06.02.1973
Sameinað þing: 40. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1819 í B-deild Alþingistíðinda. (1426)

123. mál, rannsóknir á íslenskum leirtegundum

Fyrirspyrjandi (Ásgeir Bjarnason):

Herra forseti. Fyrir allmörgum árum var samþykkt svohljóðandi till, hér á hv. Alþ., — með leyfi forseta vil ég lesa till.:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta nú þegar fullrannsaka, hvort hagkvæmt muni vera að reka leirverksmiðju í Dalasýslu, og jafnframt gera athugun á því, hvar séu leirlög í landinu, sem bezt henta til leiriðnaðar í stórum stíl.“

Seint í nóv. 1970 spurðist ég fyrir um niðurstöður af rannsóknum þessum. Þá var upplýst, að ekki neitt hefði verið athugað í málinu. Mér er kunnugt um það, að allviðtækar rannsóknir á leirtegundum hafa átt sér stað núna tvö síðustu árin. Til þess að fá vitneskju um niðurstöður af rannsóknum þessum hef ég ásamt hv. 4. þm. Vesturl. lagt fram fsp. á þskj. 173, þar sem spurt er:

„1. Hver er niðurstaða þeirra rannsókna, sem fram hafa farið á íslenzkum leirtegundum?

2. Er grundvöllur fyrir rekstur leirverksmiðju í Dalasýslu?“

Ég vænti, að hæstv. iðnrh. geti svarað fsp. þessum.