhrifa gengisbreytingarinnar einnar 615 millj. kr., en heildaráhrif af völdum gengisbreytingarinnar gjaldamegin á fjárlagafrv. eru á lánahreyfingum 13 millj. kr., svo að samtals hefur gengisbreytingin áhrif á gjaldahlið fjárlagafrv. um 628 millj. kr. Hækkunin skiptist þannig, að launaliðir hækka um 200 millj. kr., — ég skal taka fram, að fjvn. hefur ekkert haft með útreikning á þessum breytingum að gera, heldur hefur fjárlaga- og hagsýslustofnunin annazt þessa útreikninga á mjög skömmum tíma, eins og menn geta ímyndað sér, — launaliðurinn hækkar um 200 millj. kr., önnur rekstrargjöld um 102 millj. kr., viðhald um 13 millj. kr., vextir um 17 millj. kr., sendiráð og alþjóðastofnanir án launa hækka um 11 millj. kr. og lífeyristryggingar án fjölskyldubóta um 54 millj. kr. Það er hlutfallslega miklu minni hækkun en hefur orðið í raun frá árinu á undan, eins og hv. frsm. fjvn. gat um, því að þá var um ofáætlun að ræða. Sjúkratryggingar hækka af þessum sökum um 162 millj kr., aðrar tilfærslur um 56 millj. kr. og lánahreyfingar um 13 millj, eins og ég gat um áðan. Framkvæmdir hækka um 353 millj., þar af 232 millj. kr. vegna vegagerðar í samræmi við hækkun tekjustofna til vegasjóðs. Rekstur og yfirfærslur um 619 millj. kr., þar af eru 500 millj. kr. vegna framhalds verðstöðvunar: fjölskyldubætur 374 millj. kr. af því og niðurgreiðslur 126 millj. kr., sem ég kem nánar að síðar. Niðurskurðurinn á útgjöldum nemur 140 millj. kr., einnig að verulegu leyti af völdum gengisbreytingarinnar. Framlag ríkissjóðs til þess að greiða útflutningsbætur landbúnaðarafurða lækkar um 105 millj. kr., og er lækkunin á þeim lið vegna gengisbreytingarinnar og mjög hagstæðrar sölu á kjöti til Norðurlanda. Enn fremur lækkar framlag til ríkisábyrgðasjóðs um 35 millj. kr., en talið var rétt að lækka framlagið til þessa sjóðs. Um það má auðvitað alltaf deila, hvor talan er réttari í þessu tilfelli. Tekjuhlið frv. var, þegar frv. var lagt hér fram, 20 milljarðar 448 millj. kr., en þegar frv. kemur nú til 3. umr., er tekjuhliðin komin upp í 21 milljarð 970 millj., þannig að tekjuáætlun hefur hækkað um 1522 millj. kr., frá því að frv. var upprunalega lagt fram.
Ég ætla ekki að fara miklu frekar út í tekjubreytinguna. Að sjálfsögðu stöndum við fulltrúar minni hl ekki að till. um tekjubreytingar, en það vekur athygli manna, hvað núv. ríkisstj. leggur mikið upp úr því að hagnast sem mest á brennivínssölu. Það skýtur nokkuð skökku við, þegar maður ber saman hinn mikla og grimmilega áhuga, sérstaklega sumra stjórnarþm. og auðvitað einstakra annarra, á því að draga úr víndrykkju í landinu og telja eitt höfuðskilyrði fyrir því vera að afnema vínveitingar á vegum hins opinbera. Á hinn bóginn er ætlunin að hækka tekjur af brennivínssölu og tóbaks um 420 millj. frá fjárlagafrv., en þar var áður reiknað með gífurlegri hækkun á hagnaði Áfengisverzlunar frá fjárl. ársins 1972. Ég hygg, án þess að ég ætli að fara að mæla neitt gegn því eða með því, að vínveitingar séu viðhafðar í veizlum hins opinbera, að frá fjárhagslegu sjónarmiði séu þetta sennilega ódýrustu veitingarnar, sem ríkið getur fengið, og það mundi ekki lækka útgjöld ríkissjóðs að breyta því yfir í kaffi og kökur eða mat. Hins vegar væri kannske réttara að stíga í þessum efnum stærra skref en flm. þessarar till. hafa lagt til og afnema allar veitingar á vegum hins opinbera og bjóða bara mönnum til sín til þess að fá hlýtt viðmót. Það væri ódýrast. Hitt er svo annað mál, að það fer ekki saman að berjast gegn því, að fólk kaupi og neyti víns og tefla svo alltaf á það að gera brennivínið að sífellt meiri tekjustofni hjá þjóðfélaginu. Það ætla ég að benda ýmsum hv. stuðningsmönnum núv. ríkisstj. á til athugunar í framtíðinni. (Gripið fram í: Ekki öllum?) Nei, ekki öllum, þeir hafa ekki allir gengið svo langt í þessum efnum, svo að vitað sé, sérstaklega áhugamönnum fyrir því að minnka drykkjuskapinn, sem maður verður auðvitað alltaf að taka undir með og er sjálfsagt að gera, en þá verður að vera samræmi í því. Það ætla ég að benda hv. þm. á, sem greip fram í fyrir mér.
