31.01.1973
Efri deild: 51. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1762 í B-deild Alþingistíðinda. (1378)
29. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Hér er til framhaldsumr. mál, sem var á dagskrá 4. des. s.l. Þá voru nokkrar umr. í tilefni af brtt., sem ég hef borið fram við frv. þetta á þskj. 121. Samkv. frv. er gert ráð fyrir, að það verði stefnt að því, að Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins starfræki rannsóknastofur a.m.k. eina í hverjum landsfjórðungi. Það er við þetta, sem ég geri brtt.
Ég hef ekki á móti því, að það sé stefnt að því, að það verði rannsóknastofa í hverjum landsfjórðungi, og tel það raunar sjálfsagt. En samkv. brtt. minni er gert ráð fyrir því, að það sé tekið þegar fram, að Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins skuli starfrækja rannsóknastofu í Vestmannaeyjum og á Ísafirði. Ástæðurnar fyrir þessu eru þær, að hvað varðar Vestmannaeyjar er einungis verið að staðfesta það, sem er staðreynd eða hefur verið staðreynd. Slík stofnun sem hér um ræðir hefur verið starfrækt í Vestmannaeyjum. En hvað varðar Ísafjörð, þá er till. gerð vegna þess, að það hafa komið fram óskir frá Ísfirðingum, bæjarstjórn Ísafjarðar, um það, að slík rannsóknastofnun verði sett þar á fót. Bréf var sent af hálfu bæjarstjórnarinnar til fjvn. um fjárveitingu á þessu ári í þessu skyni, þannig að hér er um raunhæft viðfangsefni að ræða hvað viðkemur Ísafirði og eðlileg viðbrögð að taka þegar fram í löggjöfinni, að slík stofnun skuli vera á Ísafirði.
Hv. 1. flm. þessa frv., hv. 1. þm. Vestf., lýsti stuðningi sínum við þessa brtt. mína, og átti ég ekki á öðru von úr þeirri átt. Raunar gerði ég ráð fyrir, að svo sjálfsögð till. mundi hljóta almennt fylgi hér í d., og treysti því raunar enn þá. En það hefur heyrzt ein rödd, sem hefur mælt á móti þessari till. minni, og það er hv. 3. þm. Austf. Hann hefur kvatt sér hljóðs og mælt gegn þessari brtt. Og það brá svo við, að þegar hann hafði lokið máli sínu, var umr. þegar í stað frestað. Þetta var í byrjun des., og ég hef ekki fengið neina skýringu á því í fyrsta lagi, hvers vegna umr. var frestað, því að það var ástæðulaust, að því er virtist, eða hvers vegna málið var ekki fyrr tekið upp og afgr. frá d. eða jafnvel frá þinginu fyrir áramót, en ég hefði mjög gjarnan viljað, að svo hefði orðið. Ég skal ekki víkja fleiri orðum að þessari forsögu, en skal þá víkja nokkrum orðum að ræðu hv. 3. þm. Austf.
Hann sagði, að þegar svo stæði á sem hér er um að ræða væri um tvær leiðir að ræða. Önnur væri sú, að það væri almennt ákvæði um, að það skyldi setja á stofn slíkar rannsóknastofur sem hér um ræðir í hverju kjördæmi án þess að tiltaka í löggjöfinni, hvar það skyldi gert eða hvenær þær skyldu settar á fót, en það skyldi þá lagt í vald ráðh. Hin leiðin væri sú að tilnefna í lögunum sjálfum alla staðina, sem þessar stofnanir ættu að koma á. Og það hefur raunar verið ætlun flm. þessa frv. á síðasta þingi, því að þá höfðu þeir kosið þá leið. En það, sem hv. þm. fann brtt. minni til foráttu, var, að það væri hvorugri þessari leið fylgt, heldur farin leið, sem hann taldi óhæfa.
