25.10.1972
Neðri deild: 6. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 346 í B-deild Alþingistíðinda. (133)

25. mál, dvalarheimili aldraðra

Ágúst Þorvaldsson:

Herra forseti. Ég þarf ekki að taka það fram, að ég styð heils hugar þetta frv., sem hér liggur fyrir og er til 1. umr., og ég get jafnframt tekið undir flest eða allt það, sem hæstv. ráðh. sagði í sinni ræðu. Ég var mjög ánægður með að heyra, hvaða skoðanir hann hefur á þessum málum. Það er enginn vafi á því, að það þarf að verða gagnger breyting í þessu þjóðfélagi á afstöðunni til aldraða fólksins. Og við verðum mjög fljótlega, að ég hygg, að gera einhverjar breytingar á því fyrirkomulagi, sem nú er, að við víkjum fólki frá störfum á vissum degi, þegar það hefur náð vissu aldurstakmarki. Þá er því kastað eins og ónýtum hlut út á sorphaug. Þetta getum við ekki leyft okkur til lengdar. Við verðum að leyfa þeim, sem fulla starfskrafta hafa og góða heilsu, að halda áfram störfum.

Það er ekki lengra síðan en í morgun, að ég hitti hér á götunni aldraðan mann, kunningja minn á áttræðisaldri, beinan og sterkan í hreyfingum, og hann sagði: Ég varð að hætta mínum störfum fyrir 5 árum. En ég var svo gæfusamur, að mér tókst að fá atvinnu, þar sem ég get haft samband við fólk og starfað með fullum afköstum. Og ég er sannfærður um það, sagði hann, að ef ég hefði ekki orðið fyrir þessu happi, þá væri ég ekki svona beinn og stæltur í dag. — Og ég er sammála því. Ég er sannfærður um það, að fjöldi manna, ég tala nú ekki um embættismenn, eru margir hverjir fljótir að missa alla starfsgetu, eftir að þeir hafa verið settir út úr sínum embættum. En sumir eru svo heppnir núna, að þeir komast í störf, t.d. eins og aldraðir læknar. Ég þekki dæmi um það, að læknar, sem hafa orðið að hætta 70 ára að aldri í fullu fjöri, hafa fengið sér læknisstörf einhvers staðar úti á landi. Ég þekki einn slíkan persónulega. Ég get líka sagt, að þjóðkunnur klerkur, sem er hættur störfum nýlega, er nú búinn að fá sér nýtt prestakall til þess að geta haldið áfram störfum og notið krafta sinna og látið aðra njóta þeirra með sér. Við hljótum að verða að taka tillit til þessa, að það eru orðin skilyrði til þess að vernda heilsuna og starfsþrekið miklu lengur nú heldur en áður var. Þar koma til bæði læknavísindin og bættur hagur manna og meiri vellíðan en áður var. Þessum skoðunum mínum vildi ég koma að í sambandi við þetta frv. og taka undir það, sem hæstv. heilbrh. sagði um þessi mál.

Ég verð að segja það, að mín skoðun er sú, að það sé mjög hæpið að hrúga saman mjög mörgum tugum eða hundruðum manna á gamalmennahælum, og það sé miklu skynsamlegra að reyna að byggja þessi hæli víðar um landið og þau séu ekki setin af hundruðum manna. Ég hef nokkrum sinnum heimsótt aldrað fólk, sem býr á slíkum hælum og ég verð að segja það, að það hefur ekki orðið til þess að auka álit mitt á þessu fyrirkomulagi. Ég held, að lífið lengist jafnvel og þrekið endist betur með því, að aldrað fólk fái sem allra lengst að taka þátt í störfunum, eins og ég sagði áðan, og starfa með yngra fólki.

Eitt af því, sem ég hef lengi haft áhuga fyrir, er það, að eitthvað yrði greitt fyrir því, að aldrað fólk úti í sveitunum gæti sem lengst verið kyrrt á sínum heimilum þar. Og fyrir mörgum árum flutti ég þáltill. um það efni hér á hinu háa Alþ., sem var samþ., en ég hef ekki séð, að það bólaði neitt á framkvæmdum í þessu efni. Ég skal viðurkenna, að það er erfitt að leysa þau mál, þannig að að verulegu gagni komi, og allra sízt er hægt að búast við, að það verði gert í flýti. En mér fyndist, að það mætti fara að gera tilraunir með það, reyna að koma upp einhverri aðstöðu í sem flestum sveitarfélögum, þar sem gamalt fólk, sem hefði enn þá starfsþrek, gæti átt heimili nálægt sínu fyrra heimili og komið þar til starfa, þegar eitthvað lægi við, eða jafnvel væri daglega hægt að flytja það á milli, svo að það gæti þar eitthvað starfað. Samgöngur eru nú orðnar viðast það góðar, a.m.k. meginhluta ársins, að þetta ætti að vera mögulegt. Og það mundi muna mikið um þessa starfskrafta fyrir dreifbýlið og það mundi létta á þeim gamalmennahælum og elliheimilum, sem hafa verið byggð, ef eitthvað í þessa átt væri gert.

Þá vildi ég koma aðeins að því atriði, sem hæstv. ráðh. minntist á í sambandi við réttindi aldraðra til ýmiss konar bóta, að ég veit og er vel kunnugt um, að það er fjöldi aldraðra, sem ekki hefur vitað um þau réttindi, sem þeir hafa til bóta frá almannatryggingunum. Og sama er að segja raunar um fjöldamargt annað fólk. það þarf ekki aldraða til. Nýlega hafa verið gerðar breytingar á almannatryggingal., t.d. í sambandi við rétt húsmæðra til sjúkradagpeninga o.fl., og mér er kunnugt um það, að fjöldi húsmæðra hefur ekki haft hugmynd um þessi réttindi. Ég hef sjálfur komizt í það núna á síðasta misseri að leiðheina þó nokkrum slíkum konum um sinn rétt, sem þær höfðu ekki hugmynd um. Og viðkomandi sjúkrahús eða læknir, sem þær höfðu haft samband við og leitað til, höfðu ekki leiðbeint þeim á þessu sviði. Mér finnst sannarlega, að það þyrfti að gera læknum það að skyldu, að þeir settu sig vel inn í þessi mál og leiðbeindu sjúklingum sínum um það, hvaða réttindi þeir hafi eða eigi að njóta, svo að þeir gætu leitað þeirra. Ég vildi leggja áherzlu á þetta einmitt nú í sambandi við umr. um þetta málefni.