31.01.1973
Neðri deild: 45. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1779 í B-deild Alþingistíðinda. (1393)
130. mál, skólakostnaður
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Hæstv menntmrh. sagði hér síðast, að hann vildi gjarnan, að ég gerði aths. mínar til sín varðandi niðurskurð. Ég skal gjarnan verða við því og ekki fara út í það hér, því að ég fékk aðeins að gera hér stutta aths. En ég vil þó aðeins segja það, að af þeim 174 millj., sem skornar voru niður til verklegra framkvæmda, má segja, að liðlega 40 millj. séu til verkefna, sem ekki er hægt að staðsetja í ákveðnu kjördæmi að öðru leyti en því, að þau verkefni eru hér í Reykjavík, en eru fyrir alla landsmenn. En það sem er hægt að staðsetja eftir kjördæmum, þá er mjög eftirtektarvert, að í Reykjavík voru skornar niður framkvæmdir upp á 17.5 millj. kr., á Vesturl. 16 millj., Vestf. 21.3 millj. kr., Norðurl. v. 13.9 millj. kr., Norðurl. e. 21.7 millj. kr., Austf. 20 millj. kr. og Suðurl. 12 millj. kr. Ef hæstv. menntmrh. athugar um leið íbúafjöldann og heildarfjárveitinar til þessara kjördæma, mun hann fljótt sjá af sinni glöggskyggni, að hér er ákaflega hallað á fámennustu byggðirnar í landinu. Það er þetta, sem ég átti við, og svo hitt að síðustu: Hvernig stóð á því, að hæstv. ríkisstj. og stjórnarliðið vildi alls ekki, að stjórnarandstaðan eða fulltrúar hennar fengju að koma nálægt því eða fengju að sjá þann niðurskurð, sem á að framkvæma á árinu 1973? Við hvað var stjórnarliðið feimið, eða var það svona taugaveiklað við afgreiðslu fjárl. fyrir jólin?