21.12.1972
Neðri deild: 36. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1719 í B-deild Alþingistíðinda. (1310)
78. mál, tollskrá o.fl.
Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Frv. er borið fram til þess að samræma íslenzku tollskrána þeim breytingum, sem gerðar hafa verið á Brüsseltollskránni frá því árið 1968, en Ísland er aðili að því samstarfi, sem þarna er um að ræða, tollasamvinnuráðið er það kallað. Það, sem þarna er fyrst og fremst um að ræða, eru fyllri skýringar í aths. við flokka og kafla tollskrárinnar, ásamt breytingum á textum einstakra tollskrárnúmera, og miðar að því í flestum tilvikum að bæta inn í viðkomandi númer beitum nýrra vörutegunda. Þetta er það, sem um er að ræða í sem allra fæstum orðum.
Fjh: og viðskn. hefur athugað frv. og leggur til, að það verði samþ. óbreytt.