12.02.1973
Neðri deild: 51. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1870 í B-deild Alþingistíðinda. (1483)

134. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Ég get fullvissað hæstv. félmrh. um það, að ég hef lesið þetta frv. yfir af mestu góðvild og sanngirni og aths. mínar eru settar fram af fullri góðvild og fullri sanngirni, einmitt vegna þess, að ég hef verið þeirrar skoðunar, að hæstv. félmrh. vildi viðhafa jafnrétti og vildi ekki beita sér a.m.k. viljandi fyrir misrétti á þessum vettvangi.

Ég gerði hér að umtalsefni tvær gr. í þessu frv., og aths. mínar eru ekki vitlausari en það, að hæstv. félmrh. hefur a.m.k. fallizt á, að önnur þeirra ætti að nokkru leyti rétt á sér, og hann hefur, eftir því sem mér bezt skildist, gefið í skyn, að hann væri fús til þess að taka e-lið 5. gr. til athugunar, ef í honum fælist eitthvert misrétti, eins og ég hef verið að fullyrða.

Húsnæðismálastjórn hefur veitt framkvæmdalán til byggingaraðila, sem hafa byggt og selt, og það hafa verið viss vandamál fyrir þessa aðila að geta ekki fengið þessi framkvæmdalán nema búa svo um hnútana, að íbúðirnar væru fullfrágengnar, þegar þær væru seldar. Nú skulum við ekki endilega fara að gagnrýna það eða deila um það, hvort þetta sé rétt eða ekki. Út af fyrir sig er það markmið, að íbúðir séu ekki seldar öðruvísi heldur en fullfrágengnar. En það hefur nú einu sinni verið svo hér á Íslandi, að fólk hefur gjarnan viljað kaupa íbúðir, annaðhvort fokheldar eða tilbúnar undir tréverk, til þess að geta unnið við þær sjálft, og talið sig geta sparað eitthvað á því. Þetta hefur viðgengizt, og því hefur það verið í reynd svo, að byggingaraðilar hafa verið að einhverju leyti óánægðir með þetta skilyrði, sem húsnæðismálastjórnin hefur sett um það, að íbúðirnar þyrftu að vera fullfrágengnar. Það er að sjálfsögðu mjög mikilvægt atriði fyrir þessa aðila að fá framkvæmdalánin afgreidd sem fyrst, og það er enginn vafi á því, að nú, þegar komið er fram með frv. og gert ráð fyrir því, að það verði að lögum, að ákveðin byggingarsamvinnufélög, sem sagt einn aðilinn af mörgum, sem byggja, fái undanþágu frá þessu ákvæði, sem hingað til hefur gilt, þá er það afskaplega ósanngjarnt og að mínu viti nær ekki nokkurri átt. Þess vegna held ég og er sannfærður um það, að við getum, hæstv. félmrh. og ég og sjálfsagt öll þd., sameinazt um að búa svo um hnútana hvað þetta ákvæði snertir, að þar verði ekki á ferðinni neitt misrétti.

Hann telur, að hin aths. mín hafi ekki verið á rökum reist og jafnvel byggð á einhverjum misskilningi. Um það skal ég ekki segja, en ég vek athygli á því, að í a-lið 5. gr., þar sem er talað um, hvernig byggingarsamvinnufélög geti aflað sér fjár, er talað um, að það verði gert m.a. með frjálsum framlögum hvers félagsmanns í stofnsjóð, unz fjárhæð hans í sjóðnum nemur minnst 1/5 hluta andvirðis þess húsnæðis, sem ákveðið verður, að félagið komi upp fyrir hann. En nú spyr ég: Er það ekki svo, hvort sem það er byggingarsamvinnufélag, sem á í hlut, eða einhverjir aðrir aðilar, að það fólk, sem ætlar að kaupa ef þessum aðilum, leggur fram fé í stofnsjóð? Það gerir samning við þann aðila, sem hyggst byggja íbúðina fyrir viðkomandi, og byggingaraðilinn segir við þennan væntanlega kaupanda: Þú verður að leggja fram svo og svo mikið fé í okkar sjóð, til þess að við getum staðið undir þessum byggingarframkvæmdum. — Og hvort sem það er meira eða minna en 1/5, — ég held, að það sé algengast, að það sé meira en 1/5 strax á byrjunarstigi, — þá sjá menn þó, að þarna er enginn eðlismunur á. Það er um að ræða alveg sams konar fjáröflun, hvort sem er um að ræða byggingarsamvinnufélag, byggingar einstaklinga eða byggingarfyrirtæki einhvers konar. Kaupandi leggur fram fé í stofnsjóð, oftast með meira en 1/5 hluta, og að því leyti er það ekkert frábrugðið því, sem þarna er gert ráð fyrir.

Hins vegar er talað um í þessari gr., að hann þurfi að vera búinn að leggja fram þetta fé í 3 ár. Nú má vel vera, að það skipti alveg sköpum og ráði úrslitum um það, hvort viðkomandi aðili fái þá helmingi hærra lán úr Byggingarsjóði ríkisins heldur en aðrir, hvort hann er búinn að greiða fé í svokallaðan stofnsjóð í 3 ár þar á undan eða ekki. Ég vil leyfa mér að efast um, að margir geri þetta í sjálfu sér, og sá grunur læðist að mér, að til þess að njóta góðs af þessu ákvæði sé hægt að fara ýmsar leiðir við að fullyrða og leggja fram gögn um það, að viðkomandi aðilar hafi greitt s.l. 3 ár. Það er t.d. hægt að gera þannig, að viðkomandi aðili leggur fram þessa ákveðnu upphæð í einu, og síðan er það staðfest af viðkomandi félagi og viðkomandi aðilum, að þetta fé hafi verið greitt inn á svo og svo löngum tíma. Nú er ég ekki að væna neinn sérstaklega um óheiðarleika. En við vitum, að það er ýmislegt gert til þess að fá lánsfé úr byggingarsjóðnum sem allra fyrst, og það má vel halda því fram að það sé ekki neitt verið að fara fram hjá lögunum eða starfa óheiðarlega, þó að lagt sé fram í einum áfanga það fé, sem ella hefði komið inn á þremur árum. Ég get ekki séð, að þessi tímabinding ráði úrslitum um það, að viðkomandi aðili eigi rétt á því að fá svo geysilega miklu hærra lán heldur en aðrir. Hann er eins og aðrir byggjendur að leggja fram fé í stofnsjóð fyrir þann aðila, sem á að byggja, og hvort sem það heitir byggingarsamvinnufélag eða eitthvað annað, þá á að gilda það sama um alla aðila, sem standa í húsbyggingum.

Ég fer fram á það og geri ráð fyrir því, að það verði gert, að þetta mál verði skoðað af fullri góðvild og fullri sanngirni í n., þannig að það sé fulltryggt, jafnvel þó að það heiti byggingarsamvinnufélög, sem hér er verið að ræða um, að þá njóti þau ekki sérstakra forréttinda og sérstakra hlunninda umfram þá aðila, sem þau keppa við í húsabyggingum.