21.12.1972
Sameinað þing: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1693 í B-deild Alþingistíðinda. (1260)
1. mál, fjárlög 1973
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Ég vil taka undir það með siðast ræðumanni, að það er mér þvert um geð að flytja hér till., sem ég tel fyrir fram, að séu dauðadæmdar. En sá er munurinn, að ég hef leyft mér að leggja fram hér brtt. við frv. til fjárl., sem ég tel mjög sanngjarnar, og ég á ekki von á öðru en þingheimur hafi fullan skilning á þessum málum og veiti þeim lið, í þessari bjartsýni minni hef ég leyfi mér að leggja þær fram og gera grein fyrir þeim hér í mjög stuttu máli.
Þær eru hér á þskj. 257 og eru þrjár, sem ég flyt ásamt öðrum þm., einum ú hverri tillögu.
Í fyrsta lagi vildi ég gera grein fyrir till., sem víkur að íþróttasjóði. Það er ekki till. um hækkun á fjárveitingu til íþróttasjóðs. Eftir atvikum og með tilliti til allra aðstæðna verður að teljast, að sú fjárveiting sé nokkuð viðunandi, og allavega lýsi ég ánægju minni með þá tilhögun, að verulegum hluta íþróttasjóðs, 16 millj., sé nú varið til þess að ráða niðurlögum þeim langa hala, sem myndazt hefur hjá þeim sjóði.
Hins vegar hefur fyrir vikið verið minna fé til þess að veita til nýrra íþróttamannvirkja, og ber fjárlagafrv. það með sér.
Ég ásamt hv. 2. þm. Reykv. flyt till. um breytingar á skiptingu fjárins, og hún er á þá leið að lækka fjárveitingu til 2. áfanga á leikvelli í Laugardal úr 300 þús. í 200 þús., en verja síðan þessum 100 þús. kr. til tveggja nýrra íþróttamannvirkja, í fyrsta lagi til vélfrysts skautasvells í Laugardal og hins vegar til íþróttahúss Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur. Hvorugt þessara íþróttamannvirkja fékk náð fyrir augum fjvn., en hafa verið samþ. af íþróttanefnd. Þessi mannvirki eru að vísu bæði staðsett í Reykjavík, en eru þó þess eðlis, að þau koma öllum landsmönnum til góða. Í Laugardal er verið að byggja upp íþróttamannvirki og íþróttamiðstöð fyrir alla landsmenn, eins og alþjóð er kunnugt um, og þessi mannvirki, sem þarna er meiningin að reisa, uppfylla vissar kröfur og mæta þörfum vissra íþróttagreina, sem hafa verið hornrekur til þessa. Þarf ég ekki að fara fleiri orðum um það, en eins og ég segi, þá er ekki um að ræða hækkunartill., heldur tilfærslu á fé, og á ég því von á, að þingheimur geti tekið tillit til þessara tillagna.
Í öðru lagi hef ég leyft mér ásamt hv. 11. landsk. þm. að bera fram hækkunartill. á liðnum umferðarráð, — hækkunartill. um 1 millj. Umferðarráð lagði fram áætlanir og beiðni um hækkaða fjárveitingu í samtals 7 millj. 192 þús. kr. úr rétt rúmlega 3 millj., en þessi beiðni var ekki tekin til greina, og fjárveiting til umferðarráðs er sú hin sama og var á síðustu fjárl., að viðbættum 11% hækkun vegna verðlagsuppbóta. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um nauðsyn þess, að vel sé staðið að umferðarfræðslu í landinu. Umferðarráð hefur fengið ákveðið verkefni samkv. lögum til að vinna að, og hlutverk þess er margþætt. Umferðarráð hefur haft það meginverkefni að koma hér á svokölluðu umferðarfræðslukerfi, sem ég mun ekki lýsa hér í einstökum atriðum, en það telur þetta fræðslukerfi vera forsendu þess, að hér geti skapazt umferðarmenning og koma megi í veg fyrir umferðarslys í þeim mæli, sem þau hafa verið hér á undanförnum árum. Mér hefur fundizt og okkur flm. það vera til vansa, að ekki skyldi verða orðið að einhverju leyti við þeim beiðnum, sem frá umferðarráði hafa komið, og allavega er útilokað að ætlast til þess, að umferðarráð geti starfað áfram að þeim verkefnum, sem það hefur með höndum, þegar fjárveifingu er haldið algerlega niðri frá ári til árs.
