31.01.1973
Neðri deild: 45. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1779 í B-deild Alþingistíðinda. (1392)

130. mál, skólakostnaður

Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Aðeins örfá orð út af þessari fsp. um frv. um heilbrigðismál. Það frv. var lagt fram á síðasta þingi til kynningar. Síðan og í sambandi við það var því dreift mjög víða út um landið, og bárust við það ákaflega margar aths. og voru mjög skiptar skoðanir um ýmis atriði í því. Það er unnið úr þessum efnivið á vegum rn. nú í vetur, og frv, er í prentun í þeirri gerð, sem ég vænti, að það verði lagt fram. Ég geri ráð fyrir, að það geti orðið innan mjög skamms tíma. Að sjálfsögðu geri ég mér vonir um, að þetta frv. verði afgreitt á þessu þingi, en það er að sjálfsögðu undir því komið, hverjar undirtektir og hvern skilning það fær hjá hv. alþm.