08.02.1973
Sameinað þing: 41. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1860 í B-deild Alþingistíðinda. (1477)
85. mál, veggjald af hraðbrautum
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Ég held, að það hafi verið á fyrsta þingi, sem ég sat, að vegal. komu til umr. og afgreiðslu, en þau voru sett 30. des. 1963. Í 95. gr. þeirra laga segir, að ráðh. sé heimilt að ákveða með reglugerð, að greiða skulu sérstakt umferðargjald af bifreiðum, sem fara um tiltekna vegi eða brýr. Við setningu vegal. og þar með samþykkt þessarar gr. lá það á bak við, að langt var komið lagningu Reykjanesbrautar svokallaðrar, sem var sérstætt mannvirki í vegagerð og fyrsta sinnar tegundar hér á landi, og þá þótti flestum þm. og raunar alveg örugglega yfirgnæfandi meiri hl. þjóðarinnar eðlilegt, að þeir, sem ækju um þennan ágæta veg, þyrftu eitthvað fyrir það að greiða. Höfuðrökin fyrir því að setja slíkan skatt á voru þau, að hér væri um betri veg að ræða, það væri fjárhagslegur sparnaður fyrir þá, sem ækju slíkan veg, umfram aðra hvað snertir viðhald og eyðslu ökutækis, og því væri ekki nema eðlilegt, að á einhvern hátt greiddu þeir samfélaginu það til baka í því skyni að létta byrðar samfélagsins af þessum dýru vegum eða á þann hátt að standa að því, að hægt væri að fara í fleiri slíkar framkvæmdir á öðrum stöðum.
Eins og þm. almennt muna, var þessu veggjaldi mjög illa tekið af ákveðnum mönnum á þessum tíma, og fögnuðurinn yfir því að fá þennan ágæta veg í notkun hvarf alveg fyrir óánægjunni yfir að greiða smávegis veggjald, eins og menn muna. En þó að þá hafi gerzt atburður, sem var öllum til leiðinda, þá held ég, að hann hafi orðið til happs að vissu leyti, því að öfgamaður eða öfgamenn tóku sig til og brenndu vegskýlið, sem búið var að reisa við þennan veg, og ég held, að allir skynsamari menn hafi ekki viljað halda uppi mótmælum á eftir, því að þeir vildu ekki láta telja sig til hóps þeirra öfgamanna, sem á þann hátt mótmæltu þessum sanngjarna og eðlilega skatti á sínum tíma. Þessi mótmæli hjöðnuðu niður nema hjá nokkrum nöldursskjóðum, sem hafa haldið áfram allt fram á þennan dag.
Afstaða mín eftir 10 ár er algerlega óbreytt frá því, að ég greiddi atkv. með þessari gr. vegal., þrátt fyrir tilburði ákveðinna þm. á s.l. vori og samþykkt þeirrar till., sem þá náði fram að ganga. En þó að sumir þeirra hafi í miklum fögnuði fagnað samþykkt þessar till., þá vil ég minna þá ágætu menn á, að sú till, fékk ekki meirihlutafylgi á Alþingi Íslendinga. Og eitt er víst, að þeir sömu menn hafa ekki síðan flutt frv. um að fá fellda niður 95. gr. vegal. Hygg ég alveg ákveðið, að þeir væru fyrir löngu búnir að gera það, ef þeir hefðu talið möguleika á því að fá þá grein fellda niður. Það hefur áður verið reynt og var reynt á síðasta þingi að flytja slíkt frv., en það dagaði uppi, að því er ég bezt man, enda var mikil andstaða við þetta frv. Hins vegar þykir mörgum gaman að ræða um snúninga alþm. á þessu tímabili og jafnvel skemmra tímabili, og kom það sérstaklega fram hjá einum flm. þessarar þáltill., að honum fannst snúningur Alþfl: manna taka nokkuð langan tíma, því að hann ætlar þeim minna en ár til þess að snúast, sennilega í þessu máli og þá jafnvel fleirum. Ég læt svona fjölskyldumál alveg liggja á milli hluta, hvað fyrrv., núv., verðandi og væntanlegum Alþfl.- mönnum dettur í hug í. þessu sambandi. Það er aukaatriði í þessu máli.
