21.12.1972
Sameinað þing: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1702 í B-deild Alþingistíðinda. (1264)
1. mál, fjárlög 1973
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Það er ekki árennilegt að gera margar till. við fjárlagafrv. að þessu sinni. Hvort tveggja er, að búið er að veita mikið fé í ýmsar áttir af takmörkuðum og völtum efnahag, og eins hitt, að sjálfsagt er búið að njörva stjórnarliðið saman á höndum og fótum til þess að fylgja frv. í þeirri mynd, sem hæstv. ríkisstj. ákveður. Ég hef þó leyft mér á þskj. 251 að hreyfa tveimur mjög sanngjörnum brtt. við liðinn hafnarmannvirki og lendingarbætur.
Hin fyrri er um það, að höfnin í Arnarstapa í Breiðuvíkurhreppi á Snæfellsnesi fái nokkru meira fé til framkvæmda þ.e.a.s. fyrir 11/2 millj. komi 3 millj. Arnarstapahöfn hafði á þessu ári til umráða 1 1/2 millj. í þessu skyni, en sú fjárveiting var skorin niður í þeim niðurskurði, sem við fréttum nýlega af. Þessi fjárhæð er nú endurveitt í fjárlagafrv., en hún er ekki nægjanleg. Breiðvíkingar þurfa a.m.k. 3 millj. kr. í þessu skyni á árinu 1973 til þess að geta lokið þessum framkvæmdum á tveimur árum og náð því að búa við lágmarksviðunandi hafnarskilyrði.
Þá hef ég leyft mér að hreyfa nýjum lið, þ.e. að til hafnarmannvirkja í Grundarfirði verði veittar 4 millj. Allir vita, að Grundarfjörður er einn öflugasti útgerðarbær á Vesturlandi og þótt víðar væri leitað. Grundfirðingar hafa ekki verið frekir til fjárins að þessu leyti að undanförnu. Ég hygg, að þeir hafi ekki fengið krónu til þessara mála s.l. 8 ár. Nú hafa þeir hins vegar í hyggju að bæta hafnaraðstöðu sína og eru mjög vel að því komnir. Þeir hafa undirbúið þetta mál vel, gert glögga grein fyrir sínu máli, og ég tel sanngjarnt, að þeir komist þarna á blað að þessu sinni, og hef leyft mér að nefna mjög svo hóflega fjárhæð, 4 millj. kr.
Á síðasta þingi voru, sem kunnugt er, samþykkt ný lög um lögreglumenn, þar sem ríkið tók þau mál í sínar hendur frá komandi áramótum að fullu og öllu, tók að sér að annast þan málefni og að því er vænta mátti að veita borgurunum ekki verri þjónustu en þeir höfðu áður haft. Nú hefur fjárveitingavaldið tekið þá stefnu að neita öllum fjárveitingum í því skyni að fjölga lögreglumönnum eða bæta lögregluaðstöðu, hvar og hvernig sem á stendur. Ég tel, að á þessari stefnu sé alls ekki stætt, þetta verði að endurskoða og þarna sé í raun og veru um mikla fjármuni að ræða, sem ekki er vikið að í frv.
Ég gæti minnzt á margt fleira, en með hliðsjón af öllum aðstæðum á þessu kvöldi læt ég máli mínu lokið.