06.02.1973
Sameinað þing: 40. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1816 í B-deild Alþingistíðinda. (1425)
Varamaður tekur þingsæti
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Það gerðist á fundi Nd, í gær, að utan dagskrár kvaddi sér hljóðs hv. 5. þm. Vesturl., Jónas Árnason, og gerði að umræðuefni nokkur orð, sem ég hafði mælt í útvarp, þ.e. hljóðvarp og sjónvarp, á föstudagskvöldið að beiðni þeirrar stofnunar. Nú stóð svo á, að ég var hér ekki staddur á þeim fundi og vil því biðja hæstv. forseta Sþ. að leyfa mér að mæla hér nokkur orð til skýringa og leiðréttingar á því, sem kom fram utan dagskrár í gær. En svo stóð á fjarvist minni í upphafi þessa fundar, að hæstv. utanrrh. hafði beðið mig ásamt nokkrum öðrum þm. að koma til viðræðna við 4 fulltrúa frá Evrópuráðinu, sem hér voru á ferð. Þessum viðræðum lauk ekki fyrr en kl. langt gengin 3, og voru þar bæði utanrrh. og menntmrh. til þess tíma. Þar sem óvíst var fyrir fram, hversu lengi þessar umr. stæðu fram yfir kl. 2, hafði ég ekki formlega beðizt fjarvistarleyfis, enda átti það að vera óþarft, m.a. vegna þess, að hæstv. forseti Nd. tók þátt í þessum viðræðum, og þegar hann fór laust fyrir 2 til að setja fund í Nd., þá vissi hann, að umr. var haldið áfram, og hefði það gjarnan mátt koma fram, þegar deilt var á mig fyrir fjarvist.
Hv. 5. þm. Vesturl. beindi skeytum sínum fyrst að hljóðvarpi og sjónvarpi fyrir, að þær stofnanir skyldu leyfa sér að snúa sér til mín á föstudag, eftir að fréttist um úrskurð Alþjóðadómstólsins í landhelgismálinu, og biðja mig að segja nokkur orð um dóminn. Nú svara þessar stofnanir að sjálfsögðu fyrir sig og hafa þegar gert það. En hv. þm. komst svo að orði í ádeilu sinni á þessar stofnanir, að sá, sem fenginn var til að flytja þessi ávörp, var aðeins alþm., óbreyttur alþm. Þm. taldi, að það hefði átt að velja einhvern fyrirmann eða höfðingja í staðinn. Það fer vissulega vel á því í munni þeirra stjórnmálamanna, sem jafnan kenna sig við alþýðuna, að útvarpið eigi ekki að líta við eða leita til múgamanna, eins og þm., heldur eigi að horfa til höfðingjanna. Og þess vegna er það líka skiljanlegt, að þm. lét ekki svo lítið að láta mig vita, að hann ætlaði að gera mig og mín orð að umtalsefni. Það er venja, þegar talað er utan dagskrár og menn beina máli sínu til ráðh., að þeir eru látnir vita áður, en þess var náttúrlega ekki von, að farandsöngvari Alþb. teldi slíkt við hæfi, þegar aðeins óbreyttur þm. átti í hlut.
Nú er mér spurn: Hvers vegna báðu þessar fréttastofur báðar mig um að koma til þess að segja nokkur orð um þetta mál, óbreyttan alþm.? Það fyrsta, sem fram hefur komið í því efni, — það voru ekki beint orð hv. þm., en hefur komið fram í málgögnum stjórnarinnar, að e.t.v. kunni það að hafa verið vegna þess, að ég sé höfundur svikasamningsins frá 1961, og þess vegna hafi þær viljað gefa mér kost á að verja samninginn. Nú vil ég taka það í fyrstu fram, að ekki er ég höfundur þessa samnings. Það voru þeir ráðh. þrír, Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson og Guðmundur Í. Guðmundsson, sem höfðu allan veg og vanda af þeirri samningagerð. Hins vegar ber ég ábyrgð á honum eins og aðrir ráðh. og þm., sem samþykktu samninginn. En út af þessum samningi vil ég aðelns geta þess á þessu stigi, að þessi samningur frá 1961, sem leysti landhelgisdeiluna og var samþykktur af meiri hl. Alþ., var staðfestur af íslenzku þjóðinni í næstu kosningum á eftir. Tveim árum síðar fóru fram almennar kosningar, og kjósendur kváðu upp þann dóm, þrátt fyrir öll gífuryrði stjórnarandstæðinga þáv. um svik og smánarsamninga, að 56% þjóðarinnar kusu þá flokka, sem höfðu staðið að þessum samningum.