Í till. meiri hl. fjvn. við 6. gr. gjaldamegin er 36. liður nýr liður um það að heimila að lækka fjárveitingar til greiðslu rekstrarkostnaðar rn., ríkisstofnana, styrkja, verklegra framkvæmda á árinu 1973, sem ekki er bundið af lögum, um allt að 15% að jafnaði, ef ríkisstj. telur, að vinnuafl dragist um of frá framleiðslustörfum, eða ætla má, að tekjur ríkissjóðs hrökkvi ekki fyrir útgjöldum. Tilflutningur lækkunarinnar milli fjárlagaliða innan sama rn. er heimill. Verði fé fyrir hendi, en fresta verður framkvæmdum af öðrum ástæðum, skulu þær fjárveitingar geymdar til ársins 1974. Út af þessari till. hefur verið útbýtt hér brtt., sem verður skýrð hér á eftir af 1. flm. þeirrar till., svo að ég ætla ekki að ræða um hana. En í sambandi við þessa till. vil ég hér koma inn á, að ég tel mjög óeðlilegt, að slík till. sé flutt sem þessi. Fyrst og fremst er búið, eins og hægt er, að draga saman framlög til verklegra framkvæmda í sambandi við sundurliðun þeirra, sem afgreidd var að mestu leyti við 2. umr. fjárl. Þar var tekin upp ný og þrengri stefna, sú stefna að draga úr þessum fjárveitingum verulega, og þar var byggt á ákveðnum áætlunum í sambandi við tilteknar framkvæmdir.
Nú geta alltaf skapazt ástæður fyrir því, að það þurfi að ganga lengra í þessum efnum. En þá spyr ég: Á hvern hátt ætlar ríkisstj., þegar hún ætlar að nota sér þessa heimild, að vinna að niðurskurði á þessum till.? Við skulum taka áætlanir til hafna. Þar er byggt á ákveðinni framkvæmdaáætlun, — og þar var ekkert tillit tekið til gengisbreytingarinnar, — og reiknað með að framkvæma tiltekin verkefni á næsta ári. Ef ríkisstj. ætlar nú að lækka þessa framkvæmdaliði að jafnaði um 15% ber þá ekki að skilja það á þann veg, ef hún ætlar nokkurn veginn að jöfnu að lækka þá, að það verður ekki hægt að ná endum saman í ákveðnum framkvæmdaliðum? Eða er sá skilningur á þessu frá hendi hæstv. ríkisstj., að það eigi alveg að skera niður ákveðnar framkvæmdir, en láta aðrar haldast eins og gert er ráð fyrir í sambandi við fjárveitingar, sem afgreiddar voru hér við 2. umr. fjárl. til þessara framkvæmda? Þetta skiptir miklu máli og þá líka, hvernig þessi niðurskurður kemur niður. Í þessu sambandi verður mér hugsað til þess niðurskurðar, sem svo heitir á þessu ári, að hann kemur nokkuð ójafnt niður, þannig að sumir staðir og tiltekin byggðarlög fara seint af stað í sínar framkvæmdir og komast ekki af stað margar hverjar, þar sem fjárfestingin er mest, hefur orðið tiltölulega minnstur niðurskurður. Þætti mér vænt um að fá upplýsingar um þetta frá hæstv. ríkisstj. eða hæstv. fjmrh.
