31.01.1973
Neðri deild: 45. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1773 í B-deild Alþingistíðinda. (1387)
130. mál, skólakostnaður
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Út af þessu frv., sem hér liggur fyrir til 1. umr., vil ég lýsa því yfir, að ég er samþykkur þessu frv. og að verulegu leyti þeim meginskýringum, sem hæstv. menntmrh, var að lýsa rétt áðan. En ég vil taka það fram, að í reynd, eins og hæstv. menntmrh. sagði, hafa framlög til skólabygginga, frá því að hin nýju skólakostnaðarlög voru sett, verið 4 ár, en þó með ákveðnum undantekningum, sem hann tók ekki fram. Á þessu tímabili hefur verið haldið við það að greiða hlutdeild ríkissjóðs í öllum minni byggingum og íbúðarhúsnæði kennara og skólastjóra á 3 árum.
Það var oft talað um það, hvað ríkissjóður væri seinn að greiða framlög sín, á meðan 5 ára ákvæðið var í lögum, og þá var þessum skólakostnaðarlögum breytt í þetta horf, að ríkissjóður greiddi framlag sitt á 3 árum. Margir voru ekki bjartsýnir á að taka upp þetta ákvæði á þeim tíma. En þó held ég, að reynslan hafi sýnt, að velflest sveitarfélög hafa þurft lengri tíma til að standa undir sínum hluta af kostnaðinum, en þá er undanskilin Reykjavík og nokkur önnur fjölmennustu byggðarlög landsins, sem hafa komið með sitt framlag á 3 árum og í sumum tilfelfum jafnvel á skemmri tíma, svo að það má segja, að með þessum lögum hafi verið þrengd verulega greiðsluskylda ríkissjóðs.
Ég sé enga ástæðu til að hafa í gildi lög, sem ekki hefur verið eða verður farið eftir, eða nú er þetta frv. flutt um það, að ríkissjóður inni af hendi greiðslu á 4 árum. En þá kom upp í mínum huga miklar efasemdir um það, að ríkissjóður standi við að greiða framlag sitt á 4 árum. Af framkvæmdaliðum ríkisins til verklegra framkvæmda, hygg ég, að langstærsti liðurinn sé einmitt framlög til skólabygginga skyldunámsins, og það hefur komið í ljós, að 1971 hækkaði þetta framlag um 39% frá árinu á undan og 1972 hækkaði þetta framlag um 37%. En við undirbúning fjárl. fyrir árið 1973 var lögð á það mjög mikil pressa af ríkisstj. og þá, svo sem eðlilegt er, sérstaklega af hæstv. fjmrh., við fjvn. og þá menn, sem voru í undirnefnd um skólamál, að koma úthlutun þannig fyrir, að framlög til skólabygginga hækkuðu ekki verulega frá því, sem var í fjárlagafrv., eins og það var lagt fyrir Alþ. á fyrsta degi þings á s.l. hausti.
Ég hygg, að það verði ekki sagt annað en að fjvn. og þá auðvitað um leið þessi undirnefnd fjvn. hafi lagt sig alla fram um það að taka fullt tillit til þessarar óskar hæstv. ríkisstj., og þá á ég ekki síður við okkur fulltrúa stjórnarandstöðunnar í þessari n. En því er við að bæta, að ríkisstj. hafði ákveðið að skera niður framkvæmdir til skólabygginga á s.l. ári með heimild í brbl., sem hún gaf út í júlímánuði á s.l. ári um tímabundnar efnahagsráðstafanir, og samkvæmt þeim lögum ákvað ríkisstj. að skera niður framkvæmdir til byggingar skóla á s.l. ári um 53 millj. kr. Þessar 53 millj. kr. voru svo aftur bættar upp með því, að það var tekið fullt tillit til þess niðurskurðar við fjárlagaafgreiðsluna við skiptingu á framlögum til skólabygginga, og þar með má segja, að hafi verið réttur hlutur þeirra skóla eða þeirra framkvæmda, sem skornar voru niður á s.l. ári.
Eins og ég sagði áðan, lögðum við okkur alla fram um að verða við þessum óskum, og útkoman varð sú, að í stað 39% hækkunar og 37% hækkunar varð í reynd 7.5% hækkun við afgreiðslu fjárlaga til þessa mikilvæga framkvæmdaliðs. Það hefði einhvern tíma þótt í frásögur færandi, þegar haldið var fram af fulltrúum þáv. stjórnarandstöðu, sem nú eru fulltrúar stjórnarinnar, að framlög til verklegra framkvæmda væru engan veginn nógu há, og þegar þau hækkuðu um 39%, var það ekki talið nægja á einn eða annan veg, því að það væri auðvitað algjört lágmark, að framlög til verklegra framkvæmda fylgdu byggingarvísitölunni á hverjum tíma, og sumir, sem áhugasamastir voru um framkvæmdir, vildu láta þau fylgja hlutfallslegri hækkun fjárlaga. Við, sem þá studdum ríkisstj., töldum slíkt fráleitt og höfum ekki skipt um skoðun enn þá, þó að við séum komnir í stjórnarandstöðu, að mjög fáránlegt sé að halda slíku fram. Hinu höfum við haldið fram, að ef við hefðum átt að halda í horfinu um þessar framkvæmdir, var það í raun og veru lágmark, að fylgt væri hækkun á byggingarvísitölunni. En þrátt fyrir það og með tilliti til þeirra erfiðleika, sem fram undan voru í efnahagsmálum, þegar fjárl. voru afgreidd, sættum við okkur í stjórnarandstöðunni við það, að þessar hækkanir yrðu aðeins 7.5% miðað við fjárl. ársins 1972, þegar aftur var veitt það, sem niður var skorið til þessara framkvæmda á s.l. ári.
En við endanlega afgreiðslu fjárl. kom babb í bátinn. Þegar búið var að þrengja að eins og hægt var og taka fullt tillit til aðstæðna, þá er tekið sig til og flutt ein saklaus till. um það að heimila ríkisstj. niðurskurð um allt að 15% á öllum verklegum framkvæmdum, rekstrarkostnaði og ýmsu fleira. Verð ég að segja, að slík till. hafi í raun og veru komið í bakið á Alþ., og mér er kunnugt um það, að ríkisstj. var byrjuð á því að framkvæma þennan niðurskurð sinn, áður en gosið hófst í Vestmannaeyjum, svo að það sem slíkt hafði ekki áhrif á þetta.
Ég vil því leyfa mér í framhaldi af því, sem ég hef nú sagt, spyrja hæstv. menntmrh. að því, á hvern hátt hann og ríkisstj. ætli sér að framkvæma þennan niðurskurð í sambandi við framlög til skólabygginga á þessu ári. Ætlar hann að skera niður fjárveitingar til skólabygginga allra jafnt um 15%, eða hefur verið gerð áætlun um að skera framlög til ákveðinna skólabygginga niður um hærri hlutfallstölu en þetta og aðrar ekki? Ég vil í því sambandi benda honum og hv. þm. á það, að eftir að nýju skólakostnaðarlögin tóku gildi, hafa verið gerðir samningar við fjölmörg sveitarfélög varðandi byggingu skólamannvirkja og þau aftur gert verktakasamninga, sem við höfðum byggt á í sambandi við framlög til þessara ákveðnu skólamannvirkja á þessu ári, 1973. Ef þessi niðurskurður kemur jafnt niður á alla eða 15% á hvert einasta skólamannvirki í landinu, þá raskar það eðlilega gerð þessara samninga og getur skapað undir mörgum kringumstæðum skaðabótaskyldu. Ef aftur á að fara í það að skera niður að mestu leyti, framlög til ákveðinna skóla, sem ekki eru komnir nema lítillega eða ekki á stað, þá auðvitað þýðir það, að framlög til ákveðinna skóla eru að verulegu leyti þurrkuð út. Þetta vildi ég mjög gjarnan fá að heyra, hver væri afstaða hæstv. menntmrh. til þessa niðurskurðar og á hvern hátt hann og hæstv. ríkisstj. ætla að framkvæma þennan niðurskurð. Ef við lítum svo á, að 15% niðurskurður eigi að jafnaði að vera gildandi í sambandi við þessi framlög, þá mun vera um að ræða nálægt 70% niðurskurð á þessum árum, bara til þessarar einu tegundar verklegra framkvæmda í landinu. Og þá vil ég einnig spyrja hæstv. menntmrh. að því, hvort honum hrjósi þá ekki hugur við að velta 70 millj. á undan sér, ef hann og ríkisstj. ætla að standa við að greiða framlög ríkissjóðs á 4 árum, eftir að þetta frv. er orðið að lögum. Ákvæðið til bráðabirgða að skipta lokaframlagi til skólabygginga á tvö ár, árin 1973 og 1974, hefur í för með sér, að þungi til þessara framkvæmda fer mjög vaxandi einmitt á árinu 1974, ekki eingöngu hvað snertir lokaáfanga, sem skipt er á 2 ár, heldur einnig fé til þeirra framkvæmda, sem búið er að veita til fjármagn eitt ár eða fleiri, því að það vex þá og þessi tala hækkar mjög mikið í sambandi við fjárlög ársins 1974. Hefur hæstv. ríkisstj. gert sér grein fyrir þeim breytingum, sem þá hafa orðið í sambandi við fjármál og fjárhagsgetu, og er hún sannfærð um það, að þetta frv., sem hún leggur mér fram um að inna af hendi greiðslur til þessara framkvæmda á 4 árum, gangi nægjanlega langt? Ég efast stórkostlega um það. Ég held, að allt bendi til þess, í sambandi við fjárlög ársins 1974, að ríkisstj. geti ekki velt stórfelldum greiðslum yfir á þau einu fjárlög, eins og ástand og horfur í efnahagsmálum eru nú í landinu.
Ég ætla svo ekki að hafa þessi orð fleiri, en ég vænti þess, að hæstv. menntmrh. gefi upplýsingar um það, sem ég hef spurt hér um og gert að umræðuefni.