31.01.1973
Neðri deild: 45. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1776 í B-deild Alþingistíðinda. (1388)
130. mál, skólakostnaður
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):
Herra forseti. Hv. 2. þm. Vestf. spyrst fyrst og fremst fyrir um það, hvernig fyrirhuguð sé framkvæmd á heimi!d ríkisstj. til 15% lækkunar fjárframlaga til ólögbundinna fjárveitinga, að því er til skólabygginga tekur, og spyr, hvort tekinn verði sá kostur að skera þar niður hverja og eina framkvæmd um 15% eða hvort annar háttur verði hafður á. Í heimildinni, sem ríkisstj. fór fram á, felst í rauninni svar við fyrirspurninni um fyrirætlun hennar í þessu efni. Hefði það verið ætlun ríkisstj. að láta niðurskurðinn taka jafnt til allra fjárveitinga, hefði verið hægurinn hjá að taka strax fram, að sú væri ætlunin. En það er síður en svo ætlun ríkisstj., jafnt að því er tekur til fjárframlaga til skólabygginga og annarra fjárframlaga, sem undir þessa heimild ná, að ganga þar svo að segja blindandi til verks. Þegar niðurskurður var ákveðinn á tilteknum framkvæmdum á s.l. sumri, var einmitt hafður sá háttur á, að fjmrh. og önnur rn. fóru í sameiningu yfir útgjaldaliðina, og síðan var eftir þá athugun ákveðið, hvar unnt væri að spara með minnstum skaða. Sami háttur verður nú hafður á. Sú 53 millj. kr. lækkun, sem gerð var á síðasta ári á framlögum til skólabygginga, var gerð þannig, að ég hef ekki orðið var við, að neinir aðilar telji, að hún hafi orðið til verulegs tjóns eða trafala, því að eins og hv. þm. veit, hefur ætíð verið um það að ræða á þessu kostnaðarsviði, að verulegur hluti fjárveifinga hefur geymzt frá ári til árs, vegna þess að ekki hafa verið aðstæður til að nota fjárveitingar til fulls. Á svipaðan hátt verður farið að nú. Það er rétt hjá hv. þm., að þegar þessi háttur er hafður á ár eftir ár, safnast fyrir þörf, sem kemur fram í fjárveitingum á næstu árum á eftir. Að sjálfsögðu hafa síðustu atburðir áhrif á fjárhagsgetu íslenzka ríkisins á þessu sviði eins og öðrum. En ég efast um, að hv. þm. ætlist til þess, að ég gefi á þessari stundu skýr svör um, hvernig þær aðstæður koma fram á fjárlagafrv. fyrir árið 1974, þó að ekki sé farið lengra fram í tímann.