En mér finnst rétt að rifja lítillega upp, hvað gerðist, þegar þáltill. um vegáætlun var lögð fram af hæstv. samgrh. síðla á síðasta þingi. Þar var gert ráð fyrir tekjum af veggjaldi á Reykjanesbraut. En í raun og veru lá engin till. fyrir um veggjald, eftir að liðið var árið 1972, um þann veg, sem sjáanlegt var, að yrði tekinn í notkun, og var auðvitað eðlilegt og í fullu samræmi við þær skoðanir, sem haldið var fram við setningu vegáætlunar 1983, að þetta veggjald væri ekki sett á Reykjanesbraut eina, heldur eingöngu vegna þess, að þá var hún eina dýra og ágæta hraðbrautin, sem hafði verið byggð. En það var alveg ótvírætt látið að því liggja og kom fram hjá fjölda þm. í þeim umr., að þegar aðrar hraðbrautir kæmust í notkun, þá væri eðlilegt að leggja veggjald eða vegaskatt á þær. Hins vegar kom það fram, sem oft hefur komið fram síðar, að þó að smáspottar séu teknir fyrir umferð, þar sem vegir eru byggðir úr varanlegu efni, þá eru auðvitað takmörk fyrir því sett, hvort hægt er að innheimta veggjald, fyrr en það er orðinn nokkuð langur vegur. Og þá hef ég í huga Vesturlandsveginn, sem innan nokkurra ára, ef þróun verður sú sama í vegamálum, mundi vera eðlilegt og sanngjarnt, að vegaskatturinn verði lagður á.
Hitt er svo annað mál, sem má hafa um mörg orð og mismunandi skoðanir, hvort þessi tegund vegaskatts sé sú eina rétta, og þó að hún hafi verið tekin upp 1963, þá er það eins með þetta mál og flest önnur, að það má endurskoða það, ef mönnum þætti eðlilegt að fara inn á skattlagningu á einhvern annan hátt. Þegar strjálbýlið fær einhverjar varanlegar úrbætur, — og víst hefur strjálbýlið fengið margar góðar úrbætur í vegamálum á undanförnum árum, en ef það verður tekið til og gerður vegur úr varanlegu efni einhvers staðar úti á landi, sem auðvitað stendur til, þá væri mjög æskilegt, að það væri einnig hægt að leggja veggjald á þann kafla eins og aðra, þannig að við, sem í strjálbýli búum, greiðum skatta og skyldur nákvæmlega eins og aðrir. En þá kemur aftur að því vandamáli, hvað innheimtan er dýr.
Þegar fjvn. gekk frá sínum till. til vegáætlunar, skrifuðu 4 fjvn: menn undir álit n. með fyrirvara. Og það kom af því, að þá hafði verið flutt till. á Alþ., brtt. við vegáætlun, um það, að niður félli veggjald á vegáætluninni nema árið 1972 og kæmi árin 1973–1975 framlag úr ríkissjóði í staðinn fyrir veggjald. Innan fjvn. voru menn, sem voru samþykkir þessari till., a.m.k. 3, en 4 fjvn.- menn skrifuðu undir nál. með fyrirvara, en það var vegna þess, sem segir í niðurlagi nál., en það er svo hljóðandi:
„Á þskj. 833 flytur n. sameiginlega brtt, við vegáætlun. Um till. varðandi innheimtu veggjalds í áætlun um fjáröflun er þó ekki samkomulag í n. Áskilja nm. sér því rétt til þess að flytja brtt. eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma“
4 af þessum 5 nm., sem skrifa undir nál. án fyrirvara, eru stjórnarsinnar og einn stjórnarandstæðingur. Ég var eini stjórnaandstæðingurinn, sem skrifaði undir nál. án fyrirvara, vegna þess að ég var samþykkur því, sem er framhald af því, sem ég áður hafði samþ. við atkvgr við vegal. Hins vegar líkaði mér það mjög illa, þegar þessi till. kom hér fyrir þingið, að einn af okkar ágætu fjvn: mönnum, sem skrifaði undir nál., hafði sig í það að flytja brtt. við þessa brtt. þeirra Reykn. og Sunnl., sem ég lýsti hér áðan, að í stað orðanna „framlag úr ríkissjóði“ komi „af benzíngjaldi“. Mér fannst eðlilegt og sjálfsagt að láta reyna á þessa till. velflestra þm. úr þessum tveimur kjördæmum og var staðráðinn í því að greiða atkv. gegn henni. En svo kemur það til, að stjórnarliðið sameinast allt í einu um þessa till. fyrsta flm. þeirrar þáltill., sem hér liggur fyrir til umr., að í stað orðanna „framlag úr ríkissjóði“ komi „af benzíngjaldi“. Þá fannst mér, að stjórnarliðið ætti að afgreiða þetta mál eitt, fyrst það fór að handjárna liðið í sambandi við þessa orðalagsbreytingu, ég greiddi því ekki atkv. um till. Ég skal játa, að ég hugsaði sem svo: Innheimta veggjalds af Reykjanesbraut heldur áfram til áramóta. Austurvegurinn eða vegurinn austur að Selfossi verður tekinn í notkun fyrir þennan tíma. Og ég hugsaði sem svo: Það er ágætt. Vegal., það eru þau, sem blífa, og ráðh. er með veggjaldi. Hann fer aldrei að hætta við vegaskattinn, þó að þessi tillöguómynd hafi verið samþ. Hann hefur þetta í hendi sér. Það er ekki hægt að taka fram fyrir hendur ráðh. í þeim efnum nema afnema 95. gr. eða breyta henni. Ráðh. stendur alveg hnarreistur fyrir því að halda áfram innheimtu á veggjaldi. Og ég var staðráðinn í því, ef hann yrði fyrir árásum í því sambandi, að standa drengilega við hlið hans í þeim efnum. (Gripið fram í.) Já, ég hef oft talið fyrr á árum ráðh. vera manna líklegastan í þeim efnum. En það þurfti ekki í þessu sambandi.
