30.01.1973
Sameinað þing: 38. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1753 í B-deild Alþingistíðinda. (1357)

128. mál, vistheimilið í Breiðuvík

Fyrirspyrjandi (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram fyrirspurn á þskj. 128 til hæstv. menntmrh. um vistheimilið í Breiðuvík, og er það í tilefni af umr., sem hér fóru fram á hv. Alþ. á þessum vetri. Fsp. er í þremur liðum:

„1. Hve margir drengir geta dvalið á vistheimilinu í Breiðuvík?

2. Hve margir drengir dvelja þar nú?

3. Hve margir drengir hafa dvalið þar að jafnaði s.l. ár?"

Vistheimilið í Breiðuvík hefur starfað um 20 ára skeið. Stjórn vistheimilisins er í höndum þriggja manna n., sem ráðh. skipar. Ráðh. skipar einnig forstöðumann heimilisins að fengnum till. stjórnarnefndarinnar. Heimilið er fyrir drengi, sem framið hafa lögbrot eða eru á annan hátt á glapstigum, Barnaverndarnefndir og skólanefndir eða barnaverndarráð ákveða að höfðu samráði við stjórnarnefndina, hverjir hljóti vist á heimilinu. Áður en dreng er veitt viðtaka á heimilið, skal stjórnarn. kynna sér aðstæður allar í máli hans, þ. á m. hver sé afstaða foreldra hans eða forráðamanna til vistunar. Þá er gert ráð fyrir, að læknir rannsaki rækilega heilsufar drengsins, sömuleiðis sálfræðingur, ef unnt er. Vistdrengjum skal séð fyrir lögskipaðri fræðslu, og er gert ráð fyrir, að kennari sé á heimilinu allt árið, sem annist kennsluna og aðstoði við uppeldisstörf á heimilinu. Þá er gert ráð fyrir, að drengjum sé séð fyrir nauðsynlegum tækjum til íþróttaiðkana. Gert er ráð fyrir, að læknir fylgist með heilsufari drengjanna. Forstöðumaðurinn annast daglega stjórn á heimilinu, og skal hann fylgjast með hegðun drengjanna, bæði utan heimilisins og innan. Gert er ráð fyrir, að drengjunum sé séð fyrir hæfilegri vinnu, en að vinnutíminn fari ekki yfir 7 stundir hvern virkan dag. Á meðan kennsla fer fram í skólanum, er gert ráð fyrir, að vinnutími utan kennslunnar fari ekki mikið fram úr einni klst. á dag. Þá er gert ráð fyrir, að forstöðumaður haldi nákvæma dagbók fyrir heimilið og þar skuli skráð flest atvik, sem heimilið varða og skipta rekstur þess, og einnig, að haldin sé spjaldskrá um hegðun drengjanna. Um dvöl drengjanna á heimilinu fer eftir því, hvernig ástand þeirra er, hvort þeir hafa tekið framförum í hegðun, hvort þeir hafa sýnt vilja á því að fara eftir lögum og reglum og hvort líklegt sé, að þeir séu færir um, þegar þeir koma út af heimilinu, að ganga hinn rétta veg, sem borgaraleg skylda leggur hverjum manni á herðar. Þá er gert ráð fyrir því, að á heimilinu verði drengirnir fyrir hollum og góðum uppeldisáhrifum, að þeir hafi nægilegt starf og geti fengið eðlilega kennslu og góða meðferð á öllum sviðum.

Það er gert ráð fyrir, að á heimilinu sé búrekstur, garðrækt, grasrækt og búfénaður, og einnig, að sjóróðrar séu stundaðir á sumrin. Gert er ráð fyrir, að þörfum heimilisins fyrir matjurtir og aðrar búvörur verði fullnægt og einnig, að afli sé dreginn úr sjó til matvæla fyrir heimilið og umfram það, ef unnt er. Þá er gert ráð fyrir, að á heimilinu verði komið upp léttum iðnaði eða handiðn, svo að drengirnir geti stundað innivinnu á veturna.

Í samræmi við þennan tilgang var komið upp byggingum og búrekstri í Breiðuvík. Starfaði heimilið með myndarbrag lengi vel, og enginn vafi er á því, að tilgangi þessum var náð í öllum aðalatriðum. En fsp., sem ég hef nú lagt fram, er gerð í tilefni þess, að orðrómur er um, að starfsemi heimilisins sé nú miklu minni en verið hefur. Sérstaklega er fsp. gerð með tilliti til þess, að nú jafnvel fremur en oft áður er þörf fyrir það, að vistheimilið verði notað fyrir drengi, sem fremja afbrot bæði hér í höfuðborginni og annars staðar. Í umr. um þessi mál í vetur hefur komið berlega í ljós, að vandræðadrengir, sem stunda lögbrot, ganga lausir, vegna þess að ekki er tiltækur samastaður fyrir þá, að sagt er. Lögreglan hefur verið í vandræðum með, hvað við þessa drengi eigi að gera. Ef vistheimilið í Breiðuvík er ekki notað að fullu, þá er eðlilegt, að að því sé spurt, hvers vegna vandræðadrengir hér í Reykjavík og víðar, sem eru að brjóta lög hvað eftir annað, eru ekki sendir til Breiðuvíkur til þess að verða þar fyrir batnandi áhrifum, eins og áður var gert. Ég vænti þess, að hæstv. menntmrh. geri grein fyrir því, hversu margir drengir dvelja á vistheimilinu nú, hversu margir þeir voru á s.l. ári og hversu mikið rúm er þar nú fyrir drengi til dvalar, ef það væri að fullu notað.