12.02.1973
Neðri deild: 51. fundur, 93. löggjafarþing.
Sjá dálk 1878 í B-deild Alþingistíðinda. (1487)
25. mál, dvalarheimili aldraðra
Frsm. (Jón Skaftason):
Herra forseti. Heilbr.- og trn. þessarar d. hefur athugað frv. til l. um dvalarheimili aldraðra, sem er 26. mál á þessu þingi. Athugaði n. frv. á nokkrum fundum og fór yfir umsagnir, sem henni höfðu borizt í sambandi við þetta frv. Umsagnirnar voru allar að meginefni jákvæðar, en þó var í sumum þeirra að finna nokkrar aths. við frv. og tillögugerð um viðbætur við það. N. sá sér hins vegar ekki fært sem ein heild á þessu stigi að taka upp aðra breytingu við frv. en þá, sem er að finna á þskj. 291 og lýtur einasta að breytingu á gildistökutíma frv., þar sem sá tími er liðinn, sem var ráðgert, að frv. tæki gildi á.
Um efni sjálfs frv. er ekki mikið að segja. Nýmælið í því er aðallega að finna í 7. og 8. gr. Í 7. gr. er að finna það nýmæli, að ríkissjóður skuli greiða að 1/3 hluta kostnað við byggingu og kaup nauðsynlegra tækja og búnaðar í dvalarheimili, sem sveitarfélag ræðst í að byggja. Einnig er í gr. heimildarákvæði um, að styrkja megi byggingu dvalarheimilis fyrir aldrað fólk, þótt sveitarfélag standi ekki að byggingu þess. Í 8. gr. er og það nýmæli, að daggjaldanefnd samkv. l. um almannatryggingar ákveði upphæð vistgjalda á dvalarheimilum aldraðra.
Ég held, að ekki sé ástæða til þess að fara fleiri orðum um frv. Heilbr.- og trn. mælir einróma með samþykkt þess með þeirri breytingu, sem ég var hér að lýsa, á þskj. 291, en einstakir nm. áskilja sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt., ef fram koma.