Um þá leið að setja almennt ákvæði í löggjöfina og fela það á vald ráðh. að ákveða, hvar og hvenær þessar stofnanir skuli reistar, vil ég aðeins segja það, að ég er henni andvígur. Ég fel, að það sé ekki rétt í svo þýðingarmiklu máli sem hér um ræðir, að Alþ. afsali sér ákvörðunarrétti um þessi mál, Alþ. eigi sjálft að taka ákvarðanir í þessu efni, en ekki fela það ráðh. Þess vegna tel ég, að ekki eigi að fara þessa leið. En hinni leiðinni, sem hv. þm. benti á, að tiltaka alla staðina, er ég einnig andvígur, vegna þess að ég tel, að slík leið sé ákaflega óraunhæf. Ákaflega óeðlilegt er, að það sé þannig staðið að þessu máli, að það sé ekki farið af stað, fyrr en búið er að ákveða alla þessa hluti fyrir fram. Í fyrsta lagi getur orðið allmikil bið á því, að það takist. Í öðru lagi tekst það aldrei til frambúðar, því að ekkert verður endanlegt í þessum efnum.
Ég held því, að það sé alrangt, sem hv. 3. þm. Austf, heldur fram, að það séu ekki nema þessar tvær leiðir, sem hann bendir á, sem séu færar í þessu efni. Ég tel, að hvorug þeirra leiða sé fær og þær eigi ekki að fara, heldur eigi að fara þá leið, sem venjulega hefur verið farin undir hliðstæðum kringumstæðum, þ.e.a.s. að byrja á verkinu þar, sem ljóst er, hvar er hægt að vinna það, og bæta svo við, eftir því sem slíkar aðstæður skapast annars staðar. Þannig er alltaf unnið að almennum framfaramálum í landinu. Ef hefði átt að fara þá leið, sem hv. þm. segir, að byrja aldrei á neinu fyrr en búið var að ákveða, að hliðstæðar stofnanir væru settar á fót í öllum kjördæmum landsins eða landshlutum, hvernig hefði saga okkar orðið? Hér er að mínu viti um grundvallarmisskilning að ræða. Tökum sem dæmi skólamálin. Ég á þó ekki við hina almennu skólaskyldu, því að til þess að fullnægja henni verður að stofnsetja skóla hvarvetna um landið. En á öllum tímum höfum við verið að brjótast fram úr því, sem hefur verið hin almenna skólaskylda. Það hafa ýmsar orsakir og ástæður legið fyrir því. Það hefur verið löng barátta í einstökum héruðum úti á landi, oft gegn skilningsleysi og deyfð valdhafanna og trúleysi á því, að það væri hægt að framkvæma slíka hluti, sem um hefur verið að ræða, í hinum dreifðu byggðum landsins. Það hefði verið handhægt að standa gegn slíkum framfaramálum með því að segja: Það má ekki fara af stað, nema það sé gert alls staðar annars staðar.
Hvað hefði gerzt í máli eins og menntaskólamálinu á Akureyri á sínum tíma, ef það hefði átt að drepa það mál á þeirri forsendu, að ekki mætti hreyfa því, nema það kæmi jafnhliða og væri ákveðið um leið, að menntaskólar skyldu koma í öllum landsfjórðungum? Hvað hefði skeð í sambandi við iðnfræðsluna í landinu, ef hin frjálsu samtök iðnaðarmanna á einstökum stöðum úti á landi hefðu fengið það svar: Nei, það þýðir ekki fyrir ykkur á þessum stað að vera að tala um að stofnsetja iðnskóla, vegna þess að það verður svo einnig að vera á öðrum stöðum á landinu? Hvað hefði gerzt í sambandi við húsmæðraskólana í landinu, ef áhugasamtök kvenna í einhverju sýslufélagi hefðu fengið það svar: Nei, það þýðir ekki fyrir ykkur að leita til ríkisvaldsins til þess að fá stuðning við að reisa og reka slíkan skóla, vegna þess að það verða að koma hliðstæðir skólar annars staðar? Hvað hefði gerzt, ef svo hefði verið haldið á málum í sambandi við héraðsskóla landsins. Margir þeirra eru þannig til komnir, að fyrir framtak einstaklinga eða félagssamtaka risu þeir upp á einstaka stöðum, en ekki almennt. En hvað hefði orðið um framtíð og tilveru þessarar stofnunar, ef það hefði verið sagt: Þið getið ekki vænzt neins frá ríkisvaldinu, vegna þess að það verður samkv. ákveðnum reglum að vera búið að ákveða, að það komi slíkir skólar á hliðstæðum stöðum alls staðar annars staðar á landinu?
