31.01.1973
Efri deild: 51. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1770 í B-deild Alþingistíðinda. (1383)
29. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna
Tómas Karlsson:
Herra forseti. Þar sem ákveðið er, að þetta mál fari aftur til athugunar í n., og þar sem hv. flm. brtt. á þskj. 121 hefur dregið hana til baka, en hyggst flytja hana, að mér skilst, óbreytta við 3. umr., vildi ég leyfa mér að koma nokkrum vinsamlegum ábendingum til hv. flm. till., hv. 5. þm. Vestf. Það þýðir kannske ekki mikið, því að hann virðist ekki taka rökum í þessu máli, en samt ætla ég nú að freista þess að koma til hans vissum staðreyndum, sem liggja fyrir í málinu.
Í fyrsta lagi er það, að sú rannsóknastofa, sem komið var upp í Vestmannaeyjum, er þar starfrækt og henni komið á fót með framlögum og áhuga heimamanna, bæjarstjórnar og fiskvinnslustöðvanna þar, og ég held, að í þessu frv. sé lögð réttilega áherzla á, að það sé mjög mikilvægt, að einmitt aðilarnir á staðnum, sem eiga að njóta þjónustu þessara stofnana, eigi heina aðild að bæði stofnkostnaði og rekstri stofnunarinnar. Þetta held ég, að sé höfuðatriði, og það er slíkt höfuðatriði, að ég tel, að brtt. hv. 5. þm. Vestf. brjóti í rauninni gegn þessu grundvallaratriði. (Gripið fram í.) Ég skal skýra það. Í frvgr. er einmitt gert ráð fyrir þessari leið, að aðilar á staðnum eigi aðild að þessum stofnunum, og það er orðað þannig, að stefnt skuli að því, að Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins starfræki rannsóknastofur úti um landið. En í brtt. hv. 5. þm. Vestf. segir: „Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins skal starfrækja rannsóknastofu í Vestmannaeyjum og á Ísafirði.“ Hann vill því ákveða í lögunum um raunverulega aðeins einn stað, þegar þörfin kallar að alls staðar á landinu, og taka þann stað þannig fram fyrir, að þar sé skylt að starfrækja slíka stofnun, þó að ekkert liggi fyrir um það, hvort aðilar á Ísafirði t.d. mundu vilja fullnægja því lágmarksframlagi, sem vafalaust verður sett sem skilyrði til þess að setja slíkar stofnanir á stofn. Ég tel, að það sé útilokað annað en Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins setji einhverjar almennar reglur, þannig að eitt komi yfir alla í þeim efnum, um eitthvert lágmarksframlag frá aðilum á staðnum til þátttöku í rekstri og stofnkostnaði slíkra rannsóknastofa.
Af þessum ástæðum tel ég, að ekki sé fært að samþykkja þessa brtt., eins og hún er orðuð, vegna þess að hún gengur í berhögg við annað það, sem stendur í frvgr. og flm. telur, að áfram eigi að standa óbreytt. Þess vegna vildi ég koma þessari ábendingu á framfæri við hann, ef hann ætlar að flytja brtt. við 3. umr., þannig að hann a.m.k. gæti breytt brtt. sinni, þannig að hún yrði raunverulega í samræmi við efni frvgr.
Ég held í rauninni, að hér sé hv. þm. að búa til vandamál, búa til ágreining, sem raunar er ekki eða a.m.k. ætti alls ekki að vera fyrir hendi. Ég er sannfærður um, að ef aðilar á Ísafirði eru tilbúnir og gera það opinbert, að þeir séu tilbúnir til þess að leggja fram framlög og taka þátt í þessum rekstri og taka á svipaðan hátt á þessu máli og t.d. Vestmanneyingar gerðu, þá tel ég alveg fullvíst, að þegar í stað yrði ráðizt í það að koma upp slíkri rannsóknastofu á Ísafirði, þegar þetta frv. er orðið að lögum. Ég tel, að það sé engin ástæða fyrir hv. þm. að vera að gera því skóna, að slíkum beiðnum frá Ísfirðingum yrði hafnað, eftir að þetta frv. er orðið að lögum. Þess vegna orða ég það þannig, að það sé raunverulega verið að búa til ágreining í þessu máli. En í sambandi við það vil ég leggja á það áherzlu, að eftir samþykkt þessa frv. yrðu beiðnir annars staðar að af landinu auðvitað teknar fyllilega jafnt til greina og beiðnir frá Ísafirði.