Eins og fram kom í ræðu hv. frsm. fjvn., eru þær till., sem fluttar eru á þskj. 217, auk þriggja annarra till. frá fjvn., fluttar af n. í heild. Þó höfum við fulltrúar minni hl. tekið fram, að við höfum óbundnar hendur í sambandi við afstöðu okkar til einstakra till. Sumar þessar till. eru mjög okkur að skapi, aðrar ekki. Ég ætla ekki að fara inn á það nánar. Það gerir maður í raun og veru við atkvgr. um till., þegar þar að kemur.
En það er eitt, sem ég vil sérstaklega vekja athygli á, og það er, að eins og frsm. meiri hl. fjvn. gat um, þá er niðurstöðutala fjárlagafrv. um greiðsluafgang, ef allar till. fjvn. verða samþykktar, aðeins 26 millj. 306 þús. kr. En þá skulum við einnig taka með í reikninginn, að í fjárlagafrv. eru 1560 millj. kr. til niðurgreiðslna á vöruverði og í brtt. fjvn. hækkar þessi upphæð um 126 millj. kr. Hún verður þá samtals í fjárl., ef þetta verður samþ. óbreytt, 1 milljarður 686 millj. kr. Nú er vitað mál og yfirlýst, að niðurgreiðslur eiga að halda áfram eftir áramótin með sama hætti og þær eru nú framkvæmdar. Það þýðir, að niðurgreiðslurnar eru þá í raun og veru, byggðar á raunverulegri áætlun, 492 millj. kr. hærri en sú tala, sem er í fjárlagafrv., eftir að tekið er tillit til brtt. fjvn., þannig að niðurgreiðslur á vöruverði í heild eru hvorki meira né minna en 2 milljarðar 178 millj. kr. Fjölskyldubæturnar eru, eins og frsm. fjvn. gat um, nú 13 þús. kr. á hvert barn og eru áætlaðar í fjárlagafrv. 970 millj. kr. M.ö.o.: í byrjun gengisbreytingar, sem nýlega er búið að gera, stendur það alveg óhaggað, að það er ætlun ríkisstj. að greiða sem lágmark, til niðurgreiðslna á vöruverði og til fjölskyldubóta hvorki meira eða minna en 2148 millj. kr. Þetta eru auðvitað ekkert annað en dýrtíðarráðstafanir, sem hér er um að ræða. Manni verður á að spyrja: Hvernig verður þessi liður, ef það á að reyna að halda niðri kaupgreiðsluvísitölunni að einhverju leyti á þessu árí? Hvar á þá að afla fjár, og með hvaða hætti?
Þegar við lítum á það, að inn í fjárlagafrumvarpið vantar tæpan hálfan milljarð vegna niðurgreiðslna á vöruverði, þá verðum við einnig að líta á, að í raun og veru erum við samkv. þessum till. að afgreiða fjárl. með 466 millj. kr. greiðsluhalla, en ekki 26 millj. kr. greiðsluhagnaði. Þetta er staðreynd, sem ekki verður umflúin eða hægt að neita. Hitt er svo annað mál. sem ríkisstj. og hæstv. fjmrh. munu vafalaust koma inn á hér á eftir, að eftir er að lækka útgjöldin um 500 millj. kr., eins og þeir lýstu yfir hver á fætur öðrum, hæstv. ráðh., þegar gengisbreytingarfrv. var hér til umr. fyrir þremur dögum, — það ætti eftir að lækka útgjaldaliði til framkvæmda og til ýmissa þarfa rn. um 500 millj. Ef það hefði legið fyrir og rétt tala tekin inn til niðurgreiðslna, hefði verið hægt að segja, að fjárlagafrv. væri afgreitt með greiðsluhagnaði. En undir þessum kringumstæðum er engin leið að segja annað en það, sem er rétt. Það liggja utan við fjárl. 492 millj. kr. til niðurgreiðslna, sem ríkisstj. er ákveðin í að halda áfram og hefur marglýst yfir. Þess vegna liggur það alveg í hlutarins eðli, að það fjárlagafrv., sem við eigum að fara að afgreiða hér á eftir, er afgreitt í raun og veru með stórum greiðsluhalla. Þetta er húskapur í lagi eða hitt þó heldur!
