25.10.1972
Neðri deild: 6. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 352 í B-deild Alþingistíðinda. (138)
25. mál, dvalarheimili aldraðra
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Hæstv. ráðh. gerði hér ítarlega grein fyrir frv. til l. um dvalarheimili aldraðra, flutti ítarlega og ágæta ræðu um það efni, og get ég tekið undir mjög margt og flest af því, sem hann sagði. Margt af því, sem hann sagði, hefur að vísu margoft verið sagt áður, en er eigi að síður gott og rétt. Þar af leiðandi get ég lýst stuðningi mínum við þetta frv. Ef þetta verður samþ., verður auðveldara en áður að reisa dvalarheimili, þó að það hafi verið gert, áður en slík hreyfing komst á þetta mál.
En í ræðu sinni vék hæstv. ráðh. nokkuð að umboðsmönnum trygginganna, sem ég get ekki látið ósvarað eða látið hjá liða að gera nokkrar aths. við. Ég hef nú verið umboðsmaður trygginganna í 17 ár, svo að ég ætti að vera dálítið kunnugur þessum málum, a.m.k. í mínum umdæmum. Ég hef ekki orðið var við annað en allan þann tíma hafi verið reynt að dreifa upplýsingum til almennings, og sem betur fer get ég lýst því yfir með góðri samvizku, að mér hefur fundizt ríkja gagnkvæmt traust bæði milli umboðsmanns trygginganna og bótaþega og einnig og ekki síður milli umboðsmanna og Tryggingastofnunar ríkísins. Það hefur ríkt mjög gott og traust og náið samstarf á milli þessara aðila, að ég held. En í máli sínu greindi hæstv. ráðh. frá ferð sinni norður og austur í maí s.l. og ræddi þar um óafsakanlega og ósæmilega framkomu nokkurra embættismanna, sem væntanlega eru umboðsmenn trygginganna á þessu svæði, og brá þeim í raun og veru um fjárdrátt eða að halda fé, sem þeir ættu að vera búnir að greiða til bótaþega. Enda þótt ég sé ekki kunnugur á Norður- og Austurlandi að þessu leyti, þá finnst mér þetta nokkuð mikið tekið upp í sig, að löðrunga hóp fjarverandi manna svona í einu lagi. Mér finnst því fara vel á því, að svo vill til, að aðalfundur Dómarafélags Íslands verður haldinn snemma í næsta mánuði. há verður þessum umboðsmönnum að sjálfsögðu skýrt frá þessum ummælum hæstv. ráðh., svo að þeir fái þá tækifæri til að bera hönd fyrir höfuð sér og fjalla að öðru leyti um þessi mál.