Svo fara af stað ágætir stuðningsmenn veg. gjalds með þáltill., sem hér liggur fyrir, og henni er útbýtt hér í nóv. Forseti tekur hana á dagskrá samvizkusamlega fund eftir fund, og það er alltaf komið að till. fund eftir fund, en enginn af þessari vösku sveit, sem var að raða sér hér í pontuna áðan hver á fætur öðrum, virtist hafa tíma til að fylgja máli sínu úr hlaði. Hún er á dagskrá Sþ. 28. nóv., hún er aftur á dagskrá 30. nóv., hún er á dagskrá 5. des., 7, des. og 12, des. Og ég veit, að forseti Sþ. er svo lipur við þm. almennt, hvað þá við vildarvini sína, að hann hefði alls ekki neitað þeim um að fylgja þessari till. úr hlaði, þannig að þessi till. hefði fengið afgreiðslu Alþ., því að það hefði vafalaust hresst hæstv. samgrh. Hann hefði þá ekki flutt skýlið af Reykjanesbrautinni strax 3. eða 4. jan., ef þessi till. hefði verið samþ. En einhvern tíma hefur kjarkur hans verið meiri en það, að hann hefði þurft að bíða eftir samþykkt þessarar till. Hann hefði einhvern tíma, á meðan hann var og hét, lagt á veggjald, hækkað þetta verulega á Reykjanesbrautinni og sett veggjald á Austurveg, hvað sem fyrirrennari hans í starfi hefði sagt og þeir aðrir úr þeirri stóru fjölskyldu í Suðurlandskjördæmi og Reykjaneskjördæmi. (Samgrh.: Má ekki bíða eftir, að þm. rétti upp höndina? Forseti: Ég vil spyrja hv. þm., hvort hann eigi langt eftir af ræðu sinni.) Nei, ég á örstutt eftir, forseti.
Ég tek alveg undir það, sem talsmenn þessarar till. hafa sagt hér. að þeir vonist til þess, að till. fái afgreiðslu. Og ég furða mig mjög á því, sem hv. 1, þm. Sunnl. sagði í lok ræðu sinnar. Hann sagðist vonast til þess, eftir að vera búinn að tala föðurlega til 1. flm. till. um, að hann hefði sennilega flutt till. af einskærum misskilningi, — að hann vonaðist þá til, fyrst till. væri komin til umr., að hún færi til n. og fengi þar hægt andlát. Ég tek alls ekki undir svona vinnubrögð. Hvort sem menn eru með eða móti máli, þá eiga mál að fá afgreiðslu þingsins og láta þá reyna á, hvernig þau verða afgreidd. Og ég vona, að sú n., sem fær till. til meðferðar, afgreiði þessa till. fljótt og vel, þó að hafi staðið svona lengi í flm. till. að mæla fyrir henni. Hitt er svo annað mál, og skal ég þá ekki orðlengja þetta miklu meira, að ég tel, að þeir, sem fá góða vegi, þeir, sem aka um þá, hvort sem þeir eiga heima við þessa vegi eða ekki, eigi að borga fyrir það, því að þeir njóta þess í öðru. Og jafnvel þeir, sem hossast, eins og sagt var hér um daginn, frá Austfjörðum og Vestfjörðum og koma á góðan veg og keyra km eftir km á sléttum vegi, megi borga fyrir það, þegar þeir hætta að hossast. Og ég skal segja þessum ágætu mönnum það, — eins og ég sagði í upphafi er ég búinn að vera 10 ár á þingi, — ég held, að 3 haust af þessum 10 hafi ég lent í hrakningum á leið til þings 8. og 9. okt. og það síðast á þessu hausti í 10–11 tíma á heiðum uppi. Ég hefði glaður viljað borga — ekki 50 kr., heldur 2000–3000 kr. fyrir að vera laus við þá hrakninga. Þetta ætla ég að biðja þá menn, sem gráta yfir veggjaldi árum saman, að hafa í huga.