Ríkisstj. hefur, eins og ég sagði í upphafi, tekið þá afstöðu að vilja knýja afgreiðslu fjárl. fram fyrir jól. En lítum aftur á þá hlið, sem er hyggilegra að gera, að játa staðreyndir, játa, að allt hafi verið síðbúið, eins og allir vita og allir játa. Það er auðvitað heldur ekkert nýtt. Fjárlagaafgreiðslan hefur oft verið síðbúin, en aldrei þegar hún hefur skipt jafnmiklu máli og nú og margir stórir liðir og stórir hlutir verið á huldu alveg fram á síðasta dag. Þess vegna hefði auðvitað verið hyggilegra fyrir ríkisstj. að leita allra ráða til þess að lækka verulega ýmsa útgjaldaliði fjárl. og hafa stjórnarandstöðuna þar með í ráðum, ef hún vill þiggja góð ráð af henni. Ég hygg, að framkoma okkar talsmanna beggja minni hl. í fjvn. við 2. umr. fjárl. hafi ekki bent til þess, að við værum menn, sem vildum flytja stórkostlegar yfirboðstill. til þess að reyna að koma fjárl. upp úr öllu valdi, nema siður sé. Ég hygg, að við staðfestum þetta mjög áþreifanlega nú, fulltrúar þessara flokka í fjvn., og þó að einstakir þm. innan okkar flokka flytji einhverjar till. við fjárl., þá erum við sem aðrir óbundnir af afstöðu okkar til þeirra. En í heild vil ég segja það sem mína persónulegu skoðun, að ég tel að það, sem þurfi að gera í fjármálum þjóðarinnar, sé ekki að flytja sífellt fleiri yfirboð og vera á sífelldu uppboði á milli manna og flokka um það að stórauka ríkisútgjöldin, vegna þess að það er komið það langt í skattheimtunni á öllum sviðum, að mál er að linni. En það er ekki hægt að lækka stórkostlega útgjöld fjárl. í einni eða tveimur ræðum. Það verður auðvitað ekki gert nema með margvíslegum lagabreytingum til þess að draga úr margvíslegum útgjöldum, sem hafa farið upp úr öllu valdi að undanförnu. Til þess þyrfti ríkisstj. að leita samstöðu eða a.m.k. hún sjálf og stuðningsflokkar hennar að leggja heilann vel í bleyti og standa þá að því einir, ef þeir vilja ekki hafa samstöðu við fulltr. stjórnarandstöðunnar í þeim efnum. Ég er viss um, að hefði þessi aðferð verið tekin upp væri afgreiðsla fjárlagafrv. með öðrum hætti, en raun ber vitni.
Frv., sem í raun og veru fylgir fjárl., þó að það fari auðvitað í gegnum þrjár umr. í hvorri d., er frv. um opinberar framkvæmdir á vegum ríkisins á næsta ári, sem liggur fyrir Nd. Alþ. Það gerir ráð fyrir framkvæmdum á vegum þess opinbera upp í rúman 1 milljarð. Því frv. liggur auðvitað ekki á, og mér skilst, að ríkisstj. ætli að láta afgreiðslu þess bíða, fram yfir áramót. Það var mjög gott og eðlilegt að fá það frv. fram til þess að sýna nokkurn veginn þá stefnu, sem fram undan er í sambandi við opinberar framkvæmdir utan við fjárlög eða til viðbótar við fjárl.
Enn þá liggur ekkert fyrir um það, á hvern hátt eigi að afla fjár til hinna ýmsu fjárfestingarsjóða í landinu, en talið er, að fjárfestingarlánasjóðirnir þurfi 3000 millj. kr. til ráðstöfunar á næsta ári til viðbótar eigin fé. Það verður nokkuð erfiður biti fyrir hæstv. ríkisstj. að afla. Það verður líka nokkuð erfitt að lækka verulega þessa fjárþörf fjárfestingarlánasjóðanna, vegna þess að margir þessir fjárfestingarlánasjóðir eru í raun og veru búnir að skuldbinda sig á næsta ári. Stærsti fjárfestingarlánasjóðurinn er fiskveiðasjóður og er talið alveg fullvíst og muni ekki breytast, að lágmarksfjárþörf hans umfram það, sem hann hefur sjálfur, sem mig minnir, að sé hátt í 600 millj., sé á árinu 1973 hvorki meira né minna en 1300 millj. kr. eða tæpur helmingur af því, sem hér er um að ræða.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð miklu fleiri, vegna þess að það er búið að reyna að hafa áhrif á ríkisstj. um að hafa nokkurn annan hátt á við afgreiðslu fjárl. Ég ætla því ekki að eyða lengri tíma í þeim efnum, en vil þó, áður en ég lýk máli mínu, segja, að eftir þá gengisbreytingu, sem nú hefur átt sér stað, og miðað við þær yfirlýsingar um hliðarráðstafanir, sem eiga að fylgja í kjölfar hennar og hæstv. ríkisstj. hefur hugsað sér, er ég svartsýnn á stöðu útflutningsatvinnuveganna, þegar líður á vertíðina, ef áhrif gengisbreytingarinnar á útflutningsatvinnuvegina eiga að vera með þeim hætti, að sleppa eigi yfirleitt öllu lausu.
Menn leyfa sér að halda því fram, að gengisbreyting sé gerð með einhverjum öðrum hætti nú en áður, að enginn eigi að tapa neinu. Það eiga sem sé allir að græða á gengisbreytingunni, sem er alveg þveröfugt við það, sem núv. stjórnarflokkar hafa haldið fram og nokkur maður hefur leyft sér að halda fram. Gengisbreytingar eru auðvitað aldrei gerðar nema af illri nauðsyn, þeirri illu nauðsyn, að halda verður áfram rekstri og atvinnu í landinu. Þegar komið er þannig stöðu útflutningsatvinnuveganna, að sífellt á að greiða fleiri krónur við öflun frumhráefnis og vinnslu afurða okkar, en sæta aftur því sama á erlendum mörkuðum, fá jafnmargar kr., en verða að greiða fleiri krónur fyrir sína starfrækslu og vinnslu, endar það alltaf með því, að breyta verður gengi krónunnar til þess að fjölga krónunum fyrir útflutningsatvinnuvegina. Þá hafa fylgt í kjölfar þeirra gengisbreytinga, sem gerðar hafa verið, margvíslegar ráðstafanir til þess að draga úr kauphækkunum og verðhækkunum, sem allur almenningur hefur orðið að taka á sig. En nú er sagt: Það á enginn að taka á sig nokkra fórn í sambandi við gengisbreytingu. Þannig er verið að blekkja sjálfan sig og aðra. Það á að hleypa vísitölunni á fullt skrið. Kaupið á að hækka. Verð flestra vara hækkar auðvitað, bæði innfluttra og sömuleiðis vara, sem framleiddar eru í landinu, það hækkar alveg óhjákvæmilega. Þá kemur að því, að innan ekki langs tíma verður staða útflutningsatvinnuveganna í sama farinu. En það, sem við höfum unnið á gengisbreytingunni, er vaxandi verðbólga næstu mánuði. Þetta er heldur ófögur lýsing, og þegar slíkar aðgerðir eins og gengisbreyting eru gerðar, fylgja þeim aðgerðum hliðarráðstafanir, sem verða að draga úr tilkostnaði við framleiðsluna og minnkandi eyðslu í þjóðfélaginu. Ef það er ekki gert, verða hin góðu áhrif, sem gengisbreytingin á að hafa í för með sér, að engu gerð, en slæmu áhrifin, sem gengisbreyting hefur alltaf óhjákvæmilega í för með sér, verða með vaxandi þunga. Á þetta verðum við nú að horfa. Eins og ég sagði áðan, þá er hátt í 2200 millj. kr. í byrjun gengisbreytingar varið til þess að greiða niður dýrtíð í landinu. Ég er hræddur um, að það verði farið að hitna setan í ráðherrastólunum, þegar komið verður fram í júnímánuð á næsta ári.