21.12.1972
Sameinað þing: 33. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1703 í B-deild Alþingistíðinda. (1265)

1. mál, fjárlög 1973

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr., af því að alveg sérstaklega stendur á. Ég taldi við 2. umr., að það þyrfti að sjá Landhelgissjóði Íslands betur fyrir fjármagni en gert hefur verið, og nú hefur verið gert ráð fyrir því, að lántökuheimild vegna sjóðsins geti verið fyrir hendi. Ég tel lántökuheimild í þessu sambandi ófullnægjandi, en ég hef ekki flutt neina brtt. samt sem áður, og er það gert í fullu trausti þess, að fram nái að ganga með sómasamlegum hætti frv. okkar sjálfstæðismanna um eflingu Landhelgissjóðs, í samræmi við undirtektir hæstv. forsrh. og kannske reyndar hæstv. fjmrh. líka. Ég vil þó í lokin aðeins fá að koma hér að yfirlýsingu fyrir hönd þingflokks sjálfstæðismanna, sem mér þykir rétt, eins og aðstæður eru, að skjalfestist í þingtíðindunum. Hún er á þessa leið:

„Framkvæmd fjárlagaafgreiðslu hæstv. núv. ríkisstj. er algerlega með sérstæðum hætti.

Við sjálfstæðismenn átöldum ráðleysið í fyrra, þegar enn var fjárvöntun á fjárlagafrv. fyrir árið 1972 nokkrum dögum fyrir þinghlé, er nam meira en 3000 millj. kr., og átti m.a. að brúa bilið með afgreiðslu skattafrv. á næsta ári, en þau urðu, eins og kunnugt er, mjög umdeild og borgurunum þung í skauti, og sjálf þurfti ríkisstj. að breyta þeim með brbl. til þess að draga úr skattpíningu eldra fólks.

Nú keyrir algerlega um þverbak. Fjárlagafrv. fyrir árið 1973 var samið, meðan ríkisstj. lifði enn í vímu þeirrar efnahagslegu velgengni, sem við var búið, þegar hún tók við völdum.

Þegar fjárlagafrv. var lagt fram í upphafi þings, var það markleysa að því leyti, að í því var ekki hægt að taka mið af væntanlegum efnahagsráðstöfunum, sem allir vissu þá, að voru fram undan. Ríkisstj. hafði loksins orðið ljóst á miðju sumri, að hún neyddist til að hægja á hrunadansi kostnaðarverðbólgunnar. Hún hafði því beðið um frest til umhugsunar með setningu brbl. um tímabundna verðstöðvun fram til áramóta. Engar efnahagsráðstafanir af þeirri stærðargráðu verða með nokkru móti aðskildar frá ríkisfjármálum.

Þegar fjárlagafrv. kom til 2. umr. þann 14. des., sat allt við sama, og enginn vissi, að hverju stefndi. Á vitorði allra var, að innan ríkisstj. vildi hver hinna þriggja stjórnarflokka fara sína leiðina út úr vandanum. S.l. sunnudag, þann 17. des., sættast stjórnarflokkarnir á gengislækkun krónunnar sem beztu leiðina út úr ógöngunum.

Ríkisstj. og sérfræðingar hennar hafa alls ekki getað gefið n. þingsins né þingheimi nein fullnægjandi svör um ráðgerð áhrif gengislækkunarinnar á efnahagslífið, á verðlagsþróun og rekstrarafkomu undirstöðuatvinnuveganna, þar sem um þetta liggja ekki fyrir útreikningar. Ráðh. hafa hins vegar gefið ótviræðar yfirlýsingar um, að tjaldað sé til einnar nætur. Um stöðu fjárfestingarlánasjóða landsmanna er allt á huldu, nema hvað fyrir liggja upplýsingar sérfræðinga ríkisstj. um, að fjárvöntunin sé geigvænleg og ekki talið fært að mæta henni með lánveitingum, hvorki innanlands né utan, nema að hluta til. Enn blasir við geigvænlegur viðskiptahalli við útlönd umfram þann halla, sem stafar af kaupum gjaldeyrisaukandi eða gjaldeyrissparandi verðmæta, svo sem skipakaupum eða flugvélakaupum, en leiðir beinlínis af mismun á almennum vöruskiptum og þjónustu við önnur lönd. Greiðslubyrði sívaxandi erlendra skulda er löngu komin í hámark.

Með háttalagi ríkisstj. og starfsaðferðum og þar með framkvæmd fjárlagaafgreiðslunnar hefur stjórnarandstaðan verið firrt möguleikum til þess að veita viðnám í beinni tillögugerð, en til þess ætlazt, að mál séu afgreidd í flýti, án þess að tími gefist til nægjanlegrar yfirvegunar.

Útgjöld fjárl. munu nú hafa tvöfaldazt eftir tvær fjárlagaafgreiðslur núv. ríkisstj. Slíkt er einsdæmi.

Við þessar aðstæður höfum við sjálfstæðismenn ekki talið rétt né aðstæður til að flytja brtt. við fjárlagafrv., svo að nokkru nemi. Þau þurftu að ummyndast eða hvíla á öðrum og traustari grundvelli. Er þá meðal margra atriða átt við sérstaklega: að ríkisbúskapurinn sé í reynd greiðsluhallalaus, en svo hefur ekki verið, og nú stefnir að því að afgreiða fjárlagafrv. með raunverulega allt að 500 millj. kr. greiðsluhalla; að ríkisstj. hrifsi ekki til sín fjárveitingavald Alþ. með brbl. eða óafmörkuðum heimildum; að ríkisútgjöld á hverjum tíma takmarkist eðlilega við þjóðarframleiðsluna, þar sem síhækkandi hlutfall ríkistekna og gjalda leiðir til vaxandi miðstjórnarvalds og veikir aðstöðu einstaklinga, atvinnurekstrar og sveitarfélaga; og að fjárlög gefi ótvíræða og rétta mynd af útgjöldum þeim, sem vitað er um, þegar þau eru afgreidd.

Þm. Sjálfstfl. munu ekki taka þátt í atkvgr. við lokaafgreiðslu fjárlagafrv. Á hinn bóginn höfum við lagt fram till. um vantraust á ríkisstj. og kröfu um þingrof og kosningar. Samkomulag er um, að umr. um vantraustið fari fram, er fundir Alþingis hefjast aftur á nýju ári.“