29.01.1973
Sameinað þing: 36. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1745 í B-deild Alþingistíðinda. (1344)

141. mál, neyðarráðstafanir vegna jarðelda í Vestmannaeyjum

Frsm. (Geir Gunnarsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur nú afgreitt frá sér álit um till. til þál. um neyðarráðstafanir vegna jarðelda í Vestmannaeyjum, og ég held, að það sé einfaldast, að ég lesi nál., sem er stutt og er svo híjóðandi:

„N. hefur athugað þáltill. og leggur til, að hún verði samþykkt með eftirgreindri breytingu: „1. málsl. orðist svo:

Alþingi ályktar að kjósa n. 7 þm. til þess að gera till. um neyðarráðstafanir vegna eldgossins í Heimaey og um fjáröflun þeirra vegna.“

Rætt var um það í n., að nauðsynlegt væri, að ríkisstj. kanni nú þegar, hvort unnt er að fá lán til langs tíma hjá sjóðum á vegum alþjóðastofnana.“

Hér lýkur nál., og ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta mál fleiri orð, vegna þess að það þarf að afgreiðast skjótt.