Í þriðja lagi hef ég leyft mér að bera fram till. ásamt hv. 6. þm. Reykv. varðandi Lánasjóð ísl. námsmanna. Málefni lánasjóðsins hafa verið rædd hér á hv. Alþ. fyrr á þessum vetri, og mun ég ekki endurtaka þær umr. né þau sjónarmið, sem ég hef sett fram í þeim umr. Það er kunnugt, að núv. hæstv. ríkisstj. hefur staðið að þessum málum með miklum endemum, hefur algerlega fallið frá þeirri áætlun, sem gerð var um uppbyggingu lánasjóðsins, og m.a. fallið algerlega frá því „prinsip-“atriði að bæta við á ári hverju ákveðnu hlutfalli, þannig að á fjárhagsárinu 1974–1975 hefði náðst 100% umframfjárþörf námsmanna. Þrátt fyrir það að sleppt hafi verið þessari hlutfallsaukningu nú í fjárlagafrv., var búizt við því, að hæstv. ríkisstj. mundi leggja fram till., sem mættu þó kröfum lánasjóðsins á þann veg, að það mundi mæta raungildi þeirra fjárveitinga, sem voru á fjárl. á siðasta ári. En sú hefur ekki orðið raunin, þannig að sú fjárveiting, sem nú er, þó að hún sé hærri í krónutölu, er rýrari en sú hin fyrri, og stafar það bæði af rýrnandi verðmæti krónunnar, fleiri námsmönnum og öðrum atriðum. Það hefur ekki verið tekið tillit til verðlagsbreytinga, hvorki að fullu hér á landi né að neinu leyti hvað snertir námsmenn erlendis, og það hafa ekki átt sér stað neinar leiðréttingar á vanmati á framfærslukostnaði, og ýmislegt fleira skortir á. Samkv. upplýsingum frá námsmönnum, stúdentum hérlendis við háskólann og Sambandi ísl. námsmanna erlendis, á fundi, sem þeir héldu með fréttamönnum í gær, vantar um 24 millj. kr. upp á, að þetta raungildi fáist. Upphaflega setti Lánasjóður ísl. námsmanna fram óskir um, að fjárveitingin yrði 492 millj. kr., og var þá ekki búið að reikna með gengisfellingu. En nú hafa þessir aðilar látið þá skoðun í ljós, að til þess að mæta raungildi frá ári til árs, þyrfti að hækka núv. fjárveitingu um 24 millj., þ.e.a.s. hækka till., sem nú er gerð í fjárlagafrv.
Till. okkar, sem nú er lögð fram, er ekki yfirboð. Hún felur ekki í sér að taka inn í frv. fullkomlega þá áætlun, sem Lánasjóður ísl. námsmanna gerði, en hún felur það í sér, að ríkisstj. dragi ekki beinlínis og gagngert úr þeirri fjárveitingu, sem hingað til hefur gengið til Lánasjóðs ísl. námsmanna. Með þessum tillöguflutningi vildum við flm. láta á það reyna, hver væri hugur hæstv. ríkisstj. og núv. stjórnarflokka til þessara málefna. Og sérstaklega minntumst við þess, hversu áhugi þessara sömu manna var mikill. þegar þeir sátu í stjórnarandstöðu, — áhugi, sem náði hámarki í tillöguflutningi núv. hæstv. iðnrh. þess efnis, að áætlunin, sem ég hef gert að umtalsefni, yrði lögfest.
Ég geri mér að sjálfsögðu vonir um, að þessi till. fáist samþ. Ef hún hins vegar verður felld af stjórnarsinnum, er mjög gagnlegt fyrir námsmenn almennt, að þeir sjái það svart á hvítu, hvernig menn bregðast við, þegar virkilega reynir á, hvort þeir séu menn til þess að standa við orð sín, þegar þeir hafa völdin.