Ég gæti haldið svona áfram. En ég held að það sé ekki ástæða til þess að gera slíkt. Ég vildi aðeins með þessu benda á, að það er grundvallarmisskilningur að halda því fram, að það sé ekki hægt að vinna að einstökum framfaramálum úti á landsbyggðinni í einstökum héruðum eða einstökum byggðarlögum, nema það sé gert eftir fyrir fram ákveðinni línu og ákveðið, að hliðstætt skuli samstundis gert annars staðar. Hvernig sem litið er á málin, eru einmitt þau vinnubrögð, sem við höfum viðhaft, eðlileg. Ekkert raunhæft er gert í þessu efni nema fyrir átak og áhuga fólksins á viðkomandi stað. Og það ber mismunandi að, hvað er mesta áhugamálið á hverjum stað. Þess vegna er ekkert óeðlilegt við það, þótt hliðstæðar framfarir verði ekki samtímis eða hliðstæðar stofnanir, hvort sem það eru menningarstofnanir eða aðrar stofnanir, rísi ekki upp á sama augnabliki um allt land. Auk þess er nærri ógerlegt að ætla að vinna þannig að málum. Það er affarasælast að taka þetta stig af stigi og jafnvel njóta reynslu þeirra, sem fyrst fara af stað, þegar haldið er áfram. Og ég held, að það sé ákaflega þýðingarmikið líka út frá allri okkar viðleitni til þess að efla jafnvægið í byggð landsins að halda einmitt á þessum málum með þeim hætti, sem ég er hér að segja, og eins og hefur verið gert.
Eins og ég sagði áðan, er ófær sú leið, sem hv. 3. þm. Austf. talar um, að setja inn í löggjöfina í upphafi aha þá staði, þar sem þessar stofnanir eiga að koma, vegna þess að það er ekkert endanlegt í þessu. efni. Við eigum ekki heldur að gera okkur ánægða með, að það sé aðeins ein rannsóknastofa í hverjum landsfjórðungi eða í hverju kjördæmi. Þær eiga að geta verið fleiri.
Þannig er það, að frá hvaða sjónarmiði sem litið er á þetta mál, þá sýnist mér, að það sé einsýnt, að það sé eðlilegt að samþykkja þá brtt., sem ég hef hér borið fram. Ég held, að afstaða hv. 3. þm. Austf. sé þess eðlis, að hún geti orðið til trafala þessu máli og sú grundvallarstefna, sem hann virðist aðhyllast að þessu leyti, sé stórvarhugaverð. Nú dettur mér hins vegar ekki í hug að væna hv. þm. um, að hann vilji ekki allt hið bezta í þessu efni. Ég vildi leyfa mér að vona, að við nánari athugun á þessu máli getum við þrátt fyrir allt náð samstöðu um málið.
Ég sagði áðan, að mér væri hulin ráðgáta, hvers vegna það hefði verið strax hætt umr. um þetta mál 4. des., þegar hv. 3. þm. Austf. hafði lokið máli sínu, þar sem raunverulegur fundartími d. var ekki liðinn og mikið eftir af honum. Ég undraðist það, hvers vegna þetta mál hefði þá ekki fljótlega komið til framhaldsumr. Nú gat verið og ekki óeðlilegt, að n. sú, sem hefur þetta mál til meðferðar, tæki brtt. mína til meðferðar. En ég átti viðræður nú fyrir þennan fund við formann sjútvn., og það mun vera svo, að n. hefur ekki tekið þetta mál til meðferðar. Ég skal taka það fram til að fyrirbyggja misskilning, að ég óskaði ekki sjálfur eftir því. En nú þykir mér eðlileg málsmeðferð, að milli 2. og 3. umr. taki n. till. mína til meðferðar. Ég treysti ágætlega hv. 4. þm. Vestf., formanni sjútvn. til þess að sjá svo um, að n. taki málið til skjótrar athugunar, og raunar treysti ég hv. 4. þm. Vestf. til þess að stuðla að því, að afgreiðsla n. verði jákvæð. En með því að málið liggur þannig fyrir nú frá mínu sjónarmiði, tek ég brtt. mína til baka til 3. umr.