E.t.v. hefur verið sú ástæða til þess, að ríkisútvarpið leitaði til mín, að ég hefði haft með höndum kennslu í þjóðarétti við lagadeild háskólans. Það hef ég haft samtals í 9 ár. Hv. 5. þm. Vesturl. sagði, að fremur hefði í því efni átt að leita til hæstv. forsrh., því að hann hefði kennt þjóðarétt við háskólann a.m.k. fjórum sinnum lengur. Ef þessi aldursreikningur hv. þm. er réttur, þá ætti hæstv. forsrh. að vera farinn að nálgast aldur dómsforsefans í Haag. Nú er ekki svo, heldur er hæstv. forsrh. á bezta aldri. En það vill svo vel til og einkennilega, verð ég að segja, að þegar hv. þm. sagði, að dómforsetinn í Haag mundi standa á áttræðu, þá fór hann þarna furðunærri sannleikanum, miklu nær en honum tókst í öðrum hlutum ræðu sinnar, því að svo er mál með vexti, að þessi dómsforseti, sem heitir Muhammed Zafrulla Khan, frá Pakistan, er fæddur 6. febrúar 1393 og mun því eiga áttræðisafmæli í dag. Það er því ljóst, að þeir eru mjög jafnaldra, Mao í Kína og Muhammed í Haag. En svo er mál með vexti, að Mae Tes-tung er nú sá, sem sumir stjórnarliðar setja allt sitt traust á í landhelgismálinu. Þeir ala þá von í brjósti, að á sínum tíma kunni einræðisstjórnin í Kína að beita hinu alræmda, ólýðræðislega neitunarvaldi í Sameinuðu þjóðunum, — það er nýjasti blómahnappurinn á hinni „sjálfstæðu“ utanríkisstefnu ríkisstj.
En hvað var það svo, nánar skoðað, sem hrærði svo mjög hjartastrengi hv. þm., að hann taldi ástæðu til þess utan dagskrár að sýna mér þennan sóma? Ég skal rekja hér í örfáum dráttum hvað ég sagði í hljóðvarp og sjónvarp.
Ég minntist fyrst á það, að öll ríki, sem væru í Sameinuðu þjóðunum, væru aðilar að Alþjóðadómstólnum. Í því fælist ekki, að öll ríki væru skyldug til að leggja ágreiningsmál sín undir dóminn, heldur eingöngu ef sérstakar yfirlýsingar eða samningar lægju fyrir. Ég gat þess, að 46 ríki, þ. á m. Norðurlöndin öll að Íslandi undanteknu, hefðu undirritað og sent dómstólnum og Sameinuðu þjóðunum skuldbindingu um það, að öll ágreiningsmál um réttarágreining ríkjanna skyldu lögð fyrir dómstólinn. Ég minntist á það, að Ísland hefði ekki gert slíkan samning, en hins vegar væri ákvæði í samningnum frá 1961 um það, að þegar við færðum út fyrir 12 mílur og ágreiningur yrði, værum við því samþykkir, að málið færi fyrir dómstólinn í Haag. Ég minntist á það, hvenær Alþjóðadómstóllinn hefði fyrst komið við sögu í landhelgismáli okkar, það hafi verið 1951, þegar hann dæmdi í landhelgismáli Breta og Norðmanna, þar sem Norðmenn unnu frægan sigur, og sá dómur var grundvöllur að landhelgisútfærslu og leiðréttingu grunnlína 1952 hjá okkur.
Ég minntist í öðru lagi á, að ári síðar, 1953, hefði ríkisstj. Steingríms Steinþórssonar boðið það fram, að Alþjóðadómstóllinn skæri úr deilu okkar og, Englendinga um landhelgisútfærsluna. Ég gat þess, að ríkisstj. núv. hefði sagt upp samningnum frá 1961. Að því er dómatólinn snerti, þá væru þar þrír áfangar. Sá fyrsti var úrskurðurinn um málaleitan eða tilvísun frá því í ágúst, í öðru lagi þessi úrskurður nú um lögsöguna og í þriðja lagi yrði svo kveðinn upp efnisdómur í málinu.
Loks ræddi ég það, hvernig bæri að skýra sáttmála Sameinuðu þjóðanna um það, hvort og á hvern hátt ríki væru bundin af dómum Alþjóðadómstólsins, og loks minntist ég á það, hvort eigi væri rétt, að Íslendingar flyttu mál sitt fyrir dóminum.
Ég býst við, að það séu aðallega þessi tvö síðari atriði, sem hafa hleypt illu blóði í hv. þm. Mér finnst rétt gagnvart hv. þingheimi að skýra þessi atriði, fyrst málið hefur verið flutt hér inn miklu fyrr og á annan hátt heldur en æskilegt hefði verið, því að vitanlega hefði verið æskilegt, þegar dómurinn lá fyrir með forsendum, að þá yrði málið tekið hér til umr., m.a. það afriði, hvort ætti að senda málflytjendur til dómsins eða ekki.
Svo er mál með vexti, að árið 1946 samþykkti Alþ, að sækja um inngöngu í Sameinuðu þjóðirnar. Alþ. ályktaði að veita ríkisstj. heimild til þess að sækja fyrir hönd Íslands um inntöku í landalag hinna sameinuðu þjóða og takast á hendur þær skuldbindingar, sem samkv. sáttmála handalagsins eru samfara þátttöku í því. Samkv. þessari heimild og með samþykki Alþ. voru því þessir samningar undirritaðir. Meðal þeirra, sem samþykktu að gangast undir skuldbindingar í sáttmála Sameinuðu þjóðanna, var Einar Olgeirsson, sem skrifaði undir í nál., að Íslendingar væru reiðubúnir að gangast undir þær skuldbindingar, sem sáttmálinn legði á meðlimina. Og meðal þeirra, sem greiddu atkv. með því að takast á hendur þessar skuldbindingar samkv. sáttmálanum, var hæstv. núv. sjútvrh., Lúðvík Jósepsson. Það, sem Alþ. þannig samþykkti og hafði legið fyrir til athugunar og umr. á Alþ., var sáttmálinn eða stofnskrá hinna Sameinuðu þjóða og samþykktir Alþjóðadómstólsins. En samkv. sáttmálanum, 92. gr., segir, að „Alþjóðadómstóllinn skal vera aðaldómstóll hinna Sameinuðu þjóða. Hann skal starfa samkv. hjálagðri samþykkt, sem... er óaðskiljanlegur hluti þessa sáttmála.“ M.ö.o.: það, sem Alþ. samþykkti að gangast undir, var sáttmálinn sjálfur ásamt samþykktum dómsins. Þær greinar, sem hér skipta máli og ég byggði að sjálfsögðu á umgögn mína í útvarpi, eru einkum þessar:
Í 94 gr. sáttmálans segir: „Sérhver meðlimur Hinna sameinuðu þjóða skuldbindur sig til þess að hlíta úrskurði Alþjóðadómstólsins í hverju því máli, sem hann er aðili að.“ Á öðrum stað, 36. gr., 6. lið, samþykktanna, segir, að verði ágreiningur um það, hvort dómstóllinn hafi lögsögu, skeri dómstóllinn úr ágreiningi um það. M.ö.o.: þegar ágreiningur er um það, hvort ríki sé aðili að máli, þannig að dómstóllinn hafi lögsögu yfir því, þá er það dómstóllinn, sem sker úr því atriði, og öll ríki Hinna sameinuðu þjóða hafa samkv. sáttmálanum skuldbundið sig til að hlíta því, ekki með samningunum frá 1961, heldur með inngöngunni í Sameinuðu þjóðirnar 1946.
Sú túlkun, sem hæstv. sjútvrh. setti fram hér í gær, að orðin „máli, sem hann er aðili að“ þýddu eingöngu það mál, sem ríkið viðurkennir, að það sé aðili að, er fjarstæða. Þegar talað er um, að ríki sé aðili að máli og ágreiningur hefur verið um það, þá hefur dómstóllinn um það úrslitaúrskurðarvald. Með þessum ummælum er ég hér eins og í útvarpinu að skýra, hvernig beri að túlka þessi ákvæði sáttmála Sameinuðu þjóðanna og hvernig þau eru túlkuð af þjóðréttarfræðingum, a.m.k. þeim, sem ég þekki til.
Nú er það þannig, að dómur Alþjóðadómstólsins er bindandi úrslitadómur og honum verður ekki áfrýjað. Það er rangt, sem haldið hefur verið fram, að þessum dómi sé hægt að áfrýja til Öryggisráðsins og það geti breytt honum. Dómur Alþjóðadómstólsins er endanlegur dómur að sínu leyti eins og dómur hæstaréttar í hverju landi er. Hins vegar er það í landslögum þannig, að ef aðili, sem dæmdur er með úrslitadómi, neitar að framfylgja dóminum, þá er hægt að snúa sér til fógeta, til þess að hann með þeim ráðum, sem hann hefur, framfylgi dóminum, en hann getur ekki breytt dómi hæstaréttar.
Það sama er ákveðið í sáttmála Sameinuðu þjóðanna, 2. mgr. 94. gr., þar sem segir svo, að láti nokkur aðili bregðast að framkvæma þær skuldbindingar, sem honum ber samkv. dómsúrskurði Alþjóðadómstólsins, þá geti hinn aðilinn leitað til Öryggisráðsins, sem getur, ef því þykir nauðsynlegt, gert till. eða ákveðið aðgerðir til þess að dóminum verði fullnægt. Í riti hæstv. forsrh., Sameinuðu þjóðirnar, tekur hann fram, að þetta sé hliðstætt ákvæði því, sem er í landslögum, að fógeti hafi vald til þess og skyldu að framfylgja dómum. Öryggisráðið getur auðvitað neitað að verða við beiðni um það að veita atbeina sinn til þess að framfylgja dómi, þannig að dóminum verði ekki framfylgt af þeim ástæðum. Það er hugsanlegt. En Öryggisráðið er enginn áfrýjunardómstóll, og það er ekki hægt að áfrýja dómi Alþjóðadómstólsins þangað til breytingar.
Hitt atriðið, sem ég minntist á og ég veit, að hefur farið í taugarnar á sumum hv. stjórnarliðum, er það, að ég benti á, að nú yrði málið tekið til efnismeðferðar hjá dómstólnum, hvort sem okkur líkar betur eða verr og hvort sem við látum mæta eða ekki mæta. Ég tók fram, að úrslitin, hin efnislegu úrslit, hljóti að velta mjög á því, að málstaður Íslands verði túlkaður og fluttur svo sem bezt má verða. Ég sagði enn fremur í ríkisútvarpinu: „Verði það gert, er ég bjartsýnn á úrslitin. Svo sterk eru rök okkar, og svo vel vinnur tíminn fyrir okkur.“
Ég vildi láta þessar skýringar koma hér fram og vil ítreka það aftur, að ég hefði talið miklu æskilegra, að málið hefði borið fyrir Alþ. til umr., þegar dómurinn og forsendurnar liggja fyrir, og þá með þeim hætti, að hér geti farið fram málefnalegar rökræður um það, hvort Alþ. vill, að málsvarar séu sendir til dómstólsins til að túlka mál okkar, eða ekki.