25.01.1973
Sameinað þing: 34. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1729 í B-deild Alþingistíðinda. (1330)
Varamenn taka þingsæti
Frsm. (Björn Fr. Björnsson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf l. varaþm. Alþb. í Norðurl. v., Hannesar Baldvinssonar síldarmatsmanns frá Siglufirði, en hann tekur nú sæti á Alþ. í fjarveru Ragnars Arnalds, 4. þm. Norðurl. v., en Ragnar er erlendis og hefur því lögleg forföll. Kjörbréfanefnd samþykkir að mæla með því, að kosning þessa varaþm. verði metin gild og kjörbréfið verði samþykkt.