06.02.1973
Sameinað þing: 40. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1822 í B-deild Alþingistíðinda. (1428)
123. mál, rannsóknir á íslenskum leirtegundum
Fyrirspyrjandi (Ásgeir Bjarnason):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. iðnrh. fyrir svörin og þá rannsókn, sem fram hefur farið á leirlögum víðs vegar á landinu og ekki sízt í Dalasýslu. Mér þykir vænt um að heyra, að þessi rannsókn hefur leitt það í ljós, að í Dalasýslu er einna líklegast, að hægt verði að nýta leirinn til iðnaðar í stórum stíl og það á margvíslegan hátt. Að vísu eru ókönnuð ýmis mál í því sambandi, eins og hæstv. ráðh. minntist á, m.a. sölumöguleikar og annað í því sambandi. Ég vil beina því til hæstv. ráðh., að hann verði hjálplegur í því að útvega fjármagn til áframhaldandi rannsókna á þessum málum, svo að ekki liði langir tímar, þar til hægt verði að hefjast handa. Það þarf ekki um það að ræða hér, að það er allþýðingarmikið fyrir lítið byggðarlag eins og Dalasýslu að fá til sín iðnað, og ég vænti þess, að það geti orðið fljótlega, eftir að nánari athugun þessa máls